Fréttablaðið - 23.04.2016, Page 42
Sjónvarpsþátturinn Ligeglad hefur
fengið afar góðar viðtökur meðal
landsmanna á öllum aldri. Næst-
síðasti þáttur seríunnar verð-
ur sýndur á morgun, sunnudag,
en þættirnir segja frá ævintýra-
legu ferðalagi þeirra Önnu Svövu,
Helga Björns og Vignis Rafns í
Danmörku.
Hugmyndin að þáttunum er um
fjögurra ára gömul að sögn Vign-
is Rafns Valþórssonar og fæddist
vafalaust yfir kaffibolla eða bjór-
glasi. „Upphaflega pælingin var að
reyna að finna verkefni þar sem
við vinirnir gætum unnið eitthvað
saman í útlöndum og fengið smá
frí í leiðinni. Eitthvað misreikn-
uðum við okkur því tökuferlið
var stanslaus vinna í fimm vikur
þegar á hólminn var komið og við
fengum frí rétt yfir blánóttina.“
Of stórar hugmyndir
Handritshöfundar Ligeglad eru
Anna Svava og Vignir, sem hafa
þekkst síðan þau voru saman í
Leiklistarskólanum, og leikstjór-
inn Arnór Pálmi Arnarsson. „Anna
Svava og Arnór hófu handritsvinn-
una og ég kem síðar inn í hópinn.
Á þessu tímabili köstuðum við
mikið Ævintýri Og
smá misskilningur
Landsmenn hafa skemmt sér vel yfir Ligeglad undanfarnar vikur þar
sem ýktar persónur og vandræðalegar aðstæður skipa stóran sess.
Tökuferlið var fimm vikna stanslaus vinna en allir skemmtu sér vel.
„Það myndaðist fljótt sérstakur og skemmtilegur mórall eins og gerist oft í svona
verkefnum,” segir Vignir Rafn Valþórsson. MYND/PJETUR
Vignir Rafn Valþórsson og Anna Svava Knútsdóttir á góðri stundu á Strikinu.
DRAKE SÓFI
ÁÐUR: 225.000.-
NÚ: 112.500.-
MESOLA TUNGUSÓFI
ÁÐUR: 275.000.-
NÚ: 137.500.-
MESOLA
ÁÐUR: 195.000.-
NÚ: 97.500.-
LAND SÓFI
ÁÐUR: 275.000.-
NÚ: 137.500.-
SALOON LEÐURSÓFI
ÁÐUR: 470.000.-
NÚ: 235.000.-
SÓFADAGAR
FYRSTUR
KEMUR
FYRSTUR
FÆR
50%
afsláttur
af völdum
sófum
HIVE LOFTLJÓS
TILBOÐSVERÐ
11.600.-
APERTURE PAPPALJÓS
3 STÆRÐIR
TILBOÐSVERÐ FRÁ
9.360 – 23.400.-
CAGE KOPARLJÓS
2 STÆRÐIR
TILBOÐSVERÐ FRÁ
10.000.-
BIRMAN BASTLJÓS
2 STÆRÐIR
TILBOÐSVERÐ FRÁ
11.600.-
MARLOWE LOFTLJÓS
TILBOÐSVERÐ
11.600.-
ALIUM SILVUR
TILBOÐSVERÐ
3.120.-
FLEX SKRIFBORÐSLAMPI
TILBOÐSVERÐ
10.000.-
HIVE BORÐLAMPI
TILBOÐSVERÐ
15.600.-TRIPOD STANDLAMPI
OG SKERMUR
TILBOÐSVERÐ
39.600.-
SOL STANDLAMPI
SVARTUR TILBOÐSVERÐ
19.200.-
PENDRY BORÐLAMPI
TILBOÐSVERÐ
18.000.-
SMALL WORK
SKRIFBORÐSLAMPI
TILBOÐSVERÐ
15.600.-
PENDRY STANDLAMPI
39.600.-
DUMBO
3 LITIR
TILBOÐSVERÐ FRÁ
2.320.-
NÝ
SENDING
FRÁ
HABITAT
LAMPA
OG
LJÓSA-
DAGAR
20%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
LÖMPUM
OG LJÓSUM
FÖS, LAU
OG SUN
TEKK COMPANY OG HABITAT | SKÓGARLIND 2, KÓPAVOGI
SÍMI 564 4400 | OPIÐ MÁN-LAU KL. 10–18 OG SUN KL. 12–17
VEFVERSLUN Á WWW.TEKK.IS
hugmyndum milli okkar fram og
til baka. Stundum fengum við of
stórar hugmyndir þar sem þurfti
að skrifa kringum hlutina til að
leysa þær. Um leið fæddust bara
aðrar betri hugmyndir og þannig
byggðist handritið upp smátt og
smátt með tímanum.“
Þættirnir voru teknir upp í
október í fyrra á Stór-Kaupmanna-
hafnarsvæðinu. „Þótt þetta hafi
verið mikil vinna var hún um leið
mjög skemmtileg. Með okkur var
hópur danskra starfsmanna sem
voru virkilega góðir og vel skipu-
lagðir.“
dOktOrsgráða í partíum
Stemningin var frábær á töku-
stað, enda ekki annað hægt þegar
Helgi „fokking“ Björns er með í
för. „Þetta var frábær tími þótt við
hefðum geta þegið fleira starfs-
fólk. Það myndaðist fljótt sérstak-
ur og skemmtilegur mórall eins
og gerist oft í svona verkefnum.
Svo er það með Íslend-
inga í útlöndum, þeir
kunna að skemmta
sér þar. Það var
heldur ekkert
slæmt að hafa
með mesta stuð-
bolta landsins,
sjálfan Helga
„fokking“
Björns, sem er
með doktors-
gráðu í partíum.
Hann er alveg
jafn skemmtilegur
og hann lítur út fyrir
að vera og mikill töffari.
Það er ekki leiðinlegt, þegar
maður reynir að vera töff, að hafa
sjálfa prótótýpuna með sér.“
ýktari týpur
Aðalpersónurnar þrjár eru sam-
nefndar leikurunum þremur og
byggja í grunninn á þeim. Það er
þó ekki hægt að setja samasem-
merki milli hvers leikara og þeirr-
ar persónu sem hann leikur að
sögn Vignis. „Þetta eru auð vitað
talsvert ýktari týpur af okkur
þremur þótt þær séu í grunninn
byggðar á okkur enda bera þær
allar sama nafn og við. Viggi í
þáttunum er auðvitað ekki Vign-
ir Rafn Valþórsson þótt við tveir
eigum eitthvað sameiginlegt. Við
tókum ýmsa eiginleika í hverjum
leikara og skrúfuðum þá alveg í
botn. Sérstaklega er Anna Svava
ýkt í þáttunum og gerir og segir
ýmsa hluti sem hún myndi aldrei
taka sjálf þátt í. Hugmyndinni er
auðvitað stolið frá þáttum á borði
við Klovn og Curb Your Enthusi-
asm. Við erum því alls ekki að
finna upp hjólið og skömmumst
okkur ekki fyrir það.“
fullt listrÆnt frelsi
Viðtökur landsmanna hafa verið
mjög góðar og eru aðstandend-
ur þátttanna himinlifandi yfir
þeim. „Ég vonaði auðvitað það
besta enda lögðum við upp með að
búa til sjónvarp sem okkur þætti
skemmtilegt. Sjálfur ætlaði ég
aldrei að búa til „enn einn helvít-
is sjónvarpsþáttinn“ enda ekkert
mál að búa bara til eitthvert sjón-
varpsefni. Þátturinn virðist þar að
auki ná til breiðs aldurshóps sem
gleður okkur enn meira. RÚV á
hrós skilið fyrir að þora að hleypa
okkur í gegn. Í þáttunum eru
nokkrir brandarar sem einhverjir
hefðu vafalaust stoppað
en við fengum fullt
listrænt frelsti
og traust frá
þeim. Svo er
bara að sjá
til hvort
framhald
verði á
þessu
sam-
starfi en
vonandi
líða þó ekki
önnur fjög-
ur ár.“
föst á eyju
Undanfarin þrjú ár hefur Vignir
að mestu leyti leikstýrt sýningum
í Borgarleikhúsinu og um helgina
og næstu helgi verða síðustu sýn-
ingar á Illsku, verki sem hann
stýrir og er byggt á skáldsögu Ei-
ríks Arnar Norðdahl. „Svo er bara
sumarið fram undan, ef það kemur
einhvern tíman. Unnusta mín, Þór-
unn Arna Kristjánsdóttir, er föst á
grískri eyju á fjölum Borgarleik-
hússins langt fram á sumar. Þegar
hún losnar úr þeirri ánauð gerum
við eitthvað saman ásamt tveggja
ára dóttur okkar. Svo þarf ég allt-
af að komast til Svíþjóðar, a.m.k.
einu sinni á ári. Ég fæddist í fyrir-
myndarríkinu og þangað fer ég til
að hlaða batteríin á hverju ári.“
Helgi Björns og Vignir
Rafn.
2 3 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r4 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n i n G a r b l a ð ∙ h e l G i n
2
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
3
1
-F
D
8
4
1
9
3
1
-F
C
4
8
1
9
3
1
-F
B
0
C
1
9
3
1
-F
9
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K