Fréttablaðið - 23.04.2016, Page 26
1997 Platan Central Magnetizm
með Subterranean kom út. Quar
ashi gefur út plötu.
2000 Blaz Roca og Sesar A eru
meðal fárra sem rappa á íslensku.
Skytturnar rappa líka á íslensku
úti á landi. XXX Rottweiler vinnur
Músíktilraunir.
2001 XXX Rott
weiler og Sesar
A g e f a ú t
rappplötur á
íslensku. Senan
vaknar.
20022005 Þessi ár
kemur út fjöldinn allur af plötum:
Bent & 7berg – Góða ferð, Afkvæmi
guðanna – Ævisögur, Bæjarins
bestu – Tónlist til að slást við,
Skytturnar – Illgresið, Forgotten
Lores – Týndi hlekkurinn.
20062010 Útgáfa á íslensku
rappi lendir í smá lægð á þess-
um árum. Menn spila fyrir bjór
á skemmtistöðum og útgáfu-
fyrirtækin sýna rappi a.m.k.
ekki sama áhuga og á gullárum
rappsins. Lög koma út á netinu,
viðburðir eru haldnir en endur-
nýjun lítil og engir peningar.
20102013 Hlutirnir fara að
gerast á ný, nýir leikmenn fara að
verða til. Emmsjé Gauti gefur út
Bara ég 2011, Úlfur Úlfur rís upp
úr rústum Bróður Svartúlfs, Gísli
Pálmi gefur út myndbandið við
Set mig í gang og allt verður gjör-
samlega vitlaust.
20142016 Rappið er endan-
lega orðið „mainstream“. Sveita-
ballarokkið er horfið og Emmsjé
Gauti og Úlfur Úlfur eru komnir í
staðinn. Gísli Pálmi selur bílfarma
af geisladiskum. Alls konar plötur
koma út og eru spilaðar á Rás 2
eins og ekkert sé. Kött Grá Pjé
á heitasta lagið á landinu heilt
sumar, Úlfur Úlfur spilar þegar
Andri Snær tilkynnir framboð
sitt til forseta Íslands, Gauti er
kynnir í Ísland Got Talent og fólk
hneykslast á Gísla Pálma blóta á
RÚV.
„Hip hop er alls ataðar að verða
vinsælla. Það sem er að gerast á
Íslandi er að öll framleiðsla er
komin á heimsmælikvarða. Allt í
einu er hægt að bera íslensku sen-
una saman við útlönd,“ segir Arnar
Guðni Jónsson, betur þekktur sem
Prince Puffin úr Shades of Reykja-
vík. Allt frá því að Shades of Reykja-
vík sendi frá sér sitt fyrsta lag, fyrir
um fimm árum, hafa þeir farið
frumlegar leiðir og vakið athygli.
„Það hefur ekki síst að gera með
tæknina. Okkar fyrstu lög voru
gerð í stofunni heima.“ Hann segir
íslensku senuna hafa breyst.
„Einu sinni snerist rapp um að
segja frá lífi þínu, sem er alveg enn
þá en lögin snúast miklu meira
um væb. Þú þarft ekkert að skilja
allt. Þess vegna eru t.d. gæjar frá
Niepye-Kóreu að slá í gegn í Banda-
ríkjunum, en rappa samt á kóresku.
Það er verið að leita að flæði. Bítin
og taktarnir á Íslandi eru á heims-
mælikvarða,“ útskýrir Arnar, sem
er á leið til BNA í tónleikaferða-
lag. „Það voru einhverjir amerískir
gæjar sem fundu okkur á Youtube
og Emmi Beats, úr Shades of Reykja-
vík, endaði á því að pródúsera hálfa
plötuna þeirra!“
Arnar segist hafa ástríðu fyrir
rappi . „Mann langar til þess að búa
til eitthvað sem lifir með fólki. Hjá
okkur snýst þetta ekki um peninga,
heldur hvað þú gerir og hvernig
manneskja þú ert.“
Rapp í Reykjavík
Auðvelt er að færa rök fyrir því að
íslenskt rapp sé á blómaskeiði. Hér er
farið stuttlega yfir söguna og stöðuna.
Halldór Halldórsson, betur þekkt-
ur sem Dóri DNA tekur rappara
Reykjavíkur tali í heimildarþátt-
unum Rapp í Reykjavík sem hefja
göngu sína á Stöð 2 á sunnudags-
kvöld.
„Undanfarin ár hefur eitthvað
rosalegt verið að grassera sem svo
sprakk út árið 2015. Við vildum
bara heyra í þessu liði. Taka púlsinn.
Þetta eru miklir listamenn, fjöl-
listamenn, ekki bara rapparar og
söngvarar og tónlistarmenn heldur
leikstjórar, hönnuðir og gjörninga-
listamenn. Þeir eru geggjað dót.
Íslenskt rapp er svo stórt og geggjað
núna – ekki bara eitthvað sem
maður heyrir heldur sér,“ segir Dóri.
„Gísli Pálmi finnst mér bilaður –
svo Emmsjé Gauti og Arnar úr Úlfur
Úlfur. Blær úr Reykjavíkurdætrum
er líka með þeim nettari – Salka og
Jóhanna geggjaðar. Ég hlusta líka
á allt sem Alexander Jarl gefur út.
Erpur og Bent verða bara betri og
betri. Hr. Hnetusmjör og Joe Fra-
zier er líka drullu geggjaðir. GKR.
Æ, vá, ég nefni eiginlega alla. Ég
dýrka þetta. Íslenskt rapp í dag er
hlaðborð og veisla, ólíkir listamenn,
ólík tónlist og endalaus uppspretta
af gulli.“
Dóri DNA var ungur þegar hann
hóf ferilinn í rappi, 12 ára rappaði
hann ásamt lúðrasveit Mosfells-
bæjar á alþjóðlegu lúðrasveitar-
móti í Gautaborg. Síðan lenti hann
í þriðja sæti á Rímnaflæði árið 2000
með rapphljómsveitinni Lyrical
Science Crew. Dóri kynntist svo
Daníel Ólafssyni, betur þekktum
sem Danna Deluxe, sem var vinur
strákanna í XXX Rottweiler hund-
um og í Afkvæmum guðanna. Þeir
stofnuðu Bæjarins bestu og má kalla
það hátind ferils Dóra. Síðan hafa
margir bæst í rappflóruna.
En hvernig er tilfinningin að vera
svona hálfgerður pabbi rapp í þátt-
unum?
„Hún er fín. Ég er faðir Halldór. Ég
var mjög ungur á sínum tíma þegar
ég byrjaði í rappi, gaf út plötu 17 ára.
Er núna þrítugur svo mér líður ekk-
ert eins og einhverjum Bítli innan
um þetta lið,“ segir Dóri og hlær.
„Þetta er fólk á minni bylgju-
lengd, með sömu hugðarefni. Allir
skemmtilegir. Hvort sem það er
að láta Alexander Jarl pakka mér
saman í jiu jitsu í Mjölni, eða tsjilla
með Blævi úr Reykjavíkurdætrum
baksviðs í Borgarleikhúsinu.“
Hvernig hefur senan breyst síðan
þú varst á hátindi ferilsins?
„Þetta er svalara, á sér breið-
ari hlustendahóp, fylgir alþjóð-
legu trendi og æ, mér finnst þetta
almennt miklu geggjaðra. Svo er
þetta orðið svo sjónrænt. Einu sinni
var svo mikið vesen að gera mynd-
band, hvað þá flott myndband.
Núna geta allir hent í eitthvað. Mér
finnst líka menn orðnir færari í því
að rappa á íslensku. Búnir að finna
ryþmann betur og það á líka við um
menn eins og Bent
og Erp sem eru enn
þá að.“
Dóri segist hlusta
mikið á íslenskt
rapp, en er sjálfur
hættur. „Já, ég
vaknaði upp einn
daginn, fljótlega
eftir að Gísli Pálmi gaf
út Set mig í gang. Horfði
í spegil og hugsaði: Ég er
ekkert þarna lengur. Þá
var líka uppistandið og
leikhúsið farið að freista
mín. Ég valdi rétt.“
saga rappsins
Ég er faðir halldór
senan er á heimsmælikvarðaalltaf vitað að rapp er nett
„Ég var byrjaður að hlusta á rapp, en
þegar Rottweiler unnu Músíktilraunir
fer ég að semja sjálfur. Þá hugsaði ég,
þetta er alveg hægt á íslensku. Ég
hafði prófað að semja á ensku, þegar
ég var 11 ára, djúpa og flotta enska
texta. Sem betur fer fór það aldrei á
netið,“ segir Gauti Þeyr Másson, betur
þekktur sem Emmsjé Gauti. Hann hóf
ferilinn um 2002 og hefur verið rapp-
andi meirihluta ævi sinnar, en hann er
fæddur 1989. Gauti hefur gefið út tvær
plötur, Bara ég, og Þeyr, en sú þriðja er
væntanleg. „Senan varð kúl með Rott-
weiler en síðan kom aftur lægð. Þetta
kemur í bylgjum. Rapp hætti að vera
nett, en það verður að gerast stundum
til að sigta út lúðana sem eru að rappa
því öðrum finnst það nett. Svo sprakk
þetta aftur út 2013.“ Gauti nefnir Gísla
Pálma og Úlf Úlf. „Þessir gaurar eru
með risa tónleika og það er uppselt.
Andri Snær býður sig fram til forseta
og vill Úlf Úlf til að spila fyrir sig. Gísli
Marteinn er farinn að segja, bara ég
og strákarnir,“ segir Gauti hlæjandi
og vísar í eitt vinsælasta lag sitt sem
heitir einmitt Strákarnir.
„Fólk er búið að átta sig á því sem ég
hef alltaf vitað. Rapp er nett.“
Auð-
vitAð
er þettA gróft
sums stAðAr en
þettA er rAun-
veruleikinn
eins og hAnn er.
Andri snær
býður sig
frAm til forsetA og
vill Úlf Úlf til Að spilA.
Ég dýrkA
þettA.
Íslenskt
rApp Í dAg er hlAðborð
og veislA, ólÍkir listA-
menn, ólÍk tónlist og
endAlAus uppsprettA
Af gulli.
Gísli Pálmi hefur verið þekktur í
íslensku rappsenunni síðan lagið
Set mig í gang kom út árið 2011.
Þar stóð Gísli Pálmi ber að ofan
fyrir framan Range Rover-jeppa
og rappaði. Síðan fylgdu fleiri lög
og myndbönd og síðar plata, sem
kom út í fyrra.
„Ég man varla eftir öðru eins,“
sagði Ásmundur Jónsson, eigandi
plötuútgáfunnar og verslunarinnar
Smekkleysu, um söluna á plötu
rapparans í viðtali.
Það varð brátt ljóst að Gísli Pálmi
hafði breytt íslensku rappsenunni.
Textar Gísla vekja gjarnan eftir-
tekt, en þeir fjalla oft á tíðum um
eiturlyf og ýmislegt sem gæti
flokkast undir misferli. Í viðtali við
Rokkland á Rás 2 sagði Gísli:
„Hvaða góðir tónlistarmenn eru
góðar fyrirmyndir? Það er ekki
það sem ég er að reyna að skapa.
Þetta er bara lífsreynslan mín og
ég reyni meira að segja að fela hlut-
ina, dempa þá niður og dulkóða þá.
Auðvitað er þetta gróft sums staðar
en þetta er raunveruleikinn eins og
hann er,“ sagði Gísli Pálmi í þætt-
inum.
gísli pálmi breytti senunni
Ólöf
Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
Stefán Þór Hjartarson
stefanthor@frettabladid.is
2 3 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r26 h e l G i n ∙ F r É T T a B l a ð i ð
2
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
3
1
-B
8
6
4
1
9
3
1
-B
7
2
8
1
9
3
1
-B
5
E
C
1
9
3
1
-B
4
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K