Bændablaðið - 19.06.2014, Side 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júní 2014
Vélabásinn
liklegur@internet.is
Hjörtur L. Jónsson
Suzuki Alto kostar lítið
og er ódýr í rekstri
Margir foreldrar hjálpa
börnunum sínum að kaupa bíl
þegar þau eru nýlega komin með
bílpróf. Ófáir hafa keypt notaðan
bíl sem kostar lítið og innan árs
er viðgerðarkostnaður orðinn
ógnarhár og jafnvel margfalt
verð bílsins. Annað ráð er að
kaupa nýjan bíl og því kannaði
ég á vefmiðlum hvaða bíl væri
hagkvæmast að festa kaup á. Eftir
nokkra skoðun sá ég að Suzuki
Alto væri einn ódýrasti bíllinn
á markaðnum. Ég brá mér því í
Suzuki-bíla í Skeifunni og fékk að
taka smá hring á bílnum.
Hátt undir bílinn miðað við
marga aðra bíla svipaða
Í innanbæjarakstri með mig einan
innanborðs vantaði ekkert upp á
kraftinn í 996cc bensínvélinni. Það
var ávallt nægur kraftur og tog til að
halda umferðarhraða. Þegar komið
var út á veg þar sem hámarkshraðinn
var 90 km viðurkenni ég vissulega
að ég hef keyrt bíl sem er sneggri að
ná umferðarhraða, en aldrei var ég
fyrir neinum á þessum stutta kafla
sem ég ók á Keflavíkurveginum.
Rétt hjá álverinu í Straumsvík prófa
ég flesta bíla sem ég prufukeyri á
stuttum malarkafla. Það kom mér
á óvart hversu lítið malarvegahljóð
heyrðist inni í bílnum miðað við
marga aðra bíla af svipaðri stærð.
Einnig kom það mér á óvart hversu
hátt var undir lægsta punkt á bílnum.
Bara skráður fyrir fjóra,
en ekki of stóra
Farangursrýmið er ekki mikið
og ef einhver er að hugsa um að
nota svona bíl til að fara í golf
verður að leggja sætin niður til
að koma golfsettinu fyrir. Plássið
í farangursrýminu er ekki mikið.
Að sitja í framsætunum er mjög
gott og fannst mér ótrúlega mikið
rými þar fyrir ökumann, það mikið
að ég fékk félaga minn sem er vel
yfir tveir metrar til að máta undir
stýri. Mér til furðu virtist vera ágætis
pláss fyrir hann í framsætunum, en í
aftursætið þurfti hann að böggla sér
inn og sagði að honum fyndist eins
og að hann væri í spennitreyju! Hins
vegar þegar hann sat í aftursætinu
fékk ég þennan fína olnbogapúða
sem var hnéð á honum sem kom
fram á milli framsætanna.
Mæli hiklaust með Suzuki Alto
fyrir byrjendur í umferð
Eitt sem ég hjó eftir var að bíllinn
kemur á 14“ álfelgum og á dekkjum
sem eru mjög ódýr þannig að ekki
ætti að kosta mikið að splæsa í
vetrardekk undir bílinn. Það eina sem
ég set persónulega út á bílinn er að
baksýnisspegillinn mætti vera minni
og hliðarspeglar stærri. Samkvæmt
bæklingi frá Suzuki á meðaleyðsla á
bílnum að vera 4,3 lítrar á hundraðið,
en ég gæti vel trúað að svona bíll
sé að eyða á Íslandi nálægt 5,5 á
hundraðið (þekki mann sem átti svona
sjálfskiptan bíl sem eyddi að meðaltali
6,2 að hans sögn). Klárlega einhver
besti bíll sem byrjandi í umferðinni
ætti að skoða áður en farið er að
kaupa notaðan bíl sem hugsanlega
á stutt í mikið viðhald og bilanir.
Lengd: 3.500 mm
Hæð: 1.470 mm
Breidd: 1.680 mm
Þyngd: 885 kg
Verð 1.840.000
Vél 996cc bensín 68 hestöfl
Helstu mál, verð og vél
Ef golfsettið á að fara með þarf að leggja aftursætin niður.
Suzuki Alto.
Það er þröngt í aftursætinu fyrir full-
vaxna karlmenn.
Ekkert of mikið af mælum, en dugir.Glettilega hátt er undir bílinn.
Gríðarleg aukning í póstverslun
Kínverska sölusíðan AliExpress býður upp á mikla möguleika
Gríðarleg aukning hefur orðið á
póstverslun hér á landi síðustu
ár. Einkum er þar um að ræða
póstverslun í gegnum sölusíður á
netinu. Sölusíður eins og Amazon
og eBay eru vel þekktar en mestur
vöxtur hefur orðið í netverslun í
gegnum kínverskar sölusíður upp
á síðkastið. Er síðan AliExpress
þar fremst í flokki.
Allt frá sólgleraugum
upp í snekkjur
Á síðunni er hægt að kaupa nánast
hvað sem fólki dettur í hug,
allt frá fötum, sólgleraugum og
skartgripum til reiðhjóla og báta.
Ekki eru til nákvæmar tölur um
hversu mikil þessi viðskipti eru
orðin en samkvæmt upplýsingum frá
Íslandspósti varð yfir 400 prósenta
aukning á sendingum frá Kína á milli
áranna 2012 og 2013. Langflestar
þessara sendinga munu til komnar
vegna viðskipta við AliExpress og
Alibaba, sem er móðurfyrirtæki
fyrrnefndu síðunnar. Á Alibaba má
kaupa stærri hluti og í meira magni
en á AliExpress.
Fjöldi fólks nýtir nú þessa
þjónustu til að kaupa hinar og þessar
vörur sem fást á mun lægra verði en
hér heima. Það er enda ástæða þess
að fólk kýs að nýta sér þjónustuna
auk þess sem þægilegt er að kaupa
vöru í rólegheitum á netinu og fá
hana senda heim til sín eða í næsta
pósthús. Þá er um þægilega leið að
ræða fyrir íbúa á landsbyggðinni
sem geta nálgast ýmislegt í gegnum
póstverslun sem ekki er fáanlegt
í heimabyggð. Afgreiðslutími
vörunnar getur þó verið nokkuð
langur, ekki síst ef valdar eru vörur
sem eru án sendingarkostnaðar. Þá
þarf að greiða toll af vörunum en
þegar fríverslunarsamningur Íslands
við Kína verður að fullu kominn í
gagnið má búast við því að hann
lækki eða leggist af í einhverjum
tilfellum.
Tíu sinnum ódýrara
Einn af þeim sem hafa nýtt sér þessa
þjónustu er Davíð Logi Jónsson, bóndi
á Egg í Hegranesi í Skagafirði. „Ég
hef verslað nokkuð við AliExpress.
Ég hef reyndar ekki enn keypt tæki
til notkunar í landbúnaði eða slíka
hluti en ýmislegt annað. Ég keypti
til að mynda talsvert af sparperum,
eða díóðuperum, í gegnum þessa
síðu. Þær voru um það bil tíu sinnum
ódýrari þarna úti heldur en hér heima
og þó að maður þurfi að borga smá
toll af þeim margborgar þetta sig.
Þá keypti ég útikastara sem ég ætla
að setja upp á hlöðuna hjá mér og
þeir voru um það bil fimm sinnum
ódýrari en sambærilegir út úr búð hér
heima. Ég hef skoðað ýmis verkfæri
og rekstrarvöru og það er gríðarlega
mikið í boði þarna á góðu verði.
Annað sem ég hef keypt þarna hefur
staðið undir öllum mínum væntingum.
Verðið er margfalt lægra og þjónustan
er líka mjög góð.“
Verður að vega og meta
Davíð segir að helsti gallinn við þessa
verslun sé sá að afhendingartíminn sé
langur velji fólk ókeypis sendingu.
„Það er hann iðulega allt upp í þrjátíu
dagar en þá er bara spurning um að
vera forsjáll. Það er klárlega hægt að
nýta sér þetta en fólk verður auðvitað
að vega og meta. Til dæmis fá menn
ekki endurgreiddan virðisaukaskatt
af þessum vörum en sé sparnaðurinn
mikill er það ekki vandamál. Ég myndi
því ekki hika við að kaupa minni hluti í
gegnum þessa þjónustu, handverkfæri
og slíkt. Það er kannski meiri spurning
með stærri hluti og flóknari, eins og
suðuvélar eða slípirokka. Þeir eru
auðvitað í ábyrgð hér heima og hægt
að fá viðgerðarþjónustu en það gæti
verið erfiðara með hluti keypta þarna
að utan. Þetta er samt valkostur sem
maður myndi skoða og nýta sér ef
verðmunurinn er mikill.“
/fr
Davíð Logi Jónsson