Fréttablaðið - 23.04.2016, Blaðsíða 13
norðurlöndin
1
2
3
Þjóðarátak gegn
einsemd
1dAnMörK Þjóðarátak gegn ein-semd stendur nú yfir í Danmörku
en samkvæmt hópi sem stendur að
átakinu hafa yfir 200 þúsund manns
greint frá því að þeir séu oft ein-
mana. Fjöldi manns hefur tilkynnt
um þátttöku í átakinu gegn einsemd.
Stefnt verður að fjölmennum sam-
komum í næstu viku víða um landið.
Gert er ráð fyrir sameiginlegum
máltíðum auk annarra viðburða til
að fólk geti kynnst, spjallað saman og
notið samveru við aðra.
Tekjuafgangur í
konungshöllinni
2norEGur Tekjuafgangur í norsku konungshöllinni nam
20 milljónum norskra króna í fyrra,
einkum vegna þess að fjárveiting
sem var heimiluð til sérstakra
öryggisráðstafana eftir fjöldamorðin
í Útey í júlí 2011 hefur ekki verið
nýtt. Margir sérfræðingar vöruðu við
því í þessari viku að öryggi í kringum
konungshöllina væri ábótavant.
Upplýsingastjóri hallarinnar segir
greiningu á öryggismálum hafa tekið
lengri tíma en búist var við.
Ókeypis dömubindi
í framhaldsskóla
3SVÍÞJÓð Stjórnendur fram-haldsskólans Katedralskolan í
Lundi hafa orðið við beiðni femínista
í skólanum og ákveðið að kaupa
dömubindi handa nemendum. Þeim
verður komið fyrir í sérstökum skáp á
einni af snyrtingum skólans. Að sögn
femínistanna er oft skortur á dömu-
bindum hjá skólahjúkrunarfræð-
ingnum. Engin stelpa eigi að þurfa
að hlaupa út í næstu búð í miðri
kennslustund til að kaupa dömubindi
þegar hún fer á túr eða þjóta heim.
SJÚKLINGURINN Í ÖNDVEGI
Ársfundur Landspítala 2016 / Hilton Reykjavík Nordica 25. apríl, kl. 14:00
DAGSKRÁ
Ávarp
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra
Úr orrahríð í uppbyggingu
Páll Matthíasson forstjóri
Ársreikningur Landspítala 2015
María Heimisdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Nýjungar í starfsemi spítalans
Meðferðarátak gegn lifrarbólgu C
Sigurður Ólafsson, meltingar- og lifrarlæknir / Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir verkefnastjóri
Fjölbreytt nýting aðgerðarþjarka
Eiríkur Orri Guðmundsson þvagfæraskurðlæknir / Katrín Kristjánsdóttir kvensjúkdómalæknir
Nýtt flæði sýna á rannsóknarkjarna
Ísleifur Ólafsson yfirlæknir / Lísbet Grímsdóttir deildarstjóri
Batamiðstöðin á Kleppi - brú út í lífið
Erna Sveinbjörnsdóttir iðjuþjálfi / Rafn Haraldur Rafnsson íþróttafræðingur
Starfsmenn heiðraðir
Ásta Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs
Kaffiveitingar eftir fundinn
ATH! Fundurinn verður í beinni útsendingu á landspitali.is
Skráning á landspitali.is
ViðSKipti „Það verður örugglega
rætt,“ segir Ingólfur Hauksson,
framkvæmdastjóri Glitnis, um
hvort Glitnir muni grípa til aðgerða
eftir umfjöllun fjölmiðla um Ingi-
björgu Pálmadóttur, aðaleiganda
365 miðla, og Jón Ásgeir Jóhannes-
son, eiginmann hennar, byggða á
Panama-skjölunum svokölluðu.
Ingólfur segir þó enga ákvörðun
hafa verið tekna og vildi ekki tjá sig
frekar um málið.
Samkvæmt umfjöllun Kjarnans,
Stundarinnar og Reykjavik Media
greiddi félagið Guru Invest, skráð
í Panama og í eigu Ingibjargar, 2,4
milljarða inn á 3,3 milljarða skuld
félaganna 101 Chalet og Gaums. Jón
Ásgeir átti 41 prósents hlut í Gaumi
en Ingibjörg var ekki hluthafi í því.
Samkvæmt umfjölluninni afskrifaði
Glitnir því 900 milljónir af skuldum
félaganna. – ih
Glitnir veltir
fyrir sér
aðgerðum vegna
Panama-skjala
loftSlAGSMál Parísarsamkomu-
lagið, samkomulag um loftslagsmál
sem komist var að í París á síðasta
ári, var undirritað í húsnæði Sam-
einuðu þjóðanna í New York í gær.
Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráð-
herra undirritaði samkomulagið
fyrir hönd Íslands.
Alls undirritaði 171 ríki sam-
komulagið í gær, en aldrei hafa fleiri
ríki undirritað alþjóðasáttmála.
„París mun móta líf allra framtíð-
arkynslóða, framtíð þeirra er í húfi,“
sagði Ban Ki-moon, aðalritari Sam-
einuðu þjóðanna, við undirritunina
í gær. „Við erum í kapphlaupi við
tímann. Ég hvet allar þjóðir til að
skrifa undir samkomulagið,“ sagði
aðalritarinn enn fremur.
Samkomulagið snýst meðal
annars um að tryggja að hnattræn
hlýnun verði innan við tvær gráður
og að reynt verði að halda henni
innan við eina og hálfa gráðu. – þea
Samkomulag
um loftslagsmál
undirritað í gær
Ingibjörg Pálma-
dóttir, fjárfestir og
aðaleigandi 365
miðla, útgefanda
Fréttablaðsins.
François Hollande Frakklandsforseti og
Ban Ki-Moon, framkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna. NordIcPHotoS/AFP
f r é t t i r ∙ f r é t t A B l A ð i ð 13l A u G A r d A G u r 2 3 . A p r Í l 2 0 1 6
2
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
3
1
-8
B
F
4
1
9
3
1
-8
A
B
8
1
9
3
1
-8
9
7
C
1
9
3
1
-8
8
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K