Bændablaðið - 19.06.2014, Síða 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júní 2014
Rannsóknir og skráning á eyðibýlum
Eyðibýli á Íslandi – sumarið 2014
Í sveitum landsins er fjöldi
eyðibýla og yfirgefinna íbúðarhúsa
sem mörg hver eru vel byggð og
geyma merka sögu. Markmið
verkefnisins Eyðibýli á Íslandi er
að rannsaka og skrá umfang og
menningarlegt vægi eyðibýla og
annarra yfirgefinna íbúðarhúsa
í sveitum landsins. Jafnframt að
stuðla að björgun áhugaverðra
og byggingarsögulega mikilvægra
húsa, m.a. með endurgerð og
nýtingu í ferðaþjónustu. Þegar
verkefninu lýkur liggur fyrir
verðmætur þekkingargrunnur
um búsetu og líf Íslendinga fyrr
á tímum.
Fyrstu skref verkefnisins voru
tekin sumarið 2011 þegar rannsókn
fór fram á eyðibýlum og yfirgefnum
húsum á Suðurlandi. Afraksturinn var
heildstætt yfirlit um 103 yfirgefin hús
sem kom út í veglegu riti, Eyðibýli
á Íslandi, bindi eitt. Sumarið 2012
náði rannsóknin yfir tvo landshluta,
Norðurland eystra og Vesturland.
Þá voru skráð 236 hús og gefin út
tvö bindi af ritinu. Sumarið 2013
náði rannsóknin yfir Vestfirði og
Norðurland vestra og voru þá skráð
216 hús og einnig gefin út tvö bindi.
Hefur rannsóknin því alls náð til 555
húsa og gefin hafa verið út fimm
bindi. Sumarið 2014 mun rannsóknin
ná yfir Austurland annars vegar og
Suðvesturland hins vegar. Þá munu
níu háskólanemar úr arkitektúr,
þjóðfræði, ferðamálafræði og
fornleifafræði vinna við rannsóknina
með stuðningi Nýsköpunarsjóðs
námsmanna, Húsafriðunarsjóðs og
fleiri aðila.
Fyrstu vet tvangsferðir
sumarsins hefjast í sveitar-
félögunum Vopnafjarðarhreppi
og Djúpavogshreppi 10. júní nk.
Vettvangsferðir á Suðvesturlandi
munu hefjast 7. júlí næstkomandi.
Hugtakið eyðibýli er hér notað í
nokkuð þröngum skilningi. Rannsókn
nær til yfirgefinna íbúðarhúsa í sveitum
landsins sem ekki hafa verið tekin til
annarra nota. Þau skilyrði eru gefin að
húsið hafi a.m.k. fjóra uppistandandi
útveggi. Húsin þurfa ekki endilega
að standa á eyðijörð heldur geta þau
staðið á jörð í búnytjum. Eyðibýli
geta haft mikla þýðingu af ýmsum
ástæðum. Þau geta verið merkar
menningarminjar og mikilvægar
heimildir um byggðasögu. Aldur
húsanna, húsagerð eða byggingarlag
þeirra getur verið sérstakt en einnig
er sérstaða húsanna í búsetulandslagi
sveitanna oft mikil.
Markmið verkefnisins er að meta
menningarlegt vægi einstakra húsa
og varðveita þannig valin yfirgefin
hús á Íslandi. Í framhaldinu að kanna
hvort grundvöllur sé fyrir því að
eyðibýli og yfirgefin hús í sveitum
landsins verði gerð upp af eigendum
þeirra og/eða stofnað félag um rekstur
og útleigu þeirra í ferðaþjónustu.
Verkefnið var, veturinn 2012, tilnefnt
til Nýsköpunarverðlauna forseta
Íslands, Menningarverðlauna DV og
Hvatningarverðlauna iðnaðarráðherra.
Rannsóknum sumarsins lýkur með
kynningu á verkefninu og bókaútgáfu
á haustmánuðum. Með tíð og tíma
mun ritröðin Eyðibýli á Íslandi ná
yfir öll yfirgefin íbúðarhús í sveitum
landsins.
Rannsóknarhópur sumarsins er
fullur tilhlökkunar fyrir komandi
könnunarleiðöngrum og sendir
landsmönnum fyrir fram sínar bestu
kveðjur. Hægt er að fylgjast með
framgangi verkefnisins á Facebook:
www.facebook.com/Eydibyli
Einnig má hafa samband við
rannsakendur í gegnum netfangið
eydibyli@eydibyli.is.
Stapadalur við Arnarfjörð á Vest-
fjörðum.
Heiði 1 og 2 á Langanesi. Dagverðará á Snæfellsnesi.
Bækur um merka byggingarhefð
Torfhúsin njóta virðingar
Þegar kom fram á 20. öldina þóttu
torfbyggingar ekki merkilegar, þær
voru rifnar eða látnar grotna niður
þúsundum saman um land allt, bæði
kirkjur, bæir og útihús. Nú er öldin
önnur og íslenski torfbærinn þykir
með því merkasta sem Íslendingar
leggja til byggingarlistar heimsins.
Íslenski torhúsaarfurinn er á leið á
heimsminjaskrá UNESCO.
Fyrir ári sendi Björn G. Björnsson
hönnuður frá sér fjórar snotrar
myndabækur um tiltekin atriði
menningararfsins, meðal annars um
torfkirkjurnar sem eftir eru á Íslandi
og stóru torfbæina. Bækurnar fást
bæði á íslensku og ensku. Salka
gefur út.
Verðmætur menningararfur
Stóru torfbæirnir á Íslandi eru
heimsóttir; Árbær í Reykjavík,
Glaumbær í Skagafirði, Laufás
í Eyjafirði, Grenjaðarstaður
í Aðaldal, Þverá í Laxárdal,
Bustarfell í Vopnafirði og Keldur
á Rangárvöllum, auk þess sem
litið er við í safnbænum í Skógum
undir Eyjafjöllum. Þessi torfhús eru
einstök að allri gerð og eitt af því
merkasta sem Íslendingar eiga. Í
sumum þessara bæja var búið langt
fram á 20. öld og í flestum þeirra eru
starfrækt byggðasöfn. Húsin eru því
í notkun og hafa enn meira gildi fyrir
vikið. Mörg önnur hús úr torfi, bæði
stór og smá, er að finna á Íslandi þótt
þetta séu glæsilegustu dæmin um
þessa séríslensku húsagerð.
Fimm torfkirkjur í
upprunalegri mynd
Torfkirkjurnar íslensku sem enn
standa í upprunalegri mynd eru
aðeins fimm. Kirkjan á Víðimýri
í Skagafirði er talin þeirra fegurst,
Grafarkirkja á Höfðaströnd elst
og fornlegust og Saurbæjarkirkja í
Eyjafirði er stærst. Kirkjan á Hofi
í Öræfum er yngst og bænahúsið
á Núpsstað er þeirra langminnst.
Sú sjötta er Safnkirkjan í Árbæ,
sem reist var 1961 úr viðum eldri
kirkju frá Silfrastöðum í Skagafirði.
Það má því segja að fjórar séu af
Norðurlandi en tvær af Suðurlandi.
Stafbyggð torfkirkja var síðan reist
við Þjóðveldisbæinn í Þjórsárdal
í tilefni af þúsund ára kristnitöku
árið 2000. Til stendur að tilkynna
íslenskan byggingararf úr torfi á lista
UNESCO yfir heimsminjar.
Grenjaðarstaður í Aðaldal. Þar er einn stærsti torfbær á Íslandi, alls um 775
fermetrar. Hann var byggður árið 1865 og árið 1958 opnaður sem byggðasafn.
Björn G. Björnsson hönnuður hefur
samið bækur um íslensku torfbæjar-
hefðina.
Yst í Blöndudal rís hvítt steinhús
úr grænu túni, sá bær er nefndur
í Ártúnum og annar bær yngri
stendur litlu sunnar í sama túni
þar sem núverandi bændur búa,
en handverkskonan Sigríður
Ólafsdóttir hefur verið húsmóðir
í hvíta húsinu síðan 1947. Þar
bjó hún með manni sínum, Jóni
Tryggvasyni, söngstjóra og bónda,
en hann lést 2007.
Strax á fyrstu búskaparárum
sínum fór hún að rækta garð sunnan
við bæinn en skógarreiturinn ofan
við túnið var girtur síðar í tilefni af
fimmtugsafmæli hennar. Allt hefur
þetta dafnað vel. Hún saknaði þess
þó stundum að hafa ekki bæjarlæk
í Ártúnum eins og hún hafði alist
upp við, en árnar Blanda og Svartá
mætast utan við heimatúnin og
kyrjuðu stundum saman svo undir
tók í dölunum þegar vöxtur hljóp í
þær í vorleysingum.
Áratugir eru liðnir síðan Sigríður
fór að leggja stund á handverk
og listsköpun. Hún ólst upp við
heimilisiðnað, Stefanía föðursystir
hennar rak saumastofu í Reykjavík
og Sigríður vann tvo vetur syðra
á Saumastofunni Gullfossi. Sú
kunnátta kom sér vel þegar hennar
eigin fjölskylda stækkaði og hún
saumaði mikið á börnin sín sjö.
Þegar hún var í Kvennaskólanum
lærði hún vefnað og kom sér upp
vefstól heima í Ártúnum.
Sigríður Ólafsdóttir er fædd uppi
á Laxárdal 4. nóvember 1924, dóttir
hjónanna Jósefínu Pálmadóttur og
Ólafs Björnssonar sem lengi bjuggu
á Mörk en síðar í Holti á Ásum, og
hún var yngst fjögurra systkina.
Hún giftist Jóni Tryggvasyni árið
1946 og þau stunduðu hefðbundinn
búskap í Ártúnum þar til Tryggvi
sonur þeirra og fjölskylda hans tóku
við búrekstrinum á síðasta fjórðungi
aldarinnar, en um þær mundir gat
Sigríður farið að sinna hugðarefnum
sínum betur. Hún tók sér pensil í
hönd og fór að mála, sótti námskeið
eða fékk leiðbeinanda með námskeið
heim í stofu og lét fleiri njóta góðs af.
Heima í stofu Sigríðar hangir stórt
teppi, riddarateppi, saumað af henni,
og það verður meðal sýningargripa
í húsi hennar í sumar, en börn
hennar ætla að standa fyrir sýningu
á handverki hennar og málverkum í
tilefni af níræðisafmæli hennar í ár.
Sýningin er á heimili Sigríðar í
Ártúnum og verður opin alla daga
kl. 14-18 frá föstudegi 19. júlí til
mánudags 4. ágúst og er gestum
boðið að koma og skoða handverk
og myndir og ganga í blómagarðinn.
Handverkssýning að Ártúnum í Blöndudal:
Býður gestum heim í stofu
– Sigríður Ólafsdóttir heldur upp á níræðisafmælið
Sigríður í Ártúnum verður 90 ára í
nóvember. Hér er hún við nokkur
verka sinna.
Séð heim að Ártúnum í Blöndudal.
Tungnaréttir vígðar á sumarsólstöðum
Tungnaréttir hafa staðið við
fossinn Faxa í Tungufljóti frá
árinu 1955. Síðan þá hefur
margsinnis verið réttað þar,
bæði sauðfé og hrossum, jafnvel
eintómu fólki. Síðastliðin tvö
sumur hafa Tungnamenn endur-
byggt réttirnar, þær voru orðnar
ónýtar og ekki dugði lengur að
lappa upp á þær. Til að standa
að endurbyggingunni og afla fjár
til framkvæmdanna stofnuðu
bændur félagið Vini Tungnarétta
með þátttöku allra þeirra sem
bera hag Tungnarétta fyrir brjósti.
Vinir Tungnarétta hafa haft allar
klær úti til að aura saman fyrir
efninu og unnið takmarkalausa
sjálfboðavinnu við bygginguna
sjálfa. Oft er sagt að margar hendur
vinni létt verk. Það hefur sannast við
endurbyggingu réttanna, en einnig
má segja að hér hafi samhentur
hópur manna lyft grettistaki með góðri aðstoð fjölmargra sem komu
að verkinu á einn eða annan hátt.
Laugardaginn 21. júní verða nýju
réttirnar vígðar við hátíðlega athöfn
og hefst samkoman kl. 14.00. Við
bjóðum öllum vinum Tungnarétta,
formlegum sem óformlegum, að
koma í réttirnar þennan dag til að
fagna verklokunum með okkur
og til að afhenda sveitarfélaginu
Bláskógabyggð hið nýja mannvirki.
/Stjórn félagsins Vinir Tungnarétta.
Réttardagur í Tungnaréttum á öldinni
sem leið. Mynd / Ingimundur