Bændablaðið - 19.06.2014, Side 10

Bændablaðið - 19.06.2014, Side 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júní 2014 Fréttir Áburðarpoki Ekki er gert ráð fyrir auknu eftirliti í breytingum á lögum. Þar eru þó ákvæði um aukna ábyrgð fyrirtækja og hert refsiákvæði. Hert lög um fóður og áburð Á vordögum samþykkti Alþingi breytingar á lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Breytingarnar fela meðal annars í sér aukna ábyrgð framleiðenda og bætt þvingunarúrræði Matvælastofnunar. Valgeir Bjarnason, fagsviðsstjóri matvælaöryggis- og neytendamála hjá Matvælastofnun, segir að um viðbót sé að ræða sem herði frekar á ábyrgð fyrirtækja sem framleiða eða flytja inn þessar vörur. Í þessum lögum eru skýrari ákvæði en fyrr um ábyrgð fyrirtækjanna á að efnainnihald og eiginleikar vörunnar séu í samræmi við innihaldslýsingar og leiðbeiningar. Framleiðsla lyfjablandaðs fóðurs háð leyfi Matvælastofnunar „Í lögunum eru ákvæði um tilkynningarskyldu fyrirtækjanna til Matvælastofnunar ef örverur greinast í framleiðsluumhverfinu til dæmis í húsnæði eða á búnaði, áður náði þessi skylda einungis ef örverur greindust í fóðri eða í vinnslurás. Það eru líka ákvæði um framleiðslu lyfjablandaðs fóðurs, komi til þess að slíkt sé nauðsynlegt. Er nú framleiðsla á slíku fóðri háð leyfi frá Matvælastofnun. Með nýju lögunum bera áburðarfyrirtæki og stjórnendur þeirra nú hliðstæða ábyrgð á framleiðslu og söluvöru sinni og fóðurfyrirtæki. Þar er átt við ábyrgð á efnainnihaldi og öryggi áburðarins sem fyrirtækið framleiðir eða dreifir til notenda. Þar koma inn ákvæði um innköllun áburðar sé hann talinn geta valdið hættu fyrir heilsu dýra og manna eða orðið þess valdandi að matjurtir eða dýraafurðir verði óhæfar til neyslu. Þessi ákvæði ná til alls áburðar hvort sem hann er innfluttur eða framleiddur hérlendis, sömuleiðis hvort hann er tilbúinn steinefnaáburður eða lífrænn – eins og molta, melta eða kjötmjöl,“ segir Valgeir. Hert refsiákvæði „Í þessum nýju lögum eru einnig hert á refsiákvæði um heimild til stjórnvaldssekta og annarra refsinga fari fyrirtæki ekki samkvæmt þessum lögum og eru þessi atriði tilgreind sérstaklega. Brot geta einnig verið kærð til lögreglu og skulu meiri háttar brot fara þá leið. Nú eru komin í lög skýrari þvingunarúrræði gagnvart brotum. Hingað til hefur Matvælastofnun ekki haft ótvíræð ákvæði varðandi refsingar þegar fyrirtæki uppfylla ekki kröfur í löggjöf. Þau úrræði sem hafa verið til dæmis varðandi þessar vörur er að taka þær af skrá stofnunarinnar, þannig að ef fyrirtæki ætli að flytja sömu vöru inn aftur verður að endurskrá hana og síðan er dreifing hennar ekki heimil fyrr en að lokinni sýnatöku og efnagreiningum – og þær mælingar þurfa svo auðvitað að standast kröfur.“ Að sögn Valgeirs gera þessi nýju ákvæði ekki ráð fyrir auknu eftirliti Matvælastofnunar, en gefa stofnuninni fyrst og fremst aukin þvingunarúrræði við brotum. /smh Kúabændur á Suðurlandi ánægðir með grassprettuna: „Sláttur svona snemma er ávísun á tvo eða jafnvel þrjá slætti í góðri tíð“ – segir Valdimar Guðjónsson, formaður kúabænda á Suðurlandi Kúabændur á Suðurlandi eins og víðast hvar annarsstaðar á landinu eru ánægðir með grassprettuna þar sem af er sumri en margir byrjuðu að slá í byrjun júní, sem eru viku til hálfum mánuði fyrr en fyrir ári síðan en mjög gott vor hjálpar mikið til. „Grassprettan á bestu spildum virðist með ágætum. Það er viss léttir á þessu svæði því aðeins er kal hér í túnum. Langt er síðan borið hefur á því hér um slóðir, eða tæp 20 ár. Ég veit dæmi þess að plægt var upp 9 hektara tún á einum bæ hér í nágrenninu vegna þessa. En almennt mun góð spretta vonandi bæta upp dauða bletti í sumum spildum þannig að menn fái næg hey. Eins er sláttur svona snemma ávísun á tvo eða jafnvel þrjá slætti í góðri tíð. Hér á Suðurlandi er kalið misjafnt milli svæða en nokkuð ber á þessu víðar en í Flóanum. Lítið sem ekkert t.d. efst í uppsveitunum og eins þegar austar dregur, segir Valdimar Guðjónsson, kúabóndi í Gaulverjabæ og formaður Félags kúabænda á Suðurlandi þegar hann var spurður út í grassprettuna. „Mér heyrist heyskapur fara vel af stað hér á Suðurlandi. ég veit jafnvel af einum bæ hér fyrir austan mig í Rangárþingi þar sem fyrsta slætti er lokið takk fyrir. En almennt eru menn að sigla af stað. Sé komin næg spretta, þurrkur eða þurrt á, eru bændur snöggir að ljúka heyskapnum með sífellt afkastameiri tækjum,“ bætti Valdimar við. Gæði heysins Valdimar er spurður um gæði heysins. „Þau eru vel viðunandi, enn sem komið er. Sprettan er þó óvenju snemma þetta vorið. Nú mega líka máttarvöldin fljótlega fara að dempa sig í útdeilingu vætu hér sunnan heiða. Ég hitti fyrrverandi kennara á Hvanneyri og hann rifjaði upp að í sínum fræðum fyrir fáeinum áratugum var talað um skrið á vallarfoxgrasi svona viku af júlí. Til samanburðar þá virðist slíkt vera að gerast eftir örfáa daga nú í júní. Eftir skrið minnkar hratt krafturinn í grasinu og eftirsóknarverðast er að ná grasinu á blaðstigi fyrir hámjólka kýr.“ Valdimar segir það skipta mjög miklu máli að ná kröftugum heyjum fyrir kúabændur, ekki síst nú við þessar aðstæður þegar vörur þeirra seljast sem aldrei fyrr. Þakklátir neytendum „Það er ágætt hljóð í kúabændum, fæstir af okkur sem nú stundum þetta stranga, 365 daga starf, á stöðugri vakt, höfum upplifað svona tíma. Er á meðan er, allavega. Við erum þakklátir íslenskum neytendum fyrir tryggð við okkar vörur. Eins eru 100.000 fleiri munnar í mat hérlendis en í fyrra, og munar um minna,“ segir Valdimar þegar hann var spurður út í hljóðið í kúabændum í upphafi sumars. Þegar hann talar um 100.000 fleiri munna er hann að vísa í erlendu ferðamennina. Kúabændur í framkvæmdahug Margir kúabændur eru að stækka fjós sín eða jafnvel að byggja ný til að mæta mikilli eftirspurn eftir mjólkurafurðum. Þetta þekkir Valdimar. „Já, hér í nágrenni við mig er nokkur framkvæmdahugur. Nýtt kúafjós fyrir mjaltaþjón að rísa á bænum Smjördölum en það er límtréshús með áburðarkjallara. Einnig er verið að byrja að byggja í nágrenni við mig nýjar viðbyggingar við eldri fjós til að bæta og auka uppeldisaðstöðu. Síðan er hugur í mönnum austur í Rangárþingi sem er bara gott mál.“ Áhyggjur af nautakjötinu Valdimar var að lokum spurður hvort það væri eitthvað sérstakt að plaga kúabændur þessi misseri. „Já, áhyggjuefnið er staðan í framleiðslu nautakjöts. Það er auðvitað afleit staða að ná engan veginn að anna innlendri eftirspurn. Nú sem af er ári telst búið að flytja inn kjöt fyrir á þriðja hundrað milljónir. Ég hefði viljað sjá þær krónur og þessa aukningu frekar fara í sveitir landsins og inn í okkar atvinnuveg,“ sagði kúabóndinn í Gaulverjabæ í Flóa. /MHH Sláttur með fyrra fallinu norðan heiða „Heyskapur fer mjög vel af stað, hann byrjaði almennt nokkuð snemma og í heild sýnist mér að útlitið sér gott og er bara nokkuð bjartsýnn á að heyfengur verði góður,“ segir Sigurgeir Hreinsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Eyjafjarðar. S l á t t u r hófst víða með fyrra fallinu, fyrstu vikuna í júní voru þó nokkuð margir kúabændur í Eyjafjarðar- sveit þegar farnir að slá. Sigurgeir segir að menn hafi ef svo má segja stokkið af stað þegbar fáir dagar voru liðnir af júní mánuði og það þykir bara ágætt að geta byrjað svo snemma. „Stór hluti kúabænda frammi í Eyjafirði byrjuðu slátt á þeim tíma, en auðvitað er nokkuð misjafnt milli svæða hvenær hægt er að byrja,“ segir hann. Þeir sem búa við utanverðan Eyjafjörð hefjast handa mun síðar, en eru að sögn Sigurgeirs í startholunum, tilbúnir um leið og grasið er mátulega sprottið. Kal á einstaka bæjum Nokkuð var um kal í túnum á einstaka bæ í byggðalaginu, m.a. í Hörgár dal og Öxndal og eins við utanverðan fjörðinn og inn í Svarfaðardal. Þar virðist lega túna skipta máli, en á liðnum vetri var gjarnan snjókoma til fjalla, slydda niðri í byggð og eins konar krapi þar á milli. Tún sem staðsett eru á þessu millibilssvæði voru líklegust til að skemmast af völdum kals. Hann segir að heyskapur gangi yfirleitt hratt og vel fyrir sig þegar hann hefst, enda búi flestir með góð tæki og tól nú til dags. Fyrr á ferðinni en í meðalári Í Suður-Þingeyjarsýslu hóf Sigurður Hálfdánarson bóndi á Hjarðarbóli í Aðaldal slátt 11. júní sl. fyrstur bænda í Þingeyjarsýslu. Fleiri fylgdu fljótt í hans fótspor að því er fram kemur á vefnum 641.is, en þar eru nefndir til sögunnar Marteinn á Kvíabóli sem hóf heyskap fyrir síðustu helgi og Sveinbjörn Sigurðsson á Búvöllum hefur slátt á laugardag. Guðný Gestsdóttir og Aðalgeir Karlsson bændur í Múla 2 í Aðaldal hófu einnig slátt fyrir helgi og man Guðný ekki til þess að sláttur hafi verið hafinn svona snemma áður. Að sögn Guðnýjar var komið nægt gras á túnin og horfurnar góðar. Nefnt er á vefsíðunni að tíðarfarið hafi verið með eindæmum hagstætt væri líklegt að flestir bændur hefji slátt mun fyrr en í meðalári. /MÞÞ Sigurgeir Hreinsson Valdimar að slá eitt af túnunum heima í Gaulverjabæ í Flóa. Valdimar segir að framkvæmdahugur sé í kúabændum á Suðurlandi en hann hefur áhyggjur af stöðunni í framleiðslu nautakjöts. Hér má sjá dæmi um slæma kalbletti í túni fyrr í vor í Flóanum, en slíkt hefur ekki sést í tæplega 20 ár.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.