Fréttablaðið - 23.04.2016, Page 8
Landssamtök lífeyrissjóða • Guðrúnartúni 1 • 105 Reykjavík • Sími: 563 6450 • ll.is
KENNARASAMBAND ÍSLANDS
Fjármála- og
efnahagsráðuneytið
Málþing aðila vinnumarkaðarins og lífeyrissjóðanna
Áskoranir fyrir vinnumarkaðinn
vegna hækkandi lífaldurs
Þriðjudaginn 26. apríl 2016 kl. 13.00-16.00 á Grand Hótel
Aukin hagsæld og framfarir í læknavísindum hafa síðustu áratugi stöðugt aukið
lífslíkur okkar. Frá því samið var um stofnun almennu lífeyrissjóðanna árið 1969 hefur
meðalævi íslenskra karla lengst úr tæpum 72 árum í tæpt 81 ár og kvenna úr 77,5 í tæp 84
ár. Sextug kona gat árið 1970 vænst þess að lifa í 21,7 ár til viðbótar og vera á lífeyri í 14,7 ár
m.v. 67 ára eftirlaunaaldur. Í dag getur sextug kona vænst þess að lifa í rúm 25 ár og vera
rúm 18 ár á lífeyri. Þessi jákvæða þróun hefur umtalsverð áhrif á samfélagið og er nú víða
horft til hækkunar á almennum eftirlaunaaldri. Slík breyting dugar ekki ein og sér þar sem
þessari þróun fylgja ölmargar áskoranir fyrir lífeyris- og velferðarkerfið og ekki síður fyrir
atvinnulífið. Í því felst m.a. að auka verður möguleika eldra fólks til lengri og virkari
þátttöku á vinnumarkaði með góðum vinnuaðstæðum og heilsueflingu, sí- og endur-
menntunartækifærum sem viðhalda og auka þekkingu og auknum sveigjanleika í
starfslokum og töku lífeyris.
Dagskrá:
13:00-13:10 Setning
Þorbjörn Guðmundsson, formaður stjórnar LL
13:10-13:55 Longer Lives - Better Brains
Henning Kirk MD, Dr.Med.Sci.
Hverjar eru afleiðingar hækkandi lífaldurs á stefnumörkun varðandi atvinnuþátttöku eldra
fólks, eftirlaunaaldur og lífeyri? Heldur hæfni heilans í við lengri lífaldur? Í erindinu verður
leitast við að svara þessum spurningum ásamt því hvort vilji sé til þess á vinnumarkaði að nýta
þekkingu og hæfni eldra fólks.
13:55-14:25 Staða eldra fólks á vinnumarkaði og þróunin næstu áratugina
Stefán Ólafsson, prófessor við HÍ
14:25-14:40 Kaffi
14:40-14:55 Reynslan af ráðningum eldri starfsmanna
Jakobína Hólmfríður Árnadóttir, hópstjóri ráðninga hjá Capacent
14:55-15:10 Kynning á hugmyndum um breytingar á lífeyrisaldri á næstu
áratugum og auknum möguleikum til sveigjanlegri starfsloka
Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða
15:10-16:00 Pallborðsumræður með aðilum vinnumarkaðarins
Nýjar áskoranir á vinnumarkaði – Hvernig tekst
vinnumarkaðurinn á við breytingarnar framundan?
Fulltrúar frá Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna, Bandalagi starfsmanna ríkis og
bæja, ármála- og efnahagsráðuneytinu, Kennarasambandi Íslands, Sambandi íslenskra
sveitarfélaga og Samtökum atvinnulífsins taka þátt í umræðum.
Stjórnandi: Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans
Tilkynning um þátttöku berist Landssamtökum lífeyrissjóða á tölvupóstfangið radstefna@ll.is
Ferðaþjónusta Fyrirtækið Jökla
vagnar, sem starfrækti matarvagn í
Skaftafelli síðasta sumar, mun halda
rekstri sínum áfram í sumar. Vagninn
er undir merkjum Glacier Goodies
og er þar leitast við að nota hráefni af
nærsvæðinu til þess að tryggja sjálf
bærni og ferskleika rétta. Stefán Þór
Arnarson yfirkokkur segir stefnuna
vera að gera það sem þau eru að gera
eins vel og hægt er. „Núna stendur
yfir undirbúningur fyrir sumarið.
Við erum að setja saman matseðil
og hann verður með svipuðu sniði
og í fyrra,“ segir Stefán.
Vagninn verður í Skaftafelli frá
og með miðjum maí fram í septem
ber. Viðbrögðin síðasta sumar segir
Stefán hafa verið mjög góð. Meiri
hluta gesta þeirra segir hann hafa
verið erlenda ferðamenn en að einn
ig hafi margir Íslendingar komið við
hjá þeim. Stefán segist hissa á því hve
margir Íslendingar hafi í raun komið
og að margir hafi sérstaklega gert sér
ferð til þeirra. „Við fengum gesti sem
voru kannski búnir að keyra hérna
fram hjá en aldrei komið við, sem
komu sérstaklega til að borða hjá
okkur.“
Skaftafell er hluti af Vatnajökuls
þjóðgarði og trekkir að talsvert
mikið af ferðamönnum. Komum
þangað hefur fjölgað mikið síðustu
ár og má til dæmis nefna að í mars
í fyrra komu um 14 þúsund manns
í Skaftafell en í mars í ár komu um
24 þúsund manns, segir Elvar Ing
þórsson, landvörður í Skaftafelli.
Elvar segir að alls hafi komið um 400
þúsund manns í Skaftafell í fyrra, en
af þeim fjölda komu tæp 300 þúsund
á aðeins fjórum mánuðum, frá maí
og fram í ágúst. Elvar segist gera ráð
fyrir því að komum ferðamanna
fjölgi enn þetta árið.
Spurður út í hvort fjölgun ferða
manna muni hafa áhrif á þjónustuna
segist Stefán ekki geta sagt til um
það. „Við reynum að bjóðum upp á
ákveðna upplifunarferðaþjónustu,
að vera með rétti úr ríki Vatnajökuls,
persónulega þjónustu og heiðar
legan mat. Við viljum að eiginlegt
bragð hráefnisins njóti sín sem best
og við viljum að gestir bæði komi og
fari glaðir.“
Glacier Goodies er starfrækt af
Stefáni og konu hans, auk frænda
hans. Stefán er lærður matreiðslu
meistari og á langan feril að baki í
veitinga og hótelgeiranum og hefur
unnið á mörgum af bestu hótelum
og veitingastöðum landsins. Sér til
halds og trausts hefur Stefán aðstoð
arkokk og vin sinn, Alexander Alvin,
en þeir hafa lengi fylgst að í veitinga
bransanum. stefania@frettabladid.is
Matarvagninn
verður aftur
í Skaftafelli
Fyrirtækið Jöklavagnar verður áfram með matar-
vagn í Skaftafelli í sumar. „Núna stendur yfir undir-
búningur fyrir sumarið,“ segir Stefán Þór Arnarson,
yfirkokkur og eigandi. Opnað verður um miðjan maí.
Glacier Goodies segjast bjóða upp á persónulega þjónustu. Mynd/EMil rEynir
LögregLa Lögreglan á höfuðborgar
svæðinu varar við fíkniefninu LSD.
Undanfarið hefur hún greint neyslu
þess hjá hópi ungs fólks sem er ann
ars ekki neytendur fíkniefna.
„Þetta hefur vakið undrun okkar,
umrætt fólk hefur verið illvið
ránalegt, haldið miklum ranghug
myndum um sig og eða umhverfi
sitt, með gríðarlega hátt sársauka
þol og verulega hættulegt umhverfi
sínu en þó fyrst og fremst sjálfu sér,“
segir í tilkynningu frá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu sem greinir
enn fremur frá því að svo virðist
sem þetta unga fólk telji fíkniefnið
hættulaust.
Lögreglan ítrekar að efnið LSD
sé stórhættulegt. „Þetta eina skipti
getur valdið miklum skaða og ljóst
er að fólk undir áhrifum þess er
ekki meðvitað um eigin hegðun og
gjörðir meðan áhrifin vara. Það að
lenda í fangaklefa yfir nótt líkt og
einhverjir hafa lent í væri langt í frá
það versta sem gæti komið fyrir,“
segir í tilkynningu lögreglu.
LSD hefur ofskynjunaráhrif sem
geta leitt til mikils ótta, ofsókn
aræðis og annarra andlegra ein
kenna sem setja neytendur í tals
verða hættu. Í verstu tilfellunum
getur slíkt ástand varað í nokkra
daga. – kbg
Lögreglan varar við LSD
Stefán Þór Arnarson, yfirkokkur Glacier
Goodies, segir viðbrögð við vagninum
hafa verið mjög góð. Mynd/EMil rEynir
2 3 . a p r í L 2 0 1 6 L a u g a r D a g u r8 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð
2
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
3
1
-B
3
7
4
1
9
3
1
-B
2
3
8
1
9
3
1
-B
0
F
C
1
9
3
1
-A
F
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K