Bændablaðið - 19.06.2014, Síða 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júní 2014
Fréttir
Nú styttist í mánaðamótin þegar
Landsmót hestamanna á Hellu
verður sett. Hestamenn eru orðnir
uppveðraðir yfir þessari hátíð sem
að jafnaði er haldin annað hvert
ár. Síðast landsmót var haldið í
Reykjavík fyrir tveimur árum við
misjafnar undirtektir en nú fer
það eins og áður segir fram á Hellu
í fimmta sinn en það var síðast
haldið þar árið 2008.
„Ég hef góða tilfinningu fyrir
þessu móti en það er spurning hversu
fjölmennt það verði. Við erum að
vonast til þess að þarna verði að
lágmarki 10.000 manns. Það er hins
vegar ómögulegt að spá í hvernig
það mun verða því veðrið ræður
svo miklu í þessum efnum, sem og
stemmingin sem myndast. Ef það fer
saman, gott veður og góð stemming,
þá getum við endað í góðri aðsókn
og það vonum við auðvitað“, segir
Haraldur Þórarinsson formaður
Landssambands hestamannafélaga.
A-úrslit færð fram á
laugardagskvöld
Spurður hvort hann haldi að eitthvað
sérstakt muni einkenna landsmót nú
nefnir Haraldur mikinn fjölda hrossa
í kynbótasýningu. „Mér sýnist
að það sé að koma mikill fjöldi
kynbótahrossa til endurdóms. Það
er hugsanlega vísbending um að það
sé slök sala á hrossum núna og menn
séu að koma með hross í dóm til að
hækka þau og gera söluvænlegri.
Þá sýnist mér að það verði óhemju
spenna í kringum A-flokkinn í ár.
Það eru komnir inn feikilega sterkir
hestar í þann flokk núna. Við erum
líka búin að færa úrslitin í A-flokki
á laugardagskvöldið, þetta hefur
yfirleitt verið endapunkturinn
á mótinu á sunnudegi, en
nú verður þetta hápunktur
laugardagskvöldsins ásamt
töltkeppninni. Ég held að það megi
bara enginn missa af þessu. Þetta
verður algjör veisla.“
Aðspurður segir Haraldur að
hann hafi þó ekki áhyggjur af því
að minni stemming verði á lokadegi
landsmóts þrátt fyrir að búið sé að
færa úrslit í A-flokki. „Ég held að
þegar menn verði komnir á mótið
muni þeir horfa á úrslit í B-flokki
líka. Sá flokkur hefur verið mjög
sterkur undanfarin mót og það er
mikil eftirvænting eftir honum.
Fjórgangshestar eru mjög vinsælir
í sölu og það er mikil eftirspurn eftir
þeim og ég held að það verði mjög
mikil spenna varðandi þá keppni.“
Haraldur segist mjög spenntur, líkt
og venjulega, fyrir því að fylgjast
með ungu stóðhestunum. „Það er
alltaf gaman að horfa á og spá í
framfarirnar í greininni og það
er ekki síst greinanlegt í þessum
flokkum.“
Viljum sjá sem frjálsasta hesta
Eins og þekkt er tók stjórn
Landssambands hestamannafélaga
ákvörðun um að banna notkun
tungubogaméla með vogarafli í
keppnum á vegum sambandsins.
Haraldur segir að hann eigi ekki
von á að það bann muni hafa áhrif á
frammistöðu á mótinu. „Ef eitthvað
er þá eigum við bara eftir að sjá betri
eðlisgæðinga á mótinu. Þeir hestar
sem við munum sjá ná árangri þarna
eru bara virkilegir gæðingar. Við
höfum kennt íslenska hestinn við
frjálst fas og fleira og við ættum
bara að vilja sjá hestana með sem
frjálsastan búnað en ekki búnað
sem er notaður til að þvinga fram
óeðlilegan fótaburð og höfuðburð.“
Ánægja með beinar útsendingar
Samningar um beinar útsendingar
frá mótinu náðust við Ríkisútvarpið
og fagnar Haraldur því. „Það hafa
verið skiptar skoðanir um hvort
við eigum að senda út frá þessum
mótum en ég er sannfærður um að
svo sé. Þeir sem geta mætt, þeir
mæta. Þeir sem ekki geta komist
á svæðið af einhverjum ástæðum
geta þá notið þess að horfa á í
sjónvarpinu. Ég held að partur af
því að efla hestamennskuna hljóti
að felast í því að auka aðgengi að
henni með sem mestum hætti.“
/fr
Laugardagskvöldið verður mikil veisla
– Landsmót hestamanna á Hellu hefst 30. júní
Skógardagurinn mikli
í Hallormsstaðaskógi
– Dúkkulísurnar snúa aftur í skóginn eftir 30 ár
Skógardagur inn mik l i
verður haldinn í tíunda
sinn í Hallormsstaðaskógi
laugardaginn 21. júní. Dagskráin
er margbreytileg að venju.
Hin fornfræga hljómsveit
Dúkkulísurnar stígur á svið, en
nú eru 30 ár liðin frá því að sveitin
stóð á sviði í Hallormsstaðaskógi
síðast. Svo er spurning hvort
skógarhöggsmenn á Austurlandi
ná Íslandsmeistaratitlinum í
skógarhöggi aftur austur.
Dagskráin hefst reyndar kvöldið
áður, föstudagskvöldið 20. júní,
þegar Landssamtök sauðfjárbænda
og sauðfjárbændur á Austurlandi
bjóða til veislu í Mörkinni á
Hallormsstað. Þar verður grillað
lambakjöt og tónlistarfólk skemmtir
gestum á sviði.
Um hádegi á laugardag hefst
svo sjálfur Skógardagurinn mikli
með Skógarhlaupinu þar sem
hlaupnir verða 14 kílómetrar um
skógarstíga. Skráning hefst kl. 11
en ræst verður kl. 12. Einnig er í
boði skemmtiskokk, 4 km hlaup
fyrir alla, sem ræst verður kl. 12.15.
Íslandsmeistaramót í skógarhöggi
Formleg dagskrá hefst síðan
klukkan 13 í Mörkinni Hallormsstað
með Íslandsmeistaramótinu í
skógarhöggi. Þar er heitasta
spurningin hvort hraustir
skógarhöggsmenn eystra ná titlinum
aftur austur, en sigurvegari í fyrra
var Örn Arnarson, sem keppti fyrir
Skógrækt ríkisins á Suðurlandi.
Skógar- og nautabændur bjóða
upp á heilgrillað naut og með
því, grillaðar verða pylsur en
líka soðið ketilkaffi og steiktar
lummur að hætti skógarmanna.
Af skemmtiatriðum má nefna
Héraðsdætur og Liljurnar, Pjakk
og Petru og hestaleiguna á
Hallormsstað sem sér um að teyma
undir börnum svo eitthvað sé nefnt.
Skógardagurinn mikli
er samvinnuverkefni Skóg-
ræktar ríkisins, Héraðs- og
Austurlandsskóga, Félags
skógarbænda á Austurlandi, Barra
gróðrarstöðvar og Skógræktarfélags
Austurlands. /MÞÞ
Stefnir í met í kynbótasýningum
Arion frá Eystra-Fróðholti með næsthæstu einkunn sem náðst hefur
Mikil spenna ríkir fyrir
kynbótasýningar á Landsmótinu á
Hellu sem hefst um mánaðamótin.
Sýningar vorsins fóru fremur
rólega af stað en það breyttist
heldur betur og gera má ráð fyrir
glæsilegum kynbótasýningum á
mótinu. Um 80 hross hafa í vor
náð 8,50 eða hærra í einkunn fyrir
hæfileika og þar af fóru 11 hross
yfir 8,80 í einkunn. Þá stefnir í
metfjölda í kynbótasýningum á
Hellu.
Eyþór Einarsson, ráðunautur hjá
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins,
mun sinna störfum yfirdómara
í kynbótadómum á komandi
Landsmóti hestamanna. „Það stefnir
allt í mjög sterka kynbótasýningu
á landsmóti og mjög fjölmenna,
líklega verður met slegið í fjölda
kynbótahrossa. Alls hafa 281 hross
náð lágmarkseinkunn inn á mótið,
101 stóðhestur og 180 hryssur.
Auðvitað falla alltaf einhver hross
út af ýmsum ástæðum, meðal annars
vegna þess að þeim verður teflt fram
í gæðingakeppninni. Það má samt
búast við að flest þau hross sem náð
hafa lágmarkseinkunn mæti til dóms
nú. Mestur fjöldi kynbótahrossa sem
hafa komið til dóms á landsmóti var
á mótinu á Hellu árið 2004 en þá
voru sýnd 244 hross. Ég býst við því
að það met verði slegið nú.“
Eyþór segir skýringar á
þessari fjölgun geta verið ýmsar,
meðal annars hafi nú verið sett
lægri lágmörk fyrir klárhross en
alhliðahross. „Síðan má nú bara
ætla að ræktunin sé að skila árangri
og góðum hrossum sé einfaldlega
að fjölga.“
Hæst dæmda hrossið eftir
kynbótasýningar vorsins er Arion frá
Eystra-Fróðholti, 7 vetra gamall klár
undan Glettu og Sæ frá Bakkakoti.
Arion hlaut 8,91 í aðaleinkunn og 9,25
fyrir hæfileika. Aðeins einn hestur
hefur áður hlotið hærri dóm en það
er gæðingurinn Spuni frá Vesturkoti
sem á sínum tíma hlaut einni kommu
hærri aðaleinkunn eða 8,92 og sömu
einkunn og Arion fyrir hæfileika.
Daníel með 33 hross
Sýnandi Arions er Daníel Jónsson
sem mun hafa í nægu að snúast á
mótinu en hann sýnir 33 hross.
Þó er ekki útilokað að einhverjar
breytingar verði á mótinu sjálfu hvað
varðar knapa því auðvitað er mikið
lagt á menn að sýna slíkan fjölda.
Ekki liggur fyrir að svo stöddu
hvaða hestar verða sýndir með
afkvæmum á mótinu að sögn
Eyþórs. „Nú verður kynbótamatið
uppreiknað eftir dóma vorsins og
að því loknu verður spennandi að
sjá hvaða hestar ná lágmörkum
þar og hvernig þeir raðast til fyrstu
verðlauna og heiðursverðlauna fyrir
afkvæmi.“ /fr
Haraldur Þórarinsson
Mynd / HKr.
Mynd / HHG
Nýr formaður norsku bændasamtakanna
Lars Petter Bartnes var
kjörinn nýr formaður norsku
bændasamtakanna, Norges
bondelag, á ársfundi samtakanna
sem fór fram í byrjun mánaðarins
í Lillehammer. Hann tók við af
Nils T. Bjørke, sem er íslenskum
bændum að góðu kunnur.
Lars er 45 ára gamall kúbóndi
sem stundar einnig nautaaeldi,
kjúklingaeldi og kornrækt. Hann sat
í stjórn samtakanna á árunum 2008
til 2013 og hefur einnig setið í stjórn
Nortura, sem er afurðfyrirtæki með
kjöt og egg, frá árinu 2004. Bartnes
er menntaður búfræðikandidat og býr
í Steinkjer í Norður-Þrændalögum.
Bartnes þakkaði fráfarandi stjórn
fyrir hennar góða starf. „Ég ætla
mér að vinna áfram að því að halda
Norges bondelag sem sterkum og
skipulögðum samtökum,“ sagði
hann í þakkarræðu.
Kristin Ianssen og Brita Skallerud
voru endurkjörnar sem 1. og 2.
varaformaður samtakanna. Kristin
mun þar með hefja annað starfsár sitt
en Brita hefur setið í fjögur ár. /fr
Mynd / NB
Skinnaverð hélt áfram að
lækka við upphaf júníuppboðs
Kopenhagen Fur uppboðshússins
sem hófst á þjóðhátíðardaginn. Á
þessu uppboði má gera ráð fyrir
að um 45.000 íslensk skinn verði
boðin upp, eða á milli 25 til 30
prósent af íslensku framleiðslunni
að sögn Einars Einarssonar
loðdýraræktarráðunauts.
„Þetta er öll flóran, allir litir og
allar tegundir. Skinn hafa lækkað
á síðustu uppboðum, í Toronto í
Kanada og í Helsinki, um 20 til 25
prósent. Það sem búið er að selja
það sem af er uppboðinu núna hefur
fallið um 9 til 18 prósent.“
Það þýðir að sögn Einars að
skinnaverð er komið talsvert undir
framleiðslukostnað. „Ef við gefum
okkur að botninum sé náð núna þá
gæti meðalverð fyrir árið endað í
4.500 til 5.000 krónum á meðan að
framleiðslukostnaðurinn er 7.000
krónur.“
Einar segir þó að þessi lækkun
eigi ekki að vera áhyggjuefni fyrir
íslenska minkabændur, ekki að svo
stöddu. „Þetta er bara eins og þessi
bransi er og menn standa þetta af sér.
Áhyggjuefnið í mínum huga er fyrst
og fremst framleiðslukostnaðurinn.
Hann hefur hækkað óhemjumikið
síðustu ár og við stöndum orðið
bara jafnfætis eða erum með hærri
kostnað en í nágrannalöndunum.
Við verðum að bregðast við þessari
þenslu í þjóðfélaginu sem veldur
þessu ef ekki á illa að fara, bæði í
okkar geira og annars staðar.“
/fr
Minkaskinn lækka enn í verði
– ekki áhyggjuefni að svo stöddu segir ráðunautur
Mynd / HKr.