Morgunblaðið - 10.07.2015, Síða 8

Morgunblaðið - 10.07.2015, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2015 Þótt Styrmir Gunnarsson sé ekkilengur formlega á vaktinni yfir málefnum Evrópu, sambandinu sem við álfuna er kennt og myntinni sem er svo illa lukkuð, þá fylgist hann áfram vel með. Nú síðast skrifar hann:    Guy Verhofstadt,fyrrum for- sætisráðherra Belg- íu og nú þingmaður á Evrópuþinginu segir í grein á evr- ópuútgáfu banda- ríska vefmiðilsins politico, að Grikk- land sé sjúkdóms- einkenni þeirrar kreppu, sem Evrópa horfist í augu við.    Báðir aðilar hafigert mistök. Grikkir hafi aldr- ei snúið baki við fortíðinni. Evrópa hafi fylgt stefnu bókhaldarans, sem hafi kæft efnahag Grikklands.    Grikkir verði að sýna að þeir hafibolmagn til að láta Grikkland stjórnast af lögum og reglum.    Evrópa verði að setja upp einskonar endurreisnarsjóð skuld- ugra þjóða.“    Í þessum orðum virðist forsætis-ráðherrann fyrrverandi gæta sæmilegs jafnvægis.    Því var þó ekki að heilsa þegarforsætisráðherra Grikklands ávarpaði þingmannasamkundu ESB þegar hann mætti til Brussel eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna.    Verhofstadt og fleiri þingmennhelltu sér þá yfir gestinn af miklu yfirlæti eins og sjá má af myndböndum. Guy Verhofstadt Eru þeir að sjá að sér? STAKSTEINAR Styrmir Gunnarsson Æ G I S G A R Ð I 2 , 1 0 1 R E Y K J A V Í K , S Í M I 5 1 2 8 1 8 1 VERIÐ VELKOMIN Á NÝJAN VEITINGASTAÐ Í RAUÐA HÚSINU VIÐ GÖMLU HÖFNINA Í REYKJAVÍK Veður víða um heim 9.7., kl. 18.00 Reykjavík 15 skýjað Bolungarvík 10 skýjað Akureyri 8 alskýjað Nuuk 11 léttskýjað Þórshöfn 11 skýjað Ósló 13 heiðskírt Kaupmannahöfn 13 skýjað Stokkhólmur 15 skýjað Helsinki 16 skýjað Lúxemborg 20 heiðskírt Brussel 17 léttskýjað Dublin 17 skýjað Glasgow 15 skýjað London 22 heiðskírt París 22 heiðskírt Amsterdam 16 léttskýjað Hamborg 15 léttskýjað Berlín 17 léttskýjað Vín 22 skúrir Moskva 23 léttskýjað Algarve 25 heiðskírt Madríd 38 heiðskírt Barcelona 27 heiðskírt Mallorca 27 léttskýjað Róm 28 heiðskírt Aþena 31 heiðskírt Winnipeg 21 alskýjað Montreal 21 alskýjað New York 21 alskýjað Chicago 19 alskýjað Orlando 30 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 10. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:27 23:40 ÍSAFJÖRÐUR 2:43 24:34 SIGLUFJÖRÐUR 2:23 24:20 DJÚPIVOGUR 2:46 23:20 Útihátíð í kristilegri kantinum verð- ur haldin í Hljómskálagarðinum á morgun, laugardag. Boðið verður upp á maraþondagskrá í tólf tíma frá hádegi til miðnættis. Sviðið verður sunnan við Hljómskálann. Andrés Bertelsen er einn skipu- leggjenda hátíðarinnar, en hann seg- ir þau þurft að hafa skjótar hendur þar sem leyfi til hátíðarhaldsins hafi einungis borist fyrir tveimur vikum. Á hátíðinni treður upp stór hópur gospeltónlistarfólks úr öllum áttum kristinnar hefðar og skemmtir gest- um og gangandi, en aðgangur verð- ur ókeypis. Listinn yfir tónlistarfólkið sem treður upp er eðlilega langur þar sem fylla þarf hálfan sólarhring af tónlist en Andrés nefnir Eik Einars- dóttur, Önnu Siggu, Írisi Lind og Emil, Lofgjörðarsveit United Reykjavík, Sylvíu Guðnýjardóttur, Sigurð Ingimarsson, Ingunni Huld, söngkonuna Þollý Rósmunds og Lofgjörðarsveitina Catch the Fire. Þar sem ekki er selt inn á hátíðina hafa skipuleggjendur þurft að reiða sig á fjárframlög en Andrés segir að þar hafi þau hvarvetna fengið góðar viðtökur. Ef einhver rekstrar- afgangur verði eftir renni hann þó óskiptur til ABC Barnahjálpar. Léttar veitingar og fjölskylduvæn stemning Boðið verður upp á kaffi og vöffl- ur, hoppukastali verður á staðnum fyrir börnin og stefnt að því að bjóða upp á sykurfrauð. Aðstaða verður fyrir þá sem vilja koma og grilla ofan í sig og sína á staðnum. Tvær listakonur, þær Magga Maja og Karen, munu meðan á há- tíðinni stendur mála málverk og verða verkin boðin upp meðan á há- tíðinni stendur. Andrés tekur fram að tekið verði til jafnharðan á meðan leikar standa. „Það kemur enginn fram í nafni Krists og skilur allt eftir í rúst.“ bso@mbl.is Morgunblaðið/Frikki Hljómskálagarður Hátíðin fer fram á morgun frá hádegi til miðnættis. Veðurspáin í Reykjavík er ágæt, búist við hlýju og hægu veðri yfir daginn. 12 tíma gospelhátíð í Hljómskálagarði  Fjölmargir listamenn á laugardegi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.