Bændablaðið - 05.06.2014, Side 50

Bændablaðið - 05.06.2014, Side 50
50 Núverandi ábúendur á Sól- bakka, Sigríður Hjaltadóttir og Skúli Þór Sigurbjartsson, hófu búskap með foreldrum Skúla, þeim Sigrúnu Ólafsdóttur og Sigurbjarti Frímannssyni árið 1992. Þau keyptu kýrnar og vélar árið 1995 og jörðina 1998. Sólbakki er nýbýli úr landi Þorkelshóls byggt upp af ömmu og afa Skúla, þeim Herdísi Sturludóttur og Ólafi Daníelssyni 1936. Býli: Við Dalsá í Víðidal, mitt á milli Hvammstanga og Blönduóss. Staðsett í sveit: Við Dalsá í Víðidal, mitt á milli Hvammstanga og Blönduóss. Ábúendur: Skúli Þór Sigurbjartsson og Sigríður Hjaltadóttir. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Tvö börn, Ólöf Rún Skúladóttir, 22ja ára verkfræðinemi við Háskóla Íslands, og Guðni Þór Skúlason, 19 ára nýútskrifaður húsasmiður frá VMA og verður á samningi fram á næsta vor þegar hann tekur sveinsprófið.Tveir hundar eru á bænum; Lukka, íslensk smalatík með ýmsum blöndum, og Lubbi, Yorkshire Terrier. Svo eru nokkrar fjósakisur og fimm hænur. Stærð jarðar? Um 400 ha og af því 50 ha ræktaðir. Stunduð er kornrækt á leigujörð utar í dalnum. Gerð bús? Blandað bú. Fjöldi búfjár og tegundir? Á búinu eru um 30 mjólkandi kýr, allir kvígukálfar fara í eldi en nautkálfar eru seldir. Um 170 kindur eru á bænum sem foreldrar Skúla hugsa að mestu um, en þau heita Sigurbjartur Frímannsson og Sigrún Ólafsdóttir og eru fyrrverandi ábúendur á Sólbakka. Þau fluttu í Brún í Víðidal þegar við tókum við. Um 15 hross eru á bænum. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Húsbóndinn á bænum vaknar klukkan 7.00, fær sér hressingu og fer út í fjós, mjólkar og gefur nautgripunum. Eftir morgunmat hefjast önnur bústörf, sem eru misjöfn eftir árstíðum. Húsfreyjan fer til vinnu utan bús. Á sumrin fara krakkarnir til vinnu en á veturna eru þau að heiman í skóla. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Öll bústörf eru skemmtileg en leiðinlegasta bústarfið er að bera tilbúinn áburð á túnin. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir 5 ár? Sonurinn mun byggja hátæknifjós og vélaskemmu innan fimm ára, bústofninn hefur stækkað um helming – að minnsta kosti nautgripirnir. Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Bændur þurfa að sinna félagsmálum af alúð og fá til þess kraftmikið fólk með skýra framtíðarsýn. Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Íslenskur landbúnaður stendur á tímamótum; verið er að stækka búin, taka í notkun nýja tækni, orkumálin eru í örri þróun og má þar nefna vindorku, metan auk þess sem jarðhiti er nýttur á fleiri stöðum. Leggja þarf ljósleiðara um sveitir landsins til að auka fjölbreytni auk þess sem nútímabúskapur kallar á hraðara net. Íslenskar landbúnaðarvörur eru einstakar á heimsvísu, vegna hreinleika þeirra, lítillar efnanotkunar svo sem áburðar og skordýraeiturs, auk hormónagjafa, við erum þegar farin að minnka lyfjagjafir eins og penisillín o.fl. Þegar útlendingarnir átta sig á því megum við Íslendingar fara að vara okkur. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Ef við upplýsum útlendinga um hreinleika vörunnar, sem við getum gert ef íslenskir bændur fá vistvæna vottun, verður barist um vöruna. Mikil vakning hefur verið erlendis fyrir óhollustu við framleiðslu landbúnaðarvara og lífrænar vörur verða sífellt algengari. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk úr fjósinu okkar, heimareykt hangikjöt út á flatkökurnar og heimagerð jógúrt. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Lambahryggur eða lambalæri, alltaf þegar krakkarnir koma heim í frí er eldað lambakjöt, grillað, steikt, moðsoðið, bara namm hvernig sem það er eldað. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Miklar breytingar urðu þegar við breyttum fjárhúsunum úr görðum í gjafagrindur auk þess sem búið var til vinnurými fyrir fjárrag. Einnig varð mikil breyting þegar settur var upp mjólkurtankur með sjálfvirkri þvottavél. Mikil breyting hefur verið á heyskap á þessum tíma sem við höfum búið, með tilkomu rúlluheyskapar en húsfreyjan saknar þó gamla Dodda sem notaður var við að rifja en hann var Deutz með veltigrind, töðulyktin var svo dásamleg, en oft þurfti að vera í kuldagalla við að rifja. Líf og lyst BÆRINN OKKAR Smurbrauð fyrir sælkera „Smørrebrød“ er brauð, yfirleitt rúgbrauð, sem hefur verið smurt með smjöri. Smurbrauð getur verið aðalréttur, hluti máltíðar eða smáréttur milli mála og er mikilvægur þáttur í danskri matargerð. Við Íslendingar höfum fengið ýmislegt gott í arf frá frændum okkar en hér á landi er smurbrauðshefðin ágætlega þekkt. Smurbrauð varð til vegna þarfar til að neyta matar utan heimilis. Frá fornu fari þurftu smalar, bændur, veiðimenn og aðrir sem voru að vinnu langt frá heimilinu að taka með sér nesti og þá var handhægt að hafa með sér brauð og ýmiss konar álegg. Ekki er neitt sér-danskt við slíkt nesti og það var ekki fyrr en í lok 19. öld að danskt smurbrauð varð til í þeirri sér-dönsku mynd sem það hefur í dag, þar sem áleggi er staflað á smurðar brauðsneiðar. Hér koma tvær smurbrauðs- uppskriftir en það er um að gera að nýta það hráefni sem til er í ísskápnum og gera tilraunir. Eina skilyrðið er að hráefnið sé fyrsta flokks. Nautatartar með graslauk, kapers og spánarkerfli Hráefni › 350 g nautalundir eða fitulítill lærvöðvi › 2 stk. skalotlaukar › 1 msk. kapers › ½ pottur graslaukur › Extra virgin ólífuolía › Salt og svartur pipar › Skreytt með nýjum spánarkerfli og graslauksblómum Graslauks majónes › 2 eggjarauður › 1 tsk. dijon sinnep › 200 ml graslauksbætt repjuolía › 2 msk. edik eða sítrónusafi Eggjarauður unnar saman í matvinnslu eða hrærivél, olíu hellt rólega út í. Kryddað með sinnepi, salti og pipar ásamt ögn af ediki eða sítrónusafa. Gott er að vinna saman graslauk og olíu í matvinnsluvél og gera heimalagað majónes sem er auðvelt. Það má líka saxa ferskan graslauk úr garðinum og blanda við majónesið. Aðferð Snyrtu nautalundina og skerðu hana í fína teninga. Saxaðu skalotlaukinn, graslaukinn og kapersið fínt. Blandaðu öllu hráefninu saman í skál, bætið í olíu, salti og pipar og dijon sinnepi. Sprautið majónesið ofan á réttinn. Smurbrauð með reyktri bleikju, grænkáli og rjómaosti Hráefni › 4 sneiðar rúgbrauð › 100 g rjómaostur › 200 g reykt bleikja › ½ stk. rauðlaukur, smátt saxaður › 10 stk. kapers › Svartur pipar › Grænkál eða rabarbari › 100 ml repjuolía › 2 tsk. gott edik Skerið brauðið í sneiðar. Setjið rjómaostinn í matvinnsluvél og þeytið hann lítillega (eða notið handþeytara) og setjið svo duglega af honum á brauðið. Sneiðið bleikjuna þunnt og leggið ofan á rjómaostinn. Setjið rauðlauk og kapers yfir og myljið svo svartan pipar ofan á. Veltið grænkáli upp úr smá olíu og ediki og leggið ofan á. Saltið og piprið eftir smekk. Í stað grænkálsins er líka er hægt að kryddleggja ferska borða af nýjum rabarbara. Þá er gott að setja ögn af hunangi til að jafna sýruna í rabarbaranum. MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI Sólbakki Fjölskyldumynd frá 2009.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.