Morgunblaðið - 10.07.2015, Síða 21

Morgunblaðið - 10.07.2015, Síða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2015 Sláttumaður Ívar Kristinsson notfærði sér blíðuna í gær til að slá grasbletti við Bústaðaveg. Gott sláttuveður ætti að vera í höfuðborginni í dag en síðra á morgun og síðan er útlit fyrir votviðri. Kristinn Sameiginlegar varn- ir í stað friðargæslu eða íhlutunar í öryggis- mál fjarlægra ríkja ráða nú stefnu Norður- Atlantshafsbandalags- ins (NATO). Varn- armálaráðherrar NATO-ríkjanna 28 tóku miðvikudaginn 24. júní lykilákvarðanir um að efla sameig- inlegar varnir bandalagsins meðal annars með því að auka styrk og getu viðbragðshers þess (NATO Response Force (NRF)). Í við- bragðshernum verða allt að 40.000 menn – upphaflega var reiknað með 13.000 mönnum. Reistar verða bækistöðvar fyrir NATO-herstjórnir í Búlgaríu, Eist- landi, Lettlandi, Litháen, Póllandi og Rúmeníu. Í hverri þeirra verða um 40 manns sem skipuleggja, æfa og undirbúa móttöku liðsauka, verði hann sendur. Komið verður á fót sameiginlegri birgða- og flutn- ingastjórn til að auðvelda liðsflutn- inga þegar þeirra gerðist þörf. Jafn- framt hefur yfirmanni herstjórnar NATO í Evrópu (SACEUR) verið veitt heimild til að hækka viðbún- arstig heraflans í Evrópu. Þá tilkynnti Ash Carter, varn- armálaráðherra Bandaríkjanna, að flutt yrðu þungavopn, skriðdrekar, bryndrekar og stórskotaliðsvagnar, fyrir allt að 5.000 manna bandarískt herlið til landa austast á varn- arsvæði NATO. Her- gögnin yrðu til taks ef senda þyrfti manna- flann á vettvang vegna hættu á átökum. Eystrasaltsþjóð- irnar þrjár eiga allt undir aðfluttum her- afla á hættutímum. Hætta er á að rúss- neskur liðsafli í lofti eða á sjó frá Kal- iningrad (Könings- berg), 223 ferkílómetra landsvæði Rússa, í krika milli Litháens og Póllands, myndi fleyg á Eystrasalti milli Eystrasaltsríkjanna og annarra NATO-ríkja og stöðvi aðflutninga á sjó. Sænska eyjan Gotland (3.183 fer- kílómetrar) er á milli Svíþjóðar og Lettlands. Rússneskar sprengjuþot- ur hafa nokkrum sinnum æft loft- árásir á Gotland, síðast laugardag- inn 4. júlí. Vegna hernaðarumsvifa Rússa hefur sænska ríkisstjórnin ákveðið að styrkja varnir Gotlands. Vandi NBP9-ríkjanna Bandaríska hugveitan Center for European Policy Analysis (CEPA) gaf nýlega út skýrsluna The Coming Storm – Væntanlegt ofviðri – eftir Edward Lucas, heimskunnan blaða- mann og rithöfund sem sendi frá sér bókina The New Cold War árið 2008. Í skýrslunni fjallar hann um stöðu öryggismála á Eystrasalti og í Norður-Evrópu. Nefnir hann til sögunnar níu ríki: Norðurlöndin fimm, Eystrasaltsríkin þrjú og Pól- land og kallar þau NBP9. Hann seg- ir ríkin standa frammi fyrir sameig- inlegum og svipuðum vanda vegna endurvígbúnaðar í Rússlandi og ágengari stefnu rússneskra stjórn- valda. Lucas rekur dæmi um ögrandi að- gerðir Rússa í garð ríkjanna og vek- ur sérstaka athygli á að Rússar hafi sumarið 2014 æft eldflaugaárás á dönsku eyjuna Borgundarhólm þeg- ar þar var efnt til þess sem Danir kalla Folkemødet og er árlegur við- burður með þátttöku forystumanna í stjórnmálum og á öðrum sviðum dansks samfélags. Þegar æfingin var gerð voru um 80.000 manns á eyjunni, þar á meðal danski for- sætisráðherrann. „Hefði árásin ver- ið gerð hefðu Danir verið af- höfðaðir,“ segir Lucas. Þá segir í skýrslunni að í mars 2015 hafi 33.000 rússneskir hermenn tekið þátt í aðgerð þar sem æfð var skyndiárás í Norður-Noreg, á Álandseyjar, Gotland og loks á Borgundarhólm. Í skýrslunni segir: „Heppnist árás af þessu tagi munu yfirráð yfir þessum landsvæðum gera NATO næstum ókleift að auka herstyrk í Eystrasaltslöndunum.“ Meginboðskapur skýrslunnar er að verði ekki gerðar ráðstafanir til að auka öryggi á svæðinu sem um er rætt í henni gæti það leitt til þess að NATO, best heppnaða hernaðar- bandalag sögunnar, yrði dæmt mátt- vana jafnvel án þess að hleypt yrði af einu skoti. Hlutverki Bandaríkjanna sem ábyrgðaraðila á evrópsku ör- yggi til þrautavara lyki á nokkrum klukkustundum. Gunnar Bragi í Washington Í þessu ljósi ber að skoða við- ræður Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra við Robert S. Work, aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, í Washington mið- vikudaginn 1. júlí þar sem Work „sagði skuldbindingu Bandaríkjanna um að verja Ísland algerlega óhagg- aða og lýsti vilja til þess að skoða möguleika til frekara samstarfs ríkjanna á sviði öryggis- og varn- armála. Hann sagði Ísland lyk- ilbandamann og að staðsetning landsins hafi áfram strategískt mik- ilvægi eins og það hafi haft alla tíð,“ svo að vitnað sé í fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins. Eftir fundinn í bandaríska varn- armálaráðuneytinu flutti Gunnar Bragi erindi um málefni norðurslóða og hagsmuni Íslands á vegum hug- veitunnar Center for Strategic and International Studies (CSIS). Ráð- herrann var spurður hvort hann teldi stöðu öryggismála skapa „þörf“ fyrir að endurreisa varnarlið á Ís- landi undir stjórn Bandaríkjamanna eða NATO. Utanríkisráðherra sagði erfitt að svara hvort þessa væri „þörf“. Það yrði hins vegar að bregðast við stöð- unni í öryggismálum hverju sinni og nú væri öfugþróun vegna framgöngu Rússa og hættu frá hryðjuverka- mönnum. Sig mundi ekki undra að Ísland yrði mikilvægara og hern- aðarlegt mikilvægi landsins kæmi að nýju til umræðu. Hann væri hlynnt- ur því ef NATO og allir samstarfs- aðilar á Norður-Atlantshafi hefðu getu til að svara fljótt frá Keflavík eða í Keflavík. Hann gæti ekki sagt hvernig viðbúnaður væri bestur en eðli hans og tímasetningar yrði að ræða næstu mánuði og jafnvel ár. Ís- lendingar hefðu lagt áherslu á að- stöðu á Keflavíkurflugvelli fyrir leit og björgun. Ef til vill mætti skapa tengsl milli slíkrar starfsemi og varnarviðbúnaðar, það þyrfti að skoða nánar. Undir lok fundarins sagði Gunnar Bragi íslensk stjórnvöld vilja halda allri aðstöðu á Keflavíkurflugvelli í því horfi að erlendar flugvélar undir merkjum NATO gætu „plug and play“, það er komið á völlinn og hafið þaðan aðgerðir innan fáeinna klukkustunda – þannig hefði það til dæmis verið fyrir skömmu þegar um 200 manna lið hefði birst til að stunda kafbátaleit frá vellinum. Augljós tengsl eru milli öryggis í skjóli NATO á Eystrasalti og við- búnaðar á Íslandi. Nauðsynlegt er að styrkja að nýju alla keðjuna og þar má enginn hlekkur bresta eigi að tryggja sjálfstæði Eystrasalts- ríkjanna þriggja. Eftir Björn Bjarnason »Eystrasaltsþjóðirnar þrjár eiga allt undir aðfluttum herafla á hættutímum. Gæti NATO ekki veitt þeim aðstoð væri voðinn vís. Björn Bjarnason Höfundur er fyrrv. ráðherra. Öryggiskeðja milli Íslands og Eystrasaltsríkjanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.