Bændablaðið - 19.06.2014, Blaðsíða 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 19. júní 2014
Bærinn Böðvarshólar í
Vesturhópi stendur sunnarlega
við Vatnsnesfjall, austan
megin. Umhverfi bæjarins er
næsta sérkennilegt. Bærinn er í
frjóum, fögrum og rúmmiklum
fjallahvammi og að nokkru
umluktur hólum og hæðaklösum
við rætur fjallsins.
Hvammurinn er konungsríki
út af fyrir sig, því hvergi sér til
annarra bæja. Góð og smekkvís öfl
hafa skapað þennan broshýra og
gróðurríka sólarhvamm. Konráð
keypti jörðina af foreldrum sínum,
þeim Jóni Gunnarssyni og Þorbjörgu
Konráðsdóttir, árið 1978, þá 20 ára.
Býli: Böðvarshólar.
Staðsett í sveit: Vesturhópi
Húnaþing vestra.
Ábúendur: Konráð Pétur Jónsson
og Jónína Ragna Sigurbjartsdóttir.
Einnig búa dóttir okkar, tengdasonur
og barnabarn á bænum, þau
Ingveldur Ása Konráðsdóttir, Jón
Benedikts Sigurðsson og Margrét
Ragna Jónsdóttir, en þau stefna á
að taka við af okkur í framtíðinni.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Börnin eru fjögur og barnabörnin
eru orðin þrjú. Elstur er Jón Frímann,
búsettur í Danmörku, Þorbjörg
Helga býr ásamt manni sínum
Hákoni Bjarka Harðarsyni og tveim
dætrum, þeim Ragnheiði Birtu og
Halldóru Brá, á Svertingsstöðum í
Eyjafirði, Ingveldur Ása og Daníel
Óli býr í Reykjavík. Hundarnir Neró
og Týra og tveir hvolpar ásamt
kettinum Ídu.
Stærð jarðar: Tæpir 1600 ha. Þar
af ræktað land um 50 ha.
Gerð bús: Sauðfjárbú.
Fjöldi búfjár og tegundir:
Á búinu eru um 600 fjár, 30 hross, 20
hænur, 4 hundar og 1 köttur.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Það er mjög árstíðabundið en núna
er verið að þrífa fjárhúsin eftir
sauðburð, huga að girðingum og
húsbóndinn veiðir tófu.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin: Ef vel gengur er allt
skemmtilegt nema að klippa klaufir,
það er alltaf leiðinlegt.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir
ykkur á jörðinni eftir fimm ár?
Hann verður með svipuðu sniði.
Hvaða skoðun hafið þið á
félagsmálum bænda? Þau eru í
fínum farvegi.
Hvernig mun íslenskum
landbúnaði vegna í framtíðinni?
Vel ef við pössum upp á sérstöðu
íslensks landbúnaðar.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra búvara?
Að halda áfram að reyna við erlenda
markaði.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk, ostur og grænmeti.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Allt gott, held samt að
lambakjötið hafi vinninginn.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Þegar við tókum nýju
fjárhúsin í notkun, árið 2008.
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Morgunverður meistaranna
Nú er heimsmeistaramótið
í knattspyrnu komið á góða
siglingu og þá er nauðsynlegt fyrir
eldheita fótboltamenn að borða
kjarngóðan morgunverð.
Hér er skemmtileg og auðveld
útgáfa af morgunverði meistaranna,
innblásin af hinum fræga rétti „eggs
Benedict“. Það er hægt að prófa
annað en hænuegg, t.d. akurhænuegg
sem fást á bændamarkaðnum í
Borgarnesi. En íslenska hænueggið
klikkar ekki í úrvals morgunmat,
fullum af orku.
Hollandaise-sósa
Hráefni
› 4 stórar eggjarauður
› ½ bolli smjör (8 matskeiðar)
› 2-4 tsk. sítrónusafi
› 1/8 tsk. sjávarsalt
Aðferð: Hrærið saman
eggjarauður í 30 sekúndur til að
brjóta þær upp í stálskál. Bætið
í þremur matskeiðum af smjöri.
Setjið á pott af heitu vatni á meðan
hrært er stöðugt í (verið varkár
og ekki láta sjóða of mikið, bara
smá malla, því við erum ekki að
gera hrærð egg!) Eftir um 5–10
mínútur munu eggjarauðurnar
þykkna upp og sósan ná fölgulum
lit. Fjarlægið úr hita og hrærið
fimm matskeiðum af smjöri út
í þar til sósan er slétt. Hrærið í
2–4 teskeiðar af sítrónusafa og
smakkið til með salti. Setjið til
hliðar á meðan þið lagið blini-
pönnukökurnar.
Blini-pönnukökur
Hráefni
› ½ bolli hveiti
› 1 tsk. sykur
› 1/8 tsk. salt
› ½ tsk. matarsódi
› 1 stórt egg
› 1 stór eggjarauða
› ¼ bolli sýrður rjómi
› 2 matskeiðar súrmjólk
Aðferð: Sigtið saman þurrefni í
stóra skál. Hrærið egg, eggjarauður,
sýrðan rjóma og súrmjólk vel saman
í aðra skál. Léttþeytið eggjablönduna
og blandið í þurrefnum. Leyfið
deiginu að hvíla í nokkrar mínútur.
Gerið pönnukökur eftir smekk.
Sumir vilja stórar, aðrir litla sæta
munnbita.
Notið ½ pakka af beikoni og steikið.
16–20 stk. akurhænuegg ættu að
duga fyrir fjölskylduna. Auðvelt er
að spæla eggin á pönnu og framreiða
með stökku beikoni eða skinku.
Toppið svo réttinn með hollandaise-
sósu. Það má líka ediksjóða eggin
og raða upp í turn eins og gert er á
fínum morgunverðarstöðum. Með
þessari aðferð er sama bragð með
einfaldari aðferð sem allir ættu að
geta treyst sér í.
Sætur eftirréttur
Það er tilvalið að bæta í deigið
ögn af sykri eða hunangi og ögn af
vanilludropum og baka ljúffengar
pönnukökur í eftirrétt. Framreiðið
með steiktum banönum, brytjið
niður súkkulaðibita og þeytið
nýjan rjóma. Þetta er óviðjafnan-
legt og sykursætt.
MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI
Böðvarshólar