Bændablaðið - 05.06.2014, Page 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 5. júní 2014
Safi unnin úr íslenskri
geithvönn sem tekin er í óspilltri
íslenskri náttúru er framleiddur
hjá fyrir tæki sem heitir
Hvannalindir og er starfandi
á Húsavík. Frumkvöðulinn,
Þórður Pétursson, greindist með
krabbamein í blöðruhálskirtli
fyrir tæpum áratug og fór þegar
að leita fyrir sér með íslenskar
lækningajurtir sem gætu
gagnast honum í baráttunni
gegn meininu. Niðurstaðan
var safi gerður út geithvönn
sem nú hefur hlotið nafnið
Eyvindur og er framleiddur í
þó nokkru magni í verksmiðju
fyrirtækisins í Haukamýri 4 á
Húsavík og sendur til kaupenda
víða um land.
Félagið Hvannalindir var
stofnað árið 2011 og eru hluthafar
um tuttugu talsins. Starfsemi
félagsins fer fram í húsnæði sem
Þórður lét byggja sérstaklega fyrir
framleiðsluna og hentar það því
vel. Vélar voru keyptar að utan og
starfsemin er komin í fullan gang.
Kveikjan boð frá Einari á
Einarsstöðum
Þórður segir að fljótlega eftir
að hann fékk sína greiningu
hafi hann leitað til læknamiðils.
Sá flutti honum boð frá hinum
landsþekkta látna miðli Einari
Jónssyni á Einarsstöðum í
Reykjadal. Þórður skyldi
samkvæmt ábendingu Einars
skoða hvort hvönnin, sú með hvítu
blómunum, gæti ekki komið að
gagni. Geithvönnin byggi yfir
sérstökum lækningamætti.
Þórður er uppalinn í Árhvammi
í Laxárdal og því alinn upp á
bökkum Laxár. „Ég var síðar
leiðsögumaður við Laxá í Aðaldal
í fimmtíu ár og kynntist þar fyrst
geithvönn. Áður en ég fékk þessi
boð frá Einari hafði ég aldrei tekið
eftir því að hvannategundirnar
væru tvær, ætihvönn og geithvönn,
heldur áleit ég að þetta væri sama
tegundin á mismunandi þroska-
stigum,“ segir Þórður.
Nafnið sótt til frægasta
útilegumanns Íslandssögunnar
Hann segir að hvönn hafi allt frá
landnámi verið talin með bestu
lækningajurtum hér á landi, en
athygli manna hafi einkum beinst
að ætihvönn. Geithvönn sé mun
sterkari, hún lykti illa, sé römm
og langt í frá eins bragðgóð og
ætihvönnin, sem líkast til skýri að
menn hafi fram til þessa fremur
sneitt hjá henni.
Nafnið á safanum sækir
Þórður til frægasta útilegumanns
Íslandssögunnar, Fjalla-Eyvindar,
sem eins og kona hans Halla varð
langlífur þrátt fyrir að búa ekki við
góðan kost. „Þau völdu sér gjarnan
staði til búsetu þar sem mikið var
um hvönn, m.a. í Hvannalindum og
Herðubreiðarlindum. Ef til vill má
rekja góða heilsu og langlífi þeirra
til þess að þau hafi gert sér mat úr
hvönninni,“ segir Þórður.
Hefur reynst mönnum vel
Þórður greindist sem fyrr segir með
krabbamein í blöðruhálskirtli fyrir
tæpum áratug, en þeim sjúkdómi
fylgir gjarnan hátt PSA-gildi í blóði.
Mæling á því hefur reynst hjálpleg
til greiningar á sjúkdómnum.
Þórður segir að eftir að greining lá
fyrir hafi hann leitað sér upplýsingar
um helstu lækningajurtir hér á landi
og úr varð að hann fór að taka
reglulega inn safa sem hann bjó til
úr geithvönn.
„Árangurinn var góður, PSA-
gildið hefur nokkurn veginn staðið
í stað og ég hef ekki þurft á annarri
meðferð að halda,“ segir Þórður.
Fleiri hafi síðar bæst í hópinn og
tekið safann inn með vitund lækna
sinna og hafi hann gert mönnum
gott. Dæmi séu þess að PSA-gildi
hafi lækkað og svo staðið í stað hjá
þeim sem reglulega drekka safann.
Þannig hafi menn náð að halda
krabbameininu niðri.
„Ég tel mjög líklegt að safinn
geti haft fyrirbyggjandi áhrif á
krabbamein í blöðruhálskirtli,
inntaka hans reglulega hefur m.a.
leitt í ljós að verulega hefur dregið
úr vandamálum þeirra sem þjást af
góðkynja stækkun í blöðruhálskirtli,
það er tíðum þvaglátum og
svefnvandamálum sem þau valda,“
segir Þórður og bætir við að fólk
með aðrar tegundir krabbameins
hafi einnig neytt safans með
árangri sem og fólk með gigt og
magavandamál.
Þórður segir að prófanir hafi
verið gerðar á virkni safans á
frumulínum úr blöðruhálskirtils-
krabbameini. Niðurstöðurnar voru
góðar og sýndu að geithvannasafinn
drap krabbameinsfrumur.
Eftirspurn hefur aukist
Eftir því sem virkni geithvannar-
safans Eyvindar spurðist út fjölgaði
þeim sem vildu taka hann inn og
hefur starfseminni því vaxið fiskur
um hrygg.
„Það er allt komið í fullan
gang hjá okkur og eftirspurn
eftir safanum hefur aukist mjög
undanfarið, en nú erum við einnig
að hugleiða að renna fleiri stoðum
undir reksturinn með því að nýta
fleiri jurtir, til dæmis blóðberg,
kerfil og fleiri jurtir,“ segir Þórður.
Hann á þó nokkuð magn frá
síðasta ári af geithvönn, á annað
tonn en hyggst einnig ásamt fleirum
sækja sér meira hráefni á komandi
sumri. Þórður segir að hægur vandi
sé að leita fanga á bökkum Laxár, en
einnig þurfi að fara víðar og jafnvel
allt austur á firði.
Sendur heim
Geithvannarsafinn Eyvindur er ekki
enn seldur í verslunum, menn geta
pantað einstaka skammt eða gerst
áskrifendur að safanum í gegnum
heimasíðu fyrirtækisins (www.
hvannalindir.is) og fá hann þá
sendan heim en í hverjum pakka eru
30 einingar eða mánaðarskammtur,
ein eining á dag af safa.
„Aðalatriðið í þessu öllu og það
sem skiptir mestu máli er að safinn
hjálpi mönnum og ég hef fulla trú á
að svo verði,“ segir Þórður. /MÞÞ
Til leigu skrifstofur
Í Bændahöllinni, Hótel Sögu, er til leigu skrifstofuaðstaða á
2. hæð. Um er að ræða tvö rými með sameiginlegri fundar-
aðstöðu og kaffi krók.
- Skrifstofa, 17 m2
- Skrifstofa / opið rými fyrir 4-5 skrifb orð ásamt sér
geymslu. Alls 50 m2
Húsnæðið er snyrtilegt, sérinngangur er við suðurenda
hússins og allar tölvulagnir eru til staðar. Í húsinu er marg-
vísleg þjónusta en þar er banki, veitingastaðir, bar, heilsu-
rækt og spa, hárgreiðslustofa og fyrsta fl okks fundaraðstaða
ásamt veitingaþjónustu. Hentar mjög vel fyrir einkaaðila,
lítil fyrirtæki og þá sem vilja vera nálægt Háskóla Íslands.
Innifalið í leigu er hiti, rafmagn, nettenging og þrif. Mögu-
leiki er á að leigja skrifstofuaðstöðu með húsgögnum og fá
aðgang að mötuneyti. Myndir af húsnæðinu er að fi nna á
bondi.is.
Nánari upplýsingar veitir Tjörvi Bjarnason í netfangið tb@bondi.is eða
í síma 862-3412.
Gæðastýrð sauðfjárframleiðsla
– Undirbúningsnámskeið
Fyrirhugað er að halda námskeið í gæðastýringu í sauðfjárrækt,
en eitt af skilyrðum fyrir þátttöku í gæðastýringu er að hafa sótt
undirbúningsnámskeið. Staðsetning námskeiðanna og fjöldi verður
ákveðinn með tilliti til þátttöku. Gert er ráð fyrir að námskeiðin fari
fram dagana 18.–20. júní nk. Námskeið verða svo aftur í boði
seinna á þessu ári.
Skráning
Skráning fer fram hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins fyrir 12.
júní nk. Þátttaka tilkynnist með tölvupósti á bella@rml.is eða í
síma 516-5000. Gefa þarf upp nafn, síma, heimili og póstnúmer.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Fyrirtækið Hvannalindir á Húsavík framleiðir safa úr geithvönn:
Þykir hafa jákvæð áhrif á
blöðruhálskirtilskrabbamein
– Segir Þórður Pétursson, stofnandi fyrirtækisins
gagnast mönnum sem greinst hafa með blöðruhálskirtilskrabbamein. Þórður fékk slíkt krabbamein fyrir tæpum
Mynd / MÞÞ