Bændablaðið - 05.06.2014, Síða 51
51
Það getur verið gaman að prjóna eða
hekla fallega púða til að lífga upp á
heimilið eða sumarbústaðinn. Þessi
getur verið eins stór og maður vill, það
hleypur á 11 lykkjum og 14 umferðum sem
maður bætir við þessa uppskrift eins oft
og maður vill.
Stærð: 35x37 cm.
Efni: 3 dokkur Whistler-grænt en það er til
í 7 litum alls sjá www.garn.is.
Prjónar nr. 4,5 eða 5.
Heklunál nr. 5
3 tölur.
Aðferð. Prjónað er fram og til baka ferningar
sem eru 11 lykkjur og 14 umferðir hver.
Púði:
Fitja upp 66 lykkjur.
Prjóna 11 lykkjur slétt og 11 lykkjur brugðið
14 umferðir.
Nú eru prjónaðar 11 lykkjur brugðnar yfir sléttu
lykkjurnar og 11 lykkjur sléttar yfir brugðnu
lykkjurnar 14 umferðir.
Þetta er endurtekið þar til komir eru 12
ferningar á lengdina og stykkið mælist ca
70 cm.
Nú er fellt af.
Hliðarnar eru lagðar saman og heklað fastahekl
gegnum báðar hliðar 1 lykkja í hverja lykkju
allan hringinn nema skilið er eftir op ca 13 sm
á miðri einni hliðinni. Sú hlið sem er heil það er
þarf ekki að hekla saman þar er heklað fastahekl
í hverja lykkju á samskeytum milli brugðins og
slétts fernings .
Best er að byrja við opið og enda hringinn á að
hekla fastahekl meðfram annarri hlið opsins
ca 20 l
Snúa við og hekla 5 l fastahekl 3 ll (
hnappagat) 5 fastalykkjur í næstu 5 l 3 ll 5
l fastahekl, 3 ll 5 l fastahekl. Klippa frá og
ganga frá enda.
Á hinni hlið opsins er heklað fastahekl
í hverja lykkju fram og til baka ca 25
fastalykkjur 4 umferðir.
Klippa og ganga frá. Á þennan flipa eru
festar 3 tölur á móti hnappagötunum.
Nú eru heklaðar tungur allan hringinn
þannig.
1 fastalykkja 6 stuðlar í aðra lykkju frá
fl 1 fastalykkja. Tungurnar eru heklaðar
hringinn.
Passa að hornin verði eins.
Þegar kemur að opinu eru tungurnar
heklaðar meðfram hliðinni sem tölurnar
koma á.
Gengið frá endum og púði með púðafyllingu
settur inn í.
Góða skemmtun. Inga Þyri Kjartansdóttir
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Fallegur púði úr Whistler
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-
þrautirnar er að setja réttar
tölur frá 1-9 í eyðurn ar.
Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og
lóð rétt og heldur ekki innan
hvers reits sem afmarkaður
er af sverari lín um.
Þrautirnar eru miserfiðar,
sú sem er lengst til vinstri er
léttust og sú til hægri þyngst
en sú í miðjunni þar á milli.
Létt ÞungMiðlungs
5 3 7
9 1 2
3 8 9 6
7 8 6 1 2
2 7
2 5
1
5 8
4 6 7 8
8 7 4 9
9
6 3 4
2 4 9 1
1 5 8 7
2 9
3 6 4
5 1 2
9 4 7
1 8 4
2 7
9 6 8
7 3
5 4 1
5 1
6 1 3
8 2 4
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Hafa áhrif um land allt!
Leiðinlegt að taka úr uppþvottavélinni
Haraldur Bolli er 12 ára
Akureyringur sem fílar Kaleo.
Hann man vel eftir því þegar hann
lá sárlasinn á meðan mamma
hans var að fæða Jónatan litla
bróður. Þegar Haraldur Bolli
verður stór ætlar hann að verða
atvinnumaður í fótbolta, nú eða
kokkur.
Nafn: Haraldur Bolli Heimisson.
Aldur: 12 ára.
Stjörnumerki: Fiskur.
Búseta: Akureyri.
Hvað finnst þér skemmtilegast
í skólanum? Myndmennt og
stærðfræði.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Panda.
Uppáhaldsmatur: Humar og sushi.
Uppáhaldshljómsveit: Kaleo.
Uppáhaldskvikmynd: Stepbrothers
og Godzilla.
Fyrsta minning þín? Þegar ég var
veikur með 40 stiga hita og mamma
var að fæða Jónatan bróður minn en
þá var ég sex ára.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi handbolta og
fótbolta.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? Atvinnumaður í
fótbolta eða kokkur.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Þegar ég var sex ára og
keypti mér Þrista á leið í skólann.
Ég borðaði heilan poka á leiðinni,
kennarinn hringdi í mömmu og lét
hana vita, ég var með súkkulaði út
á kinn.
Hvað er það leiðinlegasta
sem þú hefur gert? Taka úr
uppþvottavélinni.
Ætlar þú að gera eitthvað
sérstakt í sumar? Ég ætla á
barnfóstrunámskeið hjá Rauða
krossinum og á Íslandsmót og N1
mót í fótbolta.
PRJÓNAHORNIÐ garn@garn.is
Hnepping.
Takkar.