Bændablaðið - 19.06.2014, Page 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júní 2014
B 60 WÚtskiptanlegur haus
BR 35/12 C
BD 40/12 C
BR 40/10 ADV
BD 50/40 RS
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
V E R T U Á Ö R U G G U M S T A Ð
Eigum tinda og hnífa í flestar
gerðir véla
H
2
h
ö
n
n
u
n
, h
2h
.is
Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500
Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526
www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is
25240
Litir: Svartur/hvítur
Str. 36-42
Verð 9.900,-
25180
Litir: Svartur/hvítur
Str. 36-46
Verð 10.500,-
00314 - Boston
Litir: Svartur/
hvítur
Str. 36-47
Verð 12.900,-
Teg. 25130
Litir: Svartur/hvítur
Str. 36-42
Verð 10.500,-
Bonito ehf. | Faxafen 10 | 108 Reykjavík | Sími 568 2878
Opið mánud. - föstud. 11:00-17:00, lokað laugardaga.
Fatnaður og skór
til vinnu og frístunda
Mikið úrval
af klossum
Vatteraðir jakkar fyrir
dömu og herra í 5 litum
Verð 14.900
Teg. 25090
Litir: Svart/Hvítt/Blátt
Str. 36-42
Verð 14.990,-
Praxis.is
Pantið vörulista
Ráðstefnan Nordtic haldin 25. júní:
Nýsköpun í hinu norræna lífhagkerfi
Hinn 25. júní verður ráðstefnan
Nordtic haldin á Hótel Selfossi þar
sem fjallað verður um Norræna
lífhagkerfið (e. Nordic Bioeconomy)
og lífhagkerfi norðurslóða (e. Arctic
Bioeconomy). Ráðstefnan er haldin
í tengslum við fund norrænna
ráðherra hér á landi, en Ísland
fer með formennsku í Norræna
ráðherraráðinu á þessu ári og
leggur áherslu á nýsköpun í hinu
norrænna lífhagkerfi til þess að
styrkja svæðisbundinn hagvöxt.
Að sögn Sigrúnar Elsu
Smáradóttur, sem er fagstjóri
hjá Matís og heldur erindi á
ráðstefnunni, hefur hugtakið
lífhagkerfi (e. Bioeconomy) verið
notað til að ná yfir allar lífauðlindir,
samspil þeirra og samhengi og áhrif
á efnahagslega, umhverfislega og
félagslega þætti. „Rannsóknir á
sviði lífhagkerfis ganga þannig
þvert á atvinnugreinar og leitast
við að hámarka ávinning auðlinda
án þess að ganga á þær. Ráðstefnan
á Selfossi snertir á mörgum af
þeim þáttum sem nauðsynlegir eru
öflugu lífhagkerfi og samfélagi.
Má þar nefna markaðsaðgengi,
matvælaöryggi, viðnámsþrótt
vistkerfa, nýtingu á úrgangi og
nýsköpun,“ segir Sigrún Elsa.
Nýsköpun í matvælaframleiðslu
Matís leiðir norræn nýsköpunar-
og vöruþróunarverkefni sem
unnin verða á þessu sviði
næstu þrjú árin. Um er að ræða
verkefni sem snúa að nýsköpun
í matvælaframleiðslu, aukinni
sjálfbærni í matvælaframleiðslu og
aukinni framleiðslu lífmassa. Um
fjörutíu vöruþróunarverkefni hafa
þegar verið sett í gang á Íslandi,
Grænlandi og í Færeyjum og verður
afrakstur fyrsta hluta þeirra kynntur
á ráðstefnunni. Stefnt er að því að
á þriðja tug vara frá löndunum
þremur verði þar til sýnis og jafnvel
smökkunar.
Vöruþróun í
lífhagkerfi norðurslóða
Erindi Sigrúnar á ráðstefnunni
fjallar um vöruþróun í lífhagkerfi
norðurslóða, en ásamt því
að leiða nýsköpunarverkefni
formennskuáætlunarinnar hefur
hún leitt norræna verkefnið
um lífhagkerfi norðurslóða.
Verkefnið felur í sér kortlagningu
á lífauðlindum á norðurslóðum
og mat á afrakstri þeirra auk
samanburðar og greiningar milli
svæða. „Í verkefninu er sérstaklega
horft til matvælaframleiðslu með
tilliti til fæðuöryggis auk þess sem
nýsköpunarhæfni svæðanna og
einstakra greina er metin. Þetta
er gert til þess að hægt sé að meta
tækifæri og ógnanir og ráðast í
kjölfarið í verkefni sem styrkja
svæðin á þessu sviði,“ segir Sigrún
Elsa.
„Miklar lífauðlindir er að
finna á norðurslóðum og eru
þær mikilvægar fyrir efnahagslíf
landanna. Það er mikilvægt að
ná saman yfirliti yfir auðlindir og
afrakstur þeirra svo unnt sé að meta
árangur og greina hvernig efla megi
svæðin. Með því að auka verðmæti
afurða, örva og styrkja lífhagkerfið
og afkastagetu þess aukum við
efnahagslegan árangur.“
Fjölmörg tækifæri til nýsköpunar
fyrir hrávöruþjóðir
„Ísland, Grænland og Færeyjar eiga
það sammerkt eins og staðan er
núna að lífhagkerfi þeirra byggja í
meira á hrávöruútflutningi heldur en
hagkerfi hinna Norðurlandaríkjanna
og má því halda því fram að hagkerfi
hinna landanna séu þróaðri en okkar.
Í þessu felast fjölmörg tækifæri
fyrir Ísland, Færeyjar og Grænland
til að efla nýsköpun á þessu sviði
og þróa fjölbreyttari matvæla- og
líftækniiðnað.“
Dagskrá ráðstefnunnar má nálgast
vefslóðinni á http://www.matis.is/
nordtic. /smh
Sigrún Elsa Smáradóttir