Fréttablaðið - 23.04.2016, Blaðsíða 6
Ónýtt hús í Ekvador
Enn einn eftirskjálfti, 6,0 að stærð, skók Ekvador í gær, en þar reið yfir skjálfti upp á 7,8 hinn 16. þessa
mánaðar. Hér sést fólk fyrir utan stórskemmda byggingu í gær, en síðustu tölur stjórnvalda benda til þess að
tæplega sex hundruð manns hafi farist í skjálftunum og 8.340 séu slasaðir. Fréttablaðið/EPa
Ergo veitir
umhverfisstyrk
sími 440 4400 > www.ergo.is
Umhverfissjóður Ergo auglýsir eftir
umsóknum um umhverfisstyrk
Sjóðurinn úthlutar umhverfisstyrk að fjárhæð
500.000 kr. að jafnaði einu sinni til tvisvar á
ári til frumkvöðlaverkefna en markmið sjóðsins
er að hvetja til nýsköpunar og þróunar á sviði
umferðar- og umhverfismála.
Sendu inn þína hugmynd
Einstaklingar og fyrirtæki geta sótt um
styrkinn. Viðskiptaáætlun þarf að fylgja
umsókninni ásamt skýringu á því hvernig
nýta eigi styrkinn.
Frestur til að senda inn umsóknir er til 20. maí.
Öllum umsóknum verður svarað.
Kynntu þér málið nánar á ergo.is
Menntun „Það er ekki búið að segja
upp starfsfólki enn,“ segir Karl Gauti
Hjaltason, skólastjóri Lögreglu-
skólans. Fyrir liggur að lögreglunám
verður fært á háskólastig og í frum-
varpsdrögum að breytingu á lög-
reglulögum kemur fram að Lögreglu-
skólinn verður lagður niður þann
30. september á þessu ári. Frumvarp-
ið átti að kynna á þingi ekki síðar en
15. mars en er ekki komið fram enn.
„Ef frumvarpið verður ekki að
lögum þá lifum við aðeins lengur. En
við fáum engin svör um það hvenær
eða hvort verður af þessu. Það hefur
verið áhyggjuefni okkar í vetur,“ segir
Karl en níu starfsmenn starfa við
skólann. Þeim verður öllum sagt upp
þegar að því kemur að leggja skólann
niður. Námið verður fært á háskóla-
stig. Karl Gauti segist fá svör geta veitt
áhugasömu fólki sem vill leggja stund
á nám í lögreglufræðum. „Við höfum
fengið mikið af fyrirspurnum. Ég gef
þau svör að frumvarpið sé í innan-
ríkisráðuneytinu og eigi eftir að fara
fyrir þing. Það eru einu svörin sem ég
get veitt í bili að minnsta kosti,“ segir
hann.
Með breytingu á lögreglulögum
verður lögreglunám fært á háskóla-
stig eins og það er á hinum Norður-
löndunum. Karl Gauti hefur ásamt
starfsliði sínu fengið kynningu á
frumvarpinu. „Já, við höfum fengið
kynningu á því og þá var gert ráð fyrir
því að námið hæfist í haust á háskóla-
stigi en til þess að svo verði þarf auð-
vitað að afgreiða frumvarpið með
breytingum á þingi.“
Ekki hefur verið gengið frá
samningi við háskóla um að taka
við kennslu í lögreglufræðum til
B.Sc. náms. Námið verður þriggja
ára nám á háskólastigi og skólinn
sjálfstæð eining en menntuninni
útvistað til menntakerfis að stórum
hluta. Stefnt er á að Lögregluskólinn
verði fræðslu- og rannsóknarsetur
lögreglu og muni sjá um þróun og
uppbyggingu grunnmenntunar
lögreglu með þjónustusamningum
svo og að sjá um framhaldsnám fyrir
lögregluna.
Starfshópur skipaður af innanríkis-
ráðuneyti leggur til að samið verði við
Háskólann á Akureyri og Keili og enn-
fremur að grunnmenntun lögreglu-
manns, tveggja ára bóklegu námi og
eins árs starfsnámi, ljúki með bakka-
lárgráðu og að hugað verði að frekari
menntun í kjölfar bakkalárgráðu sem
lyki með meistaragráðu.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Óvissa um framhald
lögreglunáms í haust
Nýtt frumvarp um nám á háskólastigi er ókomið inn á vorþing Alþingis.
Við fáum engin svör
um það hvenær eða
hvort verður af þessu.
Karl Gauti Hjaltason,
skólastjóri Lögregluskólans
2 3 . a p r í l 2 0 1 6 l a u G a r D a G u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
3
1
-9
F
B
4
1
9
3
1
-9
E
7
8
1
9
3
1
-9
D
3
C
1
9
3
1
-9
C
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K