Bændablaðið - 19.06.2014, Side 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júní 2014
Orkuforðinn okkar
Verið velkomin í heimsókn í sumar!
Kárahnjúkastífla:
Búrfellsstöð:
Vindmyllur á Hafinu:
Kröflustöð:
www.landsvirkjun.is/heimsoknir
Kvikmyndatökulið á vegum BBC
er nú statt hér á landi og vinnur að
því að taka upp náttúrulífsmynd
þar sem áherslan verður lögð á
æðarfugl, íslenska hestinn, ref
og samspil manns og náttúru.
Myndin verður sýnd í Bretlandi
og Bandaríkjunum á næsta ári
og búast má við því að milljónir
manns fái að kynnast Íslandi
með sýningu hennar.
K v i k m y n d a t ö k u l i ð i ð
samanstendur af þeim Andy
Chastney, sem stýrir verkefninu,
k v i k m y n d a t ö k u m a n n i n u m
og l jósmyndaranum Ian
Llewellyn og Neil Anderson
kvikmyndatökumanni. Þeir félagar
komu fyrst til landsins í febrúar
síðastliðnum og kvikmynduðu
vetrarveður, snjókomu og
storma og ýmsar náttúruperlur í
klakaböndum, svo sem Gullfoss,
Dettifoss og Jökulsárlón. Þá
mynduðu þeir atferli refa á
Hornströndum og munu fara
þangað aftur á næstunni. Í þessari
ferð hafa þeir verið við tökur við
eggjatöku í Grímsey, myndað
íslenska hestinn á Hólum í
Hjaltadal og fylgst með dúntöku í
Hvallátrum á Breiðafirði. „Veðrið
hefur verið alveg ótrúlega gott að
undanförnu, í raun má segja að helst
vanti upp á að við getum myndað í
stormi til að sýna náttúruna í öllum
sínum myndum,“ segir Andy, sem
dáist að náttúrufegurð landsins.
Hluti af þáttaröð
Myndin er sjónvarpsmynd sem er
unnin fyrir BBC og verður sýnd í
þætti sem heitir Natural World. Sá
þáttur hefur verið á dagskrá í bresku
sjónvarpi í aldarfjórðung við miklar
vinsældir. Árlega eru framleiddar
tólf náttúrulífsmyndir á ári af ýmsum
toga. Viðfangsefnin geta verið ljón,
snákar, Indland og í raun hvað sem
er eins lengi og það er áhugavert
og vel gert. Og nú er röðin komin
að Íslandi.
Andy segir að verkefnið eigi sér
nokkurn aðdraganda. „Fyrir um
fjórum árum kom upp sú hugmynd
hjá mér og Ian félaga mínum að
gera mynd um Ísland. Við vissum
að það hefði ekki verið gerð mynd af
þessu tagi á Íslandi, náttúrulífsmynd,
í það minnsta ekki í mörg ár. Við
ræddum við íslenska aðila og þá
jókst áhugi okkar til muna. Það tók
okkur nokkur ár að fá fjármögnun en
hingað erum við nú komnir.“
Sambúð manns og náttúru í
brennidepli
Myndin mun sýna eitt ár í náttúru
Íslands, með áherslu á æðarfugl,
heimskautarefinn og íslenska hestinn
en einnig ýmis önnur dýr í bland. Þar
má nefna lundann og aðra sjófugla.
„En ekki síst munum við einblína á
fólkið, Íslendinga, og sambúð þeirra
við náttúruna. Dúntekja er til að
mynda skínandi dæmi um nýtingu
náttúruauðlinda á sjálfbæran hátt. Það
er kannski ekki hægt að segja hið sama
um refinn en þurfa ekki allar góðar
myndir að hafa skúrk í þeim?“ segir
Andy hlæjandi og bætir við: „Það er
mjög áhugavert viðfangsefni að fjalla
um sambúð refsins við Íslendinga. Frá
því að Ísland byggðist má segja að
hafi staðið barátta milli manna og refs.
Refurinn hefur sýnt mikla þrautseigju
í þúsund ár þannig að hann er snjall
skúrkur.“
Einnig sýnd á Animal Planet
Næst á dagskrá er að fara og fylgjast
með laxveiði í Laxá á Ásum og í
Selá. Til stendur að klára myndatökur
í haust, en þá hyggjast Andy og
félagar mynda smölun og stóðrekstur.
Myndin verður síðan klippt og tekin
til sýninga á næsta ári á BBC 2.
Sömuleiðis hafa náðst samningar
við Discovery Animal Planet, en
þar munu bandarískir áhorfendur
fá tækifæri til að sjá myndina. Að
sögn Andys er það fremur sjaldgæft
að myndir af þessu tagi sem unnar
eru fyrir BBC séu teknar til sýninga
vestra en þar hafi menn verið heillaðir
af verkefninu. Meðaltalsáhorf á
National World í Bretlandi er um
fimm milljónir áhorfenda og fylgjast
milljónir manns með Animal Planet
í Bandaríkjunum. Það er því ljóst að
myndin verður mikil landkynning
fyrir Ísland þegar hún verður tekin
til sýninga.
Myndarinnar beðið með óþreyju
Andy kveðst fullur aðdáunar á
Íslendingum og því hvernig þeir
umgangist náttúruna. „Það er frábært
að sjá í hversu nánu sambandi
Íslendingar eru við náttúruna og
hvernig þeir lifa með henni, hvernig
sambúð manns við náttúru er sjálfbær.
Það verðum við mjög varir við þegar
við ræðum við fólk víðs vegar um
landið, bændur og aðra. Við höfum
til að mynda verið í sambandi við
Orra Vigfússon, sem hefur unnið
ótrúlega vinnu við að verja laxastofna
á norðlægum slóðum um langa hríð.“
Þá segir Andy að þrátt fyrir að ekki
verði fjallað um það í myndinni
sé það hans skoðun að sú leið sem
Íslendingar hafi farið varðandi
verndun fiskistofna í hafinu í kringum
landið sé aðdáunarverð og ætti að
vera fyrirmynd fiskveiðistjórnunar
annars staðar.
Á meðan þeir Andy, Ian og Neil
dvelja hér á landi blogga þeir um
dvölina og verkefnið á vefsíðunni
Footstepsofgiantsblog.wordpress.
com. Að sögn Andy hefur bloggsíðan
fengið mikla athygli og vakið óþreyju
eftir sýningu myndarinnar í Bretlandi.
/fr
BBC gerir náttúrulífsmynd um Ísland
– Verður sýnd í Bretlandi og Bandaríkjunum á næsta ári
Myndir / Ian Llewellyn
Andy Chastney, sem stýrir verkefninu, ásamt kvikmyndatökumanninum
og ljósmyndaranum Ian Llewellyn og Neil Anderson kvikmyndatökumanni.