Bændablaðið - 19.06.2014, Qupperneq 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júní 2014
Matarmarkaður og matarkeppni
Rabarbarahátíð í Reykholti
Rabarbaranum verður gert
hátt undir höfði í Reykholti
laugardaginn 21. júní á fyrsta
sveitamarkaði sumarsins
í Borgarfirði. Þar verður
haldin Rabarbarahátíð
sem er samstarfsverkefni
Framfarafélags Borgfirðinga,
Búdrýginda og Saga Geopark.
Borgfirðingar eru hvattir að huga
vel að rabarbaranum sínum þessa
dagana og grúska í uppskriftum
því að einn stór liður í dagskránni
verður matarkeppni. Dómnefnd
verður skipuð valinkunnum og
þjóðþekktum matgæðingum,
m.a. frá kokkalandsliði Íslands.
Bryndís Geirsdóttir, sem er einn
skipuleggjenda, segir að hátíðin í
ár verði stærri og umfangsmeiri
en áður. „Snorri Sturluson mun
hafa yfirsýn yfir gleðina því
þetta fer allt fram á flötinni fyrir
framan gamla Héraðsskólann
og í konungslundinum. Þá geta
krakkarnir skoppað í skóginum og
þeir á kaffidrykkjualdrinum notið
ketilkaffis hjá skógarbændum á
konungsflöt,“ segir Bryndís.
Hún segir að markaðir
Framfarafélagsins hafi verið
haldnir um nokkurra ára skeið.
„Rabarbarahátíðin er nýbreytni
til að poppa upp hefðbundinn
sveitamarkað, hún verður á
fyrsta markaði sumarsins af
þremur. Hún er skemmtilegt
tækifæri á að gera fyrstu afurðum
náttúrunnar hátt undir höfði
þessa ágætu Jónsmessuhelgi.
Þó að rabarbaranum sé veitt
sérstök athygli er hátíðin einnig
venjulegur sveitamarkaður og
áhugasamir eru hvattir til að hafa
samband þó að þeir vinni ekki með
rabarbara.“
Keppa um frambærilegustu
vöruna
Viðfangsefni keppninnar er
Rabarbari og keppt er í þremur
flokkum:
1. Sultun
2. Bakkelsi
3. Frjálsri aðferð
Veitt verða sérstök verðlaun
fyrir frambærilegustu vöruna,
þá afurð sem hefur kosti til
að fara í vöruþróunarferli til
markaðssetningar. Sá sem
þau hlýtur fær fjóra daga í
Matarsmiðjunni í Borgarnesi og
hönnunaraðstoð að launum.
Dómnefndin metur afurðirnar
með blindsmökkun og því eru
keppendur beðnir að merkja
afurðirnar ekki sérstaklega.
Gott væri að upptalning á
innihaldsefnum fylgdi afurðunum,
ekki er þó óskað eftir uppskriftum.
Úrslit verða kunngjörð þegar
dómnefnd hefur lokið störfum, en
miðað er við að það verði klukkan
16.00.
Aðstandendur hvetja menn til
þátttöku og vilja nefna að ekki er
skylda að taka þátt í öllum flokkum
þó að það sé kostur. Allir eiga
möguleika á góðum vinningum,
en í fyrsta vinning verður forláta
Kitchen Aid-hrærivél frá Einari
Farestveit.
Keppnin er öllum opin og er
skráningarfrestur til klukkan 12.00
sama dag og keppnin fer fram.
Þeim sem hafa áhuga á að taka
þátt er bent á að hafa samband við
Eddu Arinbjarnar í síma 699-2636
eða senda henni póst á edda@
husafell.is
Æðardúnn verðmætari en nokkru sinni fyrr
– útflutningstekjur árið 2013 nærri 600 milljónir króna
Ekkert lát er á sölu íslensks æðardúns
til erlendra sængurframleiðenda.
Verðið hefur tvöfaldast á fjórum
voru um 600 milljónir kr. Þessi
arfur náttúrunnar er dýrasta
landbúnaðarafurð landsins þegar
miðað er við þyngd, en kílóið kostar
um 200.000 kr. Það er fyrir áræðni
æðarbænda og söluaðila sem þessi
náttúruauðlind skapar verðmæti, en
ótíndur dúnn verður vindi og veðri
að bráð. Möguleiki er á að margfalda
verðmæti æðardúns með fullvinnslu.
Æðardúnn tvöfaldast í verði
á fjórum árum
Útflutningstekjur af íslenskum
æðardúni námu 599.148.104 kr. árið
2013, en það þótti mikill sigur að
ná 500 milljóna króna markmiðinu
árið 2012. Ári síðar hafa söluaðilar
gert enn betur og slógu næstum 600
gengið mjög vel undanfarin ár og
virðist ekkert lát á vinsældum dúnsins.
Meðalverð á seldu kílói af íslenskum
æðardúni var 192.652 kr. í fyrra, sem
er tæplega tvöföldun meðalverðs frá
2009 sem var 97.887 kr. á verðlagi
verið á verði eftir gengisþróun og
milli markaðssvæða og því getur verð
rokkað innan sölutímabila. Vöntun
hefur verið á æðardúni síðustu ár
hjá mörgum söluaðilum sem hefðu
getað selt töluvert meira magn en
raunin varð. Því hefur verð hækkað
hratt. Æðardúnn er takmörkuð
náttúruauðlind, en framleiðslan
takmarkast við það magn sem fellur
til ár hvert í hreiðrum æðarkolla og
tíndur er af landeigendum. Ísland er
með 70-80% heimsmarkaðshlutdeild
með sölu upp á rúm þrjú tonn af
hreinsuðum æðardúni síðustu ár
sem er ársframleiðslan. Stærstu
sölusvæði æðardúns eru Japan og
Þýskaland, sem nota dúninn sem
fyllingu í sængur. Algengt verð á
æðardúnsængum erlendis er um
1,2–1,5 milljónir króna en einnig
eru til bæði ódýrari og dýrari sængur
eftir dúnmagni í sæng og hreinleika
vörunnar.
Bændur anna ekki eftirspurn
3.110 kílóum. Það er því fjórða árið í
æðardúns og virðist ekkert lát á
eftirspurn. Margir söluaðilar hafa
þegar gert framvirka samninga um
sölu þess æðardúns sem bændur
safna saman úr hreiðrum þessar
vikurnar. Það virðist því liðin tíð að
æðardúnbirgðir safnist upp milli ára.
Veðurfar hliðhollt æðarfuglinum
Í vor og það sem af er sumri hefur
veðurfar verið hagstætt æðar bændum.
Það er helst á Austurlandi sem
og einhverjir tekið upp votan dún sem
er þá þurrkaður um leið og í hús er
komið. Það ætti því ekki að koma að
sök hvað lokaafurð snertir.
Fullvinnsla æðardúns mikilvæg
Íslenskur æðardúnn er aðallega
notaður sem fylling í æðardúnsængur.
Fullframleiðsla fer að mestu fram
erlendis þar sem dúnninn er
aðallega seldur sem hráefni frá
landinu. Það er ekki að ástæðulausu
sem verð hefur hækkað síðustu ár.
Atvinnuvegaráðuneytið hefur uppfært
gæðavottorðin, sem nú eru númeruð
og með íslenska skjaldarmerkinu
á. Ráðuneytið í samstarfi við
Æðarræktarfélag Íslands, Félag
atvinnurekenda og Bændasamtökin
leita stöðugt leiða til að betrumbæta
vottunarkerfið. Útflutningsaðilar
hafa unnið ötult markaðsstarf eins
og sölutölur sýna glögglega, auk
þess sem Æðarræktarfélag Íslands
hefur útbúið almennt kynningaefni
um íslenskan æðardún á fjórum
tungumálum, íslensku, ensku,
þýsku og japönsku. Um er að ræða
kynningarmynd og bækling auk þess
sem heimasíða félagsins er í þróun
en slóðin er www.icelandeider.is.
Það er skemmtilegt safn rekið á
Reykhólum í A-Barðastrandasýslu
auk þess sem verið er að byggja
húsnæði í Stykkishólmi sem mun
verða framtíðarheimili Æðarseturs
Íslands. Síðast en ekki síst er aukning
hreinsaður æðardúnn. Hreinsunin
fer fram án kemískra efna, en
mestallur dúnn er þveginn erlendis
áður en hann fer í sængurnar og því
ánægjulegt að ná þeim viðskiptum
hingað heim. Íslendingar geta gert
betur og sótt á markaði með fullunnar
vörur og kynnt æðarfuglinn fyrir
Íslendingum og ferðamönnum. Með
sölu á fullunnum afurðum er hægt að
margfalda verðmætin.
Umhirða skilar árangri
Samvinna æðarfuglsins og mannsins
líkist vinasambandi og endurspeglar
náttúruna í sinni fallegustu mynd.
Æðarbændur undirbúa varpsvæði á
vorin í þeirri von að æðarfuglinn velji
landið þeirra. Margir æðarbændur
gegn rándýrum og ránfuglum. Þeir
fá vinnuna ríkulega launaða með
æðardúni sem losnar af bringum
æðarkolla og þær umlykja hreiður
sín með. Æðardúnninn er hreinsaður
fyrir sölu og er mikilvægur tekjustofn
æðarbænda.
Sólveig Bessa Magnúsdóttir og
Björgvin Sveinsson á Innri-Hjarðardal
í Önundarfirði eru með æðarvarp rétt
við bæjarstæðið. „Veðrið hefur verið
milt og þurrt eftir að fuglinn settist
upp. Hann hefur aðeins seinkað sér
í varp eftir hrakfarir síðustu ára en
það hefur fennt yfir varpið síðustu
ár, svo rétt hausinn á kollunni hefur
staðið upp úr snævi þakinni jörðinni,“
segir Sólveig Bessa. „Ég ákvað að
gefa fuglinum sem mestan frið í
ár fyrst viðraði svona vel og fór
ekki í fyrstu dúntínslu fyrr en um
Hvítasunnuhelgina. Þá var komið
töluvert af ungum og æðarkollur
byrjaðar að leiða út.“ Töluverð
aukning hefur orðið á fugli síðustu ár
hjá þeim hjónum enda hugsa þau vel
um æðarfuglinn. Sólveig Bessa segist
sannfærð um að vöktunin skili þessari
fjölgun. Margir aðrir æðarbændur
hafa tjáð sig um fjölgun hreiðra á
samfélagsmiðlum um þessar mundir,
svo líkur eru á góðu dúnári. Mun
salan ná 650 milljónum árið 2014?
Það verður gaman að sjá.
/Guðbjörg H. Jóhannesdóttir
Súlurnar sýna heildartekjur af sölu æðardúns en gula línan þróunina á kílóverði dúns. Tölur eru á verðlagi hvers árs.
Sólveig Bessa Magnúsdóttir
Ísland er með 70-80% heimsmarkaðshlutdeild á æðardúni, en eftirspurn eftir vörunni hefur aukist mikið. Myndir / GHJ
Matarmarkaður verður haldinn í Reykholti laugardaginn 21. júní.
Norskir ráðunautar á ferð um Ísland
Í lok síðustu viku komu fimm norskir
ráðunautar í fóðrun mjólkurkúa
í fjögurra daga heimsókn til
fóðurráðgjafa Ráðgjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins á Suðurlandi.
Konurnar vinna allar í ráðunauta-
teymi mjólkursamlagsins TINE sem
kallast „Topp Team Fôring“. Farið
var um sveitir á Suðurlandi og allir
helstu ferðamannastaðir skoðaðir,
s.s. Gullfoss, Geysir, Þingvellir,
í Bláa lóni og á hestbak (þær
áhugasömustu í tvígang). Einnig
var farið í heimsóknir til bænda,
s.s. í Bryðjuholt, á Litla- og Stóra-
Ármót. Á myndinni er hópurinn
í heimsókn á Stóra-Ármóti, frá
vinstri: Höskuldur Gunnarsson
og Hilda Pálmadóttir bústjórar á
S-Ármóti, Eirin Sannes Sleteng,
Merete Bekkevoll, Anja Våg
Skjold, Line Bergersen og Anita
Stevnebø frá TINE og Hrafnhildur
Baldursdóttir frá RML.
Mynd / Jóna Þórunn Ragnarsdóttir