Bændablaðið - 19.06.2014, Síða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júní 2014
Fréttir
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins býður heildstæða ráðgjöf í jarðrækt
Betri ræktun – auknar afurðir
Banaslys verða oftast við bestu aðstæður
Flest banaslys verða á vegum í
dreifbýli með hámarkshraða 90
km/klst. og við góðar aðstæður,
þ.e. í björtu og á þurrum vegi.
Þetta kemur fram í gögnum frá
Rannsóknarnefnd samgönguslysa.
Vegfarendur ættu að hafa þetta
ofarlega í huga í byrjun sumars
þegar bílum fjölgar ört á þjóðvegum
landsins. Munið að eftir því sem
hraðinn er meiri, þeim mun alvarlegri
verða slysin.
Heilbrigðiseftirlit Austurlands stöðvaði
á sumardaginn fyrsta matreiðslu á
innfluttu nautakjöti í mötuneyti Alcoa
Fjarðaáls á Reyðarfirði. Í ljós kom að
kjötinu sem hafði verið flutt hingað
til lands sem frosið, eins og reglur
kveða á um, hafði í upphafi verið
pakkað í Ástralíu sem fersku kjöti.
Tveimur dögum áður en geymsluþol
kjötsins átti að renna út, samkvæmt
stimpli, var það fryst, því gefið nýr
geymsluþolsstimpill og það flutt til
Íslands.
Komið hefur fram að kjötið stóðst
salmonellupróf og það var frosið í
tilskilda 30 daga áður en það var flutt
til landsins. Því var ekki óheimilt
að flytja það hingað. Aftur á móti
taldi Heilbrigðiseftirlit Austurlands
óheimilt að gefa kjötinu nýjan
geymsluþolsstimpil og stöðvaði
því matreiðslu á því. Við þetta er
innflytjandinn, Sælkeradreifing,
mjög ósáttur, telur sig ekki hafa
brotið nein lög og hyggst leita réttar
síns.
Bændablaðið sendi fyrirspurn
um málið til Matvælastofnunar,
sem var svarað af Viktori Pálssyni,
forstöðumanni lögfræðisviðs. Í
svarinu kemur fram að samkvæmt
reglugerð um merkingu matvæla
sé óheimilt að gera breytingar á
merkingum geymsluskilyrða og
geymsluþols á umbúðum matvæla.
Um er að ræða landsreglu á Íslandi
sem gengur lengra en löggjöf
Evrópusambandsins.
Hins vegar kemur einnig fram í
svarinu að unnið sé að innleiðingu
Evrópureglugerðar sem koma muni í
staðinn fyrir reglugerð um merkingu
matvæla. Með þeirri innleiðingu
muni koma fram nýjar reglur sem
hafi áhrif á heimildir fyrirtækja
til að endurmerkja matvæli. Með
þeim reglum verður heimilt að
endurmerkja kjöt og gefa því nýtt
geymsluþol, svo framarlega sem
neytendur séu upplýstir um slíkt
og að það komi ekki niður á öryggi
matvælanna. /fr
Innflutningur á gömlu kjöti frá Ástralíu vekur spurningar
Óheimilt að gefa kjöti nýjar geymsluþolsmerkingar
28% 72%
Þéttbýli Dreifbýli
Staðsetning banaslysa í umferðinni.
123%
121%
119%
100%
34%
28%
35%
38%
58%
73%
77%
89%
93%
108%
117%
130%
135%
135%
168%
172%
183%
190%
216%
216%
218%
252%
293%
50% 0% 50% 100% 150% 200% 250% 300%
Aðrar innlendar vörur án grænmetis
Aðrar innlendar mat og drykkjarvörur
Innfluttar mat og drykkjarvörur
Búvörur án grænmetis
Tómatar, kg
Rjómasúkkulaði, 100 g
Heill frosinn kjúklingur, kg
Grænmeti (innlent og innflutt)
Agúrkur, kg
Rjómi, l
Lambakjöt, læri, kg
Nautakjöt, hakkað, kg
Egg, kg
Mjólkurostur, Gouda 17% kg
Svínakjöt, læri með beini, kg
Coca Cola, 50 cl. Dós
Vísitala neysluverðs
Bíómiði á venjulega sýningu
Skyr, kg
Haframjöl, kg
Gallabuxur á fullorðinn
Sokkabuxur á konur, stk
Hangikjöt, læri úrbeinað kg
Saltfiskur, kg
Vínarbrauð 1 stk
Ýsuflök, fersk, kg
Strætisvagnaferð barna í Rvk (m. afsl.)
Súluritið sýnir verðþróun frá 1997 til 2014. Heimild: Hagstofa Íslands
Verðþróun á ýmsum vörum
Gallabuxur hafa hækkað í verði
um 183% á síðustu 17 árum
Hagstofa Íslands birtir á þriggja
mánaða fresti verð á ýmsum
algengum neysluvörum. Á
listanum kennir ýmissa grasa
en þar er meðal annars að finna
algengar matvörur, fatnað og verð
á þjónustu. Á vef Hagstofunnar
er að finna samfellda talnaröð frá
árinu 1997.
Meðfylgjandi mynd sýnir
verðþróun á nokkrum völdum vörum
frá maí 1997 til maí 2014. Á þeim
tíma hækkaði vísitala neysluverðs
um 135%. Dæmi um vöru sem
hækkaði nákvæmlega jafn mikið á
sama tíma er bíómiði á venjulega
sýningu, úr 559 kr. í 1.299 kr. Mest
hefur strásykur hækkað, úr 98 kr./
kg í 400 kr./kg, eða um 308%.
Strætisvagnafargjald fyrir börn
hækkaði á sama tíma um 293% og
fersk ýsuflök um 252%. Fatnaður
hefur einnig hækkað mikið í verði,
t.d. hefur verð á gallabuxum hækkað
um 183%. Innfluttar matvörur
hækkuðu um 119% á tímabilinu en
búvörur hins vegar um 100%. Sem
dæmi hækkaði verð á 17% osti um
108%, eggjum um 93% og á heilum
frosnum kjúklingi um 35%. Á hinn
bóginn hefur verð á tómötum lækkað
um 34%. Miklar framfarir hafa
einmitt orðið í garðyrkjunni, með
lýsingu árið um kring hefur nýting
á ræktunarfleti hvers bús stóraukist
ásamt aukinni fjölbreytni í ræktun.
Þessar tölur sýna svo ekki verður
um villst að innlendar búvörur hafa
hækkað mun minna en almennt
verðlag síðustu 17 árin, líka þær sem
nota mikið af innfluttum hráefnum
og innlent vinnuafl eins og t.d.
alifuglaafurðir. Þá ályktun má draga
að mikil hagræðing og framfarir hafi
orðið í landbúnaði á þessu tímabili.
/EB
Hinn 16. júní hófst móttaka pantana
fyrir sauðfjárskoðun komandi
hausts hjá Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins. Eftirfarandi
punktar eru til upplýsinga um
fyrirkomulagið:
Hægt er panta skoðun inni
á vefnum www.rml.is eða hafa
samband við RML 516-5000.
Pantanir sem berast fyrir 15.
ágúst eru forgangspantanir. Reynt
verður eftir fremsta megni að
verða við óskum þeirra sem panta
fyrir þennan tíma en með skýrum
fyrirvara um að raunhæft sé að láta
það ganga upp gagnvart skipulaginu.
Við skipulagningu þarf að reyna að
sameina tvö sjónarmið, annars vegar
að geta komið sem best til móts
við óskir bænda og hins vegar að
framkvæmdin sé sem hagkvæmust
og ferðakostnaður sem minnstur. Það
er hagsmunamál, bæði fyrir bændur
og RML, að hægt sé að halda niðri
heildarkostnaði við verkefnið.
Í vikunni 18. til 22. ágúst verður
gefin út dagskrá á vef RML sem
byggir á þeim pöntum sem komnar
eru og þar með línur lagðar
varðandi skipulagið, þ.e. á hvaða
dögum ráðunautar eru á ferðinni
á einstökum svæðum og hvar eru
laus pláss.
Lagt er upp með að
skoðunartímabilið sé frá 1.
september til 17. október. Þeir sem
panta utan þess tíma gætu þurfa að
greiða 50% álag ofan á tímagjaldið,
ef ekki næst að fylla á dagana á
viðkomandi svæði.
Skoðunargjaldið er 5.000 kr.
á klukkustund á hvern ráðunaut/
mælingamann auk þess sem
innheimt er komugjald upp á 5.000
kr. fyrir hvern bæ/stað sem farið er
á.
Bændur er hvattir til þess að
panta tímanlega og skoða lömbin
sem fyrst eftir að þau koma af fjalli.
/Eyþór Einarsson
Móttaka hafin á pöntunum vegna sauðfjárskoðunar 2014
Rjúpnatalningar Náttúru-
fræðistofnunar Íslands vorið
2014 sýna fjölgun víða um land.
Samandregið fyrir öll talningasvæði
var meðalfjölgun rjúpna 41% á
milli áranna 2013 og 2014.
Þetta er í samræmi við niðurstöðu
rjúpnatalninga vorið 2013, en þær
sýndu að fækkunarskeið sem hófst
2009-2010 lauk eftir aðeins tvö til þrjú
ár. Þetta er óvanalegt þar sem fyrri
fækkunarskeið hafa varað í 5 til 8 ár og
samkvæmt því átti næsta lágmark að
vera á árunum 2015 til 2018. Fjölgun í
rjúpnastofninum á árunum 2013-2014
er mismikil eftir landshlutum.
Rjúpum fjölgaði mest á
Suðvesturlandi, Norðausturlandi og
Austurlandi en á Norðvesturlandi
og Suðurlandi var fækkun eða
kyrrstaða. Í sögulegu samhengi er
langt í land með að rjúpnastofninn
hafi náð fyrri hæðum. Mat á veiðiþoli
rjúpnastofnsins og nánari greining á
ástæðum fjölgunar munu liggja fyrir
í ágúst í kjölfar mælinga á varpárangri
rjúpna, afföllum 2013 til 2014 og veiði
2013.
Rjúpnastofninn styrkist
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
hefur nú kynnt nokkra
ráðgjafarpakka til sögunnar.
Einn þeirra er „Sprotinn“ sem er
ráðgjafarpakki í jarðrækt.
Hann inniheldur heildstæða
ráðgjöf í jarðrækt, aðstoð við
jarðræktarskýrsluhald í jörð.is,
viðhald og lagfæringu túnakorta,
úttekt á ástandi ræktarlands,
áburðaráætlun og ýmislegt
fleira. Nánari upplýsingar um
ráðgjafarpakka RML er að finna á
vefnum rml.is.
Heysýnatökur og
jarðvegsefnagreiningar
Nú þegar sumir bændur eru að
ljúka við að bera á síðustu túnin
en aðrir að hefja slátt er upplagt
að skrá áburðarnotkun vorsins í
jarðræktarforritið Jörð.is. Aðstoð
við þá skráningu er meðal annars
innifalin í Sprotanum. Jafnframt
er nú rétti tíminn til að huga
að skipulagi heysýnatöku í
sumar eða haust og íhuga þörf á
jarðvegssýnatöku. Niðurstöður
efnagreininga á heyi og jarðvegi
eru mikilvæg hjálpartæki við
bústjórn en sýnatakan þarf að vera
vel skipulögð og markviss.
Nánari upplýsingar um Sprotann
gefur Sigurður Jarlsson, netfang
sj@rml.is, símar 516-5042 og 892
0631.
Kjöt. Mynd / ÁÞ
Plægt að vori. Mynd / ÁÞ
Elsta sundlaug landsins opnuð á ný á Flúðum
Systkinin Halldór Fjalar og Þórey Þula í „gömlu lauginni“. Mynd og texti / MHH
Gamla laugin, eins og hún er kölluð,
er sundlaugin í Hverahólmanum
nálægt Flúðum. Hún var gerð
árið 1891 og telst elsta sundlaug
á Íslandi.
Talið er að þar hafi verið
baðstaður í aldaraðir, en laugin var
í landi Grafar þar sem þingstaður
Hrunamannahrepps var til ársins
1894. Árið 1909 var fyrst haldið
sundnámskeið í lauginni og síðan
árlega til ársins 1947 þegar farið var
að nota sundlaugina á Flúðum til
kennslu. Notkun laugarinnar lagðist
þá af en nú hefur hún verið endurgerð
og tekin í notkun á ný með nýrri og
glæsilegri búningsaðstöðu.
Opið er alla daga vikunnar frá kl.
12-22. Veffang er gamlalaugin.is.