Fréttablaðið - 23.04.2016, Blaðsíða 32
Kjör Vigdísar Finnbogadóttur sem
forseta Íslands vakti heimsathygli
þar sem hún var fyrsta konan til
að vera lýðræðislega kjörin forseti.
Margir reyndu að grafa undan fram-
boði hennar. „Getur einstæð móðir
verið forseti?“ spurðu margir.
En Vigdís sannaði það að einstæð
móðir gat svo sannarlega verið for-
seti enda var hún farsæll forseti
menningar og landkynningar.
Ljóst var að Vigdís ætlaði sér ekki
að vera íhlutunarsamur forseti og
heldur í þá skoðun enn í dag. „Hann
á að hafa jákvæð áhrif og uppbyggi-
leg áhrif en hann á ekki að vera í
valdastússi. Við höfum þjóðkjörið
þing til þess að leiða okkur áfram
í stjórnmálum,“ sagði hún í viðtali
við Ríkisútvarpið snemma árs 2014.
Þó lét hún nokkrum sinnum
reyna á vald sitt sem forseti. Árið
1985 stóðu flugfreyjur í verkfalli og
ríkisstjórnin hafði samþykkt lög
um bann við verkfallinu. Það vildi
svo til að samþykktin bar upp á tíu
ára afmæli kvennafrídagsins. Vigdís
harðneitaði að undirrita lögin strax
þar sem henni þótti þau vanvirðing
við konur heldur undirritaði hún
lögin að deginum loknum.
Árið 1993 samþykkti Alþingi
aðildarsamning Íslands að Evr-
ópska efnahagssvæðinu en það
mál hafði verið mikið í umræðunni
og klauf þjóðina. Alls söfnuðust
34 þúsund undirskriftir þar sem
skorað var á Vigdísi að synja lög-
unum staðfestingar. Hún varð ekki
við þeirri áskorun sem að hennar
sögn var henni afar erfitt, en hún
túlkaði það sem svo að það væri
ekki hlutverk forseta að fara gegn
valdi þingsins.
1980 – 1996 Vigdís Finnbogadóttir
Kjörið braut blað í mannkynssögunni
Á lýðveldishátíðinni 17. júní 1944
var Sveinn Björnsson kjörinn fyrsti
forseti Íslands.
Sveinn var þá umdeildur stjórn-
málamaður. Segja má að kosningin
sjálf hafi ekki endurspeglað þann
hátíðarbrag sem var á Þingvöllum
þennan dag en Sveinn hlaut einungis
atkvæði 30 þeirra 52 þingmanna sem
þá sátu á Alþingi. En þá var forseti
kosinn af Alþingi.
Í ríkisstjórnartíð sinni skipaði
Sveinn fyrstu og einu utanþingsstjórn
sem starfað hefur á Íslandi, undir for-
ystu Björns Þórðarsonar árið 1942 í
kjölfar stjórnarkreppu.
Í forsetatíð sinni þótti stjórnmála-
mönnum Sveinn vera full íhlutunar-
samur um stjórnarmyndanir, sér í
lagi árin 1947 og 1950. Tvívegis var
lagt hart að honum að synja lögum
um Keflavíkursamninginn og aðild
Íslands að NATO en í hvorugt skipti
lét hann undan. Sveinn var þeirrar
skoðunar að málskotsrétti ætti bara
að beita í ýtrustu neyð.
Sveinn er eini forseti Íslands sem
hefur dáið í embætti, en hann féll frá
eftir veikindi árið 1952.
1944 – 1952 sVeinn björnsson
Sameiningartáknið
íhlutunarsama
Ólafur Ragnar Grímsson sigraði
nokkuð örugglega í forsetakosning-
unum árið 1996. Eftir tvo ópólitíska
forseta var þarna kominn gamal-
reyndur stjórnmálamaður.
Ólafur braut blað í sögu embættis-
ins árið 2004. Þá samþykkti ríkis-
stjórn Davíðs Oddssonar umdeild
lög sem takmörkuðu eignarhald á
fjölmiðlum. Ólafur ákvað í kjölfarið
að virkja 26. grein stjórnarskrárinnar
í fyrsta sinn í sögunni og synjaði lög-
unum staðfestingar og vísaði þeim í
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þennan leik endurtók Ólafur árið
2010 og 2011 eftir að ríkisstjórn
Jóhönnu Sigurðardóttur hafði sam-
þykkt lög um Icesave-samninginn.
Ólafur hefur setið lengst allra for-
seta eða í 20 ár. Í nýársávarpi í ár tók
hann allan vafa af og sagðist ekki ætla
sér að bjóða sig aftur fram. Nú í apríl
snerist honum hugur og tilkynnti
framboð sitt í sjötta sinn.
Nokkrum dögum áður leitaði Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson for-
sætisráðherra til Ólafs og óskaði eftir
þingrofi. Ólíkt því sem Kristján Eld-
járn gerði árið 1974 hafnaði Ólafur
beiðni Sigmundar.
Ólíkt mörgum fyrirrennurum hans
hafa erfiðar stjórnarmyndunarvið-
ræður ekki einkennt forsetatíð Ólafs.
Framtíðin ein mun leiða í ljós hvort
Ólafur nær endurkjöri í komandi for-
setakosningum og kjósi jafnvel að feta
nýjar slóðir við stjórnarmyndanir á
Íslandi líkt og hann hefur gert á svo
mörgum öðrum sviðum.
1996 – 20?? ólaFur ragnar grímsson
Endurmótaði forsetaembættið
Í innsetningarræðu sinni árið 1968
var það ljóst að Kristján Eldjárn,
nýkjörinn forseti, ætlaði sér ekki
að hlutast til í stjórnmálunum líkt
og forverar hans. „Til Alþingis, sem
þjóðin sjálf hefur kjörið, og þeirrar
ríkisstjórnar, sem er í landinu á
hverjum tíma, hlýtur þjóðin að líta
sér til trausts og halds,“ sagði hann í
innsetningarræðunni.
Þó átti eftir að reyna á hlutskipti
Kristjáns en á meðan hann sat sem
forseti var mikið um óróa í hinum
daglegu stjórnmálum á Íslandi.
Kristján Eldjárn kappkostaði að
halda hlutleysi sínu og setti forsætis-
ráðherra aldrei stólinn fyrir dyrnar.
Árið 1974 óskaði Ólafur Jóhannesson,
þáverandi forsætisráðherra, eftir því
að þing væri rofið og varð Kristján
við því.
Erfiðar stjórnarmyndanir ein-
kenndu forsetatíð Kristjáns og það
reyndi á hlutverk hans sem ópólitísks
forseta. Hann fylgdi skýrum reglum
við úthlutun stjórnarmyndunar-
umboðs en eftir að alþýðuflokks-
mönnum og sjálfstæðismönnum
tókst ekki að mynda ríkisstjórn veitti
Kristján Lúðvík Jósepssyni, formanni
Alþýðubandalags, stjórnarmyndun-
arumboð sem vakti mikla hneykslan
hægrimanna í landinu.
Í síðasta nýársávarpi sínu sagði
hann að þrátt fyrir óvissutíma væri
enginn maður ómissandi.
1968 – 1980 Kristján eldjárn
Hlutleysið var öllu ofar
Eftir andlát Sveins Björnssonar rann
upp fyrir almenningi og stjórnmála-
mönnum að senn gengju í garð fyrstu
almennu forsetakosningarnar þar
sem almenningur hafði lokaorðið.
Stjórnmálaflokkarnir á Alþingi
hugsuðu sér gott til glóðarinnar byrj-
uðu strax að hlutast til um hver yrði
verðugur arftaki Sveins. Ólafi Thors,
sem þá var formaður Sjálfstæðis-
flokksins, hafði þótt Sveinn of íhlut-
unarsamur sem forseti.
Forystumenn stjórnarflokka þess
tíma, Sjálfstæðisflokks og Framsókn-
ar, sammæltust um að séra Bjarni
Jónsson vígslubiskup yrði þeirra
frambjóðandi.
Ásgeir Ásgeirsson, sem hafði
unnið sér til frægðar að vera þing-
maður Framsóknar og Alþýðuflokks,
þingforseti og forsætisráðherra, lét
stjórnarflokkana ekki draga úr sér
kjark og lét slag standa. „Forsetaefni
þjóðarinnar“ og „Fólkið velur forset-
ann“ voru fyrirsagnir í stuðningsriti
Ásgeirs sem hefur vafalaust haft sín
áhrif enda bar hann sigurorð af Bjarna
í kosningunum, þó með litlum mun.
Ásgeir, sem var stuðningsmaður
vestrænnar samvinnu, beitti sér gegn
því að Alþýðubandalagið ætti aðild
að ríkisstjórn og lýsti þeirri skoðun
sinni við erlenda ráðamenn að hann
væri andvígur stefnu vinstristjórnar-
innar sem tók við völdum 1956 um
að reka herinn af landi brott. Við
stjórnarmyndun 1958 hlutaðist
hann til um að Hermann Jónasson,
formaður Framsóknarflokksins,
fengi ekki umboð til að glæða vinstri-
stjórnina aftur lífi heldur greiddi
Ásgeir götu þess að Viðreisnarstjórn
yrði mynduð.
Segja má að Ásgeir hafi verið
kosinn sem forseti þjóðarinnar en á
bak við tjöldin gekk hann erinda sér-
stakra flokka.
1952 - 1968 ásgeir ásgeirsson
Völdin á bak við tjöldin
Forsetar Íslands í áranna rás
Íslendingar ganga að kjörborðinu í lok júní til að kjósa forseta en Ólafur Ragnar Grímsson hefur gefið
kost á sér í sjötta sinn. Hver og einn forseti hafði sínar hugmyndir um embættið og gengu þær mis-
langt í að hlutast til um gang samfélagsmála á Íslandi. Hér verður farið stuttlega yfir sögu þeirra.
Enginn hefur gott
af því að komast
á það stig að fara að ímynda
sér að hann sé ómissandi.
Ég tek nú við for-
setastarfinu með
óbreyttum ásetningi um að
rækja störf mín samkvæmt
viðurkenndum venjum
nútímans í lýðfrjálsum
ríkjum, þar sem þjóðhöfð-
ingjavaldið er þingbundið.
Það er þjóðar-
nauðsyn að áhrif
forsetans til samstarfs og
sátta séu sem ríkust, og þá
sérstaklega, þegar stjórnar-
myndun stendur fyrir
dyrum.
Íslendingar höfðu
þá brotið blað í
mannkynssögunni, með því
að velja konu sem forseta
lands síns fyrstir allra í
almennum kosningum.
Í þessu umróti
óvissu og mót-
mæla og í kjölfar nýliðinna
atburða hefur fjöldi fólks
víða að úr þjóðfélaginu á
undanförnum vikum höfðað
til skyldu minnar.
Stefán Rafn
Sigurbjörnsson
stefanrafn@frettabladid.is
2 3 . a p r í l 2 0 1 6 l a u g a r d a g u r32 h e l g i n ∙ F r É t t a b l a ð i ð
2
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
3
1
-7
D
2
4
1
9
3
1
-7
B
E
8
1
9
3
1
-7
A
A
C
1
9
3
1
-7
9
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K