Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1983, Page 176

Skírnir - 01.01.1983, Page 176
170 LÚÐVÍK KRISTJÁNSSON SKIRNIR leyfi án takmarka að leita hafnar til að afla vista. Sýnt er, að Atkinson var lausn þessi mjög umhuguð, og hét aftur á móti að fallist yrði á landhelgis- línu í samræmi við Haag-samþykktina frá 1882 og Bretar afsöluffu sér þeim rétti, sem þeir töldu sig hafa til að veiða á fjörðum og flóum. Ennfremur bauð hann að togarar fiskuðu ekki nær Reykjavík en 8 mílur. En ef frum- varpið yrði fellt hótaði hann að togarar veiddu upp að þriggja mílna mörk- unum og til þess mundu þeir jafnvel njóta herverndar. Alþingi samþykkti frumvarpið með fyrrgreindum breytingum og voru lögin staðfest í apríl 1898. Lítill vafi er á að áhrifa Atkinsons gætti við afgreiðslu málsins. Telja má, að með loforðum hans fyrir hönd Breta og samþykkt þingsins hafi, eins og Jón bendir á, verið „lagður grundvöllur að þeirri skipan landhelgismála, sem gilti hér við land í hálfa öld, þótt fullnað- arsamningur yrði ekki gerður fyrr en 1901". Síðan eru í þessum kafla raktar ítarlega viðræður Breta og Dana um að ná sátt til frambúðar í landhelgisdeilunni. Þar er margt nýtt leitt í Ijós, sem styður þá skoðun, að hlutur Dana hafi ekki verið eins bágur og löngum hefur verið haft á orði. Þessi viðskipti Breta og Dana enduðu með landhelgis- samningnum 1901, en hann kom til framkvæmda 1903. Samningurinn var gerður án þess að bera hann undir Alþing. Þingmönnum var hins vegar kunnugt um efni hans, en sáu ekki ástæðu til að mótmæla. Bindingin, sem fólst í landhelgissamningnum, hlaut í framrás tímans að ýta undir þá skoðun, að Danir hefðu verið hlunnfærðir og að þeir hefðu kaupslagað með rétlindi íslendinga. En cins og Jón greiðir úr öllu þessu rnáli er full ástæða til að fallast á niðurstöðu hans: „Þegar á allt er litið verður ekki annað sagt en dönsk stjórnvöld hafi haldið skynsantlega á land- helgismálinu um síðustu aldamót og bjargað því sem bjargað varð.“ í fimmta kafla ritsins er fjallað um veiðarfæri og veiðisvæði Breta. Þeir smáfærðu út kvíar frá þvt að byrja við Austfirði, halda til suðurstrandar- innar og inn í Faxaflóa 1895. Fjórum árum síðar vortt þeir byrjaðir veiðar á Vestfjarðamiðum. í upphafi voru togararnir hér yfir sumarið, en úthalds- tími þeirra lengdist brátt og 1902 er orðið algengt, að þeir séu hér allt árið. Fyrir fyrri heimsstyrjöld eru veiðiferðir margra þeirra orðnar 12— 14 á ári. Fjöldi skipanna er sagður 90 árið 1902 og þrem árum síðar um 150. — í þess- um kafla er gerð grein fyrir heildarafla skipanna á árunum 1904—1916. Fyrra árið er hann 2560 smálestir, en tíu árum síðar 130 þúsund smálestir. Gerð er grein fyrir skiptingu aflans eftir tcgundum á fyrrnefndu tímabili. í sjötta kafla er sagt frá landhelgisgæslunni, afskiptum hennar af togur- unum, skipakostinum og hvert var hlutverk gæslunnar. Fjallað er um árang- ur dönsku landhelgisgæslunnar, samvinnu hennar við landsmenn og fyrstu tilraunir íslendinga til landhelgisgæslu. Viðskipti togaramanna við íslend- inga eru ítarlega rakin, og vitanlega kemur „tröllafiskurinn" þar við sögu, en svo nefndist fiskurinn, sem landsmenn ýmist keyptu eða fengu gefins hjá Bretum. — í lokakafla dregur Jón saman í stórum dráttum efni ritsins og stefnir þannig að niðurstöðu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.