Bændablaðið - 19.06.2014, Qupperneq 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júní 2014
Fróðleiksbásinn
Vilmundur Hansen þjóðfræðingur og garðyrkjufræðingur
Gras er líklega sú planta sem fær
hvað minnsta athygli. Margir
standa í þeirri trú að gras vaxi af
sjálfu sér og þurfi litla sem enga
umhirðu en þannig er það ekki. Til
að fá fallega grasflöt þarf að sinna
henni af alúð. Flestar grastegundir
eru ljóselskar og þrífast illa í
skugga.
Helstu kostir grassins eru að það
þolir nokkurt traðk, er mjúkt undir
fæti og endurnýjar sig sjálft. Gras
hefur góða lykt og fallegan lit en
grasgræna næst illa úr fötum.
Hér eru aðallega tvær
grastegundir notaðar í grasflatir,
vallarsveifgras og túnvingull. Þriðja
tegundin, vallarrýgresi, eða enskt
rýgresi eins og það er stundum
kallað, fylgir stundum með við
sáningu. Í fræblöndum er þessum
tegundum of blandað saman í
hlutfallinu 50% vallarsveifgras, 40%
túnvingull og 10% vallarrýgresi.
Eigi grasflöt að þola ágang þarf
hlutfall vallarsveifgrass að vera
hærra, en fyrir skuggastaði á að vera
meira af túnvingli. Þeir sem eru latir
við að kantskera ættu að nota meira
af túnvingli, þar sem hann skríður
minna. Vallarrýgresi er notað í
garðflatir með öðrum grastegundum.
Það er fljótt til og þekur vel og því
gott til að ná þekju á fyrsta sumri.
Hlutfall þess má þó ekki vera mikið,
það er viðkvæmt og deyr yfirleitt á
fyrsta eða öðrum vetri og skilur eftir
sár hafi verið notað of mikið af því.
Undirbúningur
Til að fá góða grasflöt þarf að gæta
vel að öllum undirbúningi. Hreinsa
lóðina vel, fjarlægja rætur, steina,
torfhnausa og hreinsa allt rusl. Ef
það vantar mold verður að útvega
hana og blanda með sandi. Síðan
er svæðið grófjafnað og hafður
vatnshalli frá húsi. Ef garðurinn er
blautur þarf að setja í hann drenlögn.
Þegar búið er að grófjafna skal
tæta 20 til 30 sentímetra niður í
jarðveginn og hreinsa lóðina aftur.
Því næst skal bæta við tveimur til
þremur rúmmetrum af sandi, gjarnan
blönduðum skeljasandi, á hverja
100 fermetra, og lífrænum áburði í
jarðveginn og tæta enn einu sinni. Ef
blanda á tilbúnum áburði í moldina á
að nota sex til átta kíló á hverja 100
fermetra.
Að lokum skal jafna lóðina í rétta
hæð og þjappa hana lítillega með
valtara. Áður en sáð er eða þökur
lagðar er gott að fara lauslega yfir
flötina með grófri hrífu til að losa um
efsta lagið og bæta viðloðun fræsins
og þakanna við jarðveginn.
Sáning
Hægt er sá hvort sem er vor eða
haust en ráðlegast er að gera
það að vori. Haustsáningu á að
framkvæma mánuði fyrir fyrsta frost.
Jarðvegurinn þarf að vera hæfilega
rakur þegar sáð er og nota skal eitt
kíló af fræi á hverja 100 fermetra.
Fyrsta árið eftir sáningu verður að
gæta þess að umgangur um lóðina
sé í lágmarki, en það tekur þrjú ár
fyrir sáninguna að ná fullum þroska.
Sé sáð að vori er nauðsynlegt að
vökva lóðina reglulega í þurrviðrum.
Varast ber að slá grasið of snöggt til
að byrja með. Gott að halda því í átta
til tíu sentímetra hæð. Þegar flötin
hefur náð sér að fullu má slá hana
í fjögurra til fimm sentímetra hæð.
Sé slegið sneggra skal vökva á eftir.
Þökur
Þeir sem vilja gras strax og helst
í gær ættu frekar að þekja en sá.
Undirbúningur fyrir þökur er sá
sami og fyrir sáningu. Leggja má
þökur frá því snemma að vori og
fram á haust. Gott er að leggja eina
beina röð af þökum umhverfis flötina
sem á að tyrfa. Eftir það eru þökurnar
lagðar eins og múrsteinar, hálf í hálft,
og götum lokað með bútum í lokin.
Gæta skal þess að þjappa þökunum
ekki of þétt því þá getur myndast
holrúm undir þeim og fletir sem ekki
ná að skjóta rótum. Ef skera á boga í
flötina er gott að leggja slöngu, helst
með vatni í, til að móta bogann og
nota slönguna sem skapalón til að
skera eftir. Að þökulögn lokinni þarf
að valta flötina og vökva.
Þegar þökur eru keyptar verður að
skoða þær vandlega við afhendingu
og gæta þess að ekki leynist í þeim
illgresi, eins og snarrótarpuntur,
skriðsóley, mosi eða gróf fóðurgrös.
Viðhald
Um það leyti sem grasið tekur við
sér á vorin er gott að raka yfir flötina
með laufhrífu og fjarlægja mosa,
lauf og annað rusl sem hindrar
loftstreymi að sverðinum. Bera
skal alhliða garðáburð á snemma að
vori, þrjú til fjögur kíló af tilbúnum
áburði duga á 100 fermetra. Mánuði
síðar skal bera á sama magn og í
kringum verslunarmannahelgina
helmingi minni skammt. Einnig er
gott að bæta kalki eða skeljasandi
í lóðina á nokkurra ára fresti til að
hækka sýrustigið og halda niðri
mosa.
Reglulegur sláttur er hluti af
viðhaldi en ekki má slá of snöggt því
blaðmassinn verður að vera nógur
til að sjá rótunum fyrir næringu.
Best er að slá oft og reglulega og
það verður að raka slægjuna burt
því annars rotnar hún í sverðinum
og heftir vöxt. Sé nauðsynlegt að
vökva flötina skal vökva lítið í einu
snemma á morgnana eða seinni hluta
dags, en ekki í sterku sólskini. Ef
grasið er orðið þétt er hætta á að
ræturnar fái ekki nóg súrefni og
að flötin verði kyrkingsleg. Við
þannig aðstæður er nauðsynlegt
að gata svörðinn með gaffli með
reglulegu millibili og raka sandi
ofan í holurnar.
Grasið í garðinum
Þökur í rúllu.
Besta mold í heimi
Góð safnhaugamold er besta mold
sem hægt er að hugsa sér og fólk ætti
hiklaust að stunda jarðgerð hafi það
aðstöðu til.
Ýmsar aðferðir eru þekktar þegar kemur
að jarðgerð og mismunandi hver þeirra
hentar á hverjum stað. Algengast er að
garðeigendur komi sér upp einum eða
fleiri kössum fyrir lífrænan úrgang. Hægt
er að velja á milli þess að kassinn sé ein-
faldur að gerð eða flóknari, lokaður og
einangraður. Jarðgerð í einföldum
kassa kallast köld en heit í lokuðum og
einangruðum kassa og gengur hún mun
hraðar fyrir sig.
Hvort sem um er að ræða kalda eða heita
jarðgerð skal koma kassanum fyrir á þurr-
um og skjólgóðum stað þar sem auðvelt
er að komast að honum. Kassinn þarf að
standa á möl eða moldarjarðvegi og gott
er að setja trjágreinar í botninn þannig
að jarðvegsdýr eigi auðveldan aðgang
upp í hann.
Hvað má fara í kassann?
Til jarðgerðar má nota flest sem fellur til
úr garðinum, fyrir utan rótarillgresi eins
og húsapunt, skriðsóley og túnfífil eða
illgresi eins og krossfífil og dúnurtir sem
hæglega geta þroskað fræ í safnhaugnum.
Nýslegið gras, ekki meira en 20%, lauf,
smáar greinar, barr, visnuð blóm og þurrt
hey má allt fara í safnhauginn.
Úr eldhúsinu má setja salat og kál, rótar-
grænmeti, hýði af ávöxtum og kartöflum,
eggjaskurn, brauð, te- og kaffikorg og
eldhúspappír en varast skal að setja fisk-
og kjötafganga í opinn safnhaug þar sem
slíkt getur laðað að sér óæskileg nagdýr.
Best að blanda öllu saman
Þegar lagt er í jarðgerð er gott að setja um
15 sentímetra lag af misgrófum greinum
í botninn á kassanum og mikið af þurru
efni, til dæmis hey, í neðsta lagið. Best er
að hafa úrganginn sem fer í kassann sem
smágerðastan og hræra öllu vel saman.
Ef ekki er hægt að hræra í kassanum skal
fyllt á hann í þunnum lögum og gott er
að setja mold eða þurran garðaúrgang
milli laga. Auka má loftstreymi í kas-
sanum með því að stinga í eða hræra í
innihaldinu með stungugaffli af og til.
Til að flýta fyrir jarðgerðinni er gott að
sáldra gamalli fíngerðri mold eða þurrum
búfjárskít á milli laga.
Þumalfingursreglan segir að ef sett sé í
kassann ein fata af grænmeti skuli setja
með 1/3 úr fötu af þurru efni, til dæmis
þurru laufi eða heyi. Komi sterk rotnunar-
lykt úr kassanum er efnið í honum of
blautt. Yfirleitt er nóg að blanda þurru
heyi eða sagi í innihaldið til að kippa þessu
í lag og minnka fnykinn.
Við aðstæður sem þessar ætti jarðgerðin
að taka átta til tíu mánuði í lokuðum ein-
angruðum kassa en nokkrum mánuðum
lengur í einföldum óeinangruðum kassa
eða tunnu.
Lífið í jarðgerðinni
Til þess að jarðgerðin heppnist þarf vatn,
súrefni og hita. Örverurnar sem umbreyta
efninu í kassanum í jarðveg þurfa vatn
svo að lífsstarfsemi þeirra gangi eðlilega.
Of mikið vatn getur aftur á móti hægt á
starfseminni þeirra, þar sem það dregur
úr súrefni, en það er ekki síður nauðsyn-
legt svo að niðurbrot geti átt sér stað. Við
rotnunina myndast hiti og hann örvar
niðurbrotið enn frekar. Hæfilegt raka-
stig í kassanum er þegar efnið er eins og
blautur svampur viðkomu, eða með 50
til 60% raka. Fari rakastigið niður fyrir
30% stöðvast starfsemi örveranna og
umbreytingin hættir.
Ef vel tekst til við jarðgerðina safnast í
kassann ógrynni af jarðvegslífverum,
ánamaðkar, járnsmiðir, þúsundfætlur og
grápöddur sem aðstoða við og flýta fyrir
niðurbrotinu.
Besta mold í heimi
Vel heppnuð safnhaugamold er besta
mold sem hægt er að hugsa sér. Hún iðar
af lífi og er sneisafull af næringarefnum,
bæði lífrænum efnum og ólífrænum. Nota
má safnhaugamold til að auka frjósemi
garðsins með því að dreifa henni yfir beðin
eða grasflötina í þunnu lagi. Hún er einnig
tilvalin í bland með annarri mold þegar
settar eru niður hvers konar plöntur.
Safnhaugakassi.