Morgunblaðið - 10.07.2015, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 10.07.2015, Qupperneq 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2015 ✝ Elín Gunn-arsdóttir fædd- ist í Gilsfjarð- armúla í Gilsfirði 15. mars 1933. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Hólma- víkur 29. júní 2015. Foreldrar henn- ar voru Gunnar Jónsson, f. 18. maí 1896, d. 25. febr- úar 1979 og Sólrún Helga Guðjónsdóttir, f. 24. febrúar 1899, d. 21. janúar 1985. Systkini Elínar eru: Ólaf- ur, f. 8. maí 1921, d. 7. febr. 2015, maki: Margrét Eysteins- dóttir. Guðjón, f. 17. júní 1922, maki: Erna Brynhildur Jens- dóttir, látin. Skúli, f. 27. maí 1924, maki: Dröfn Hann- esdóttir, látin. Jón Halldór, f. 1. sept. 1927, maki: Sigríður Ragnheiður Oddsteinsdóttir, þau skildu. Steinn Eyjólfur, f. 13. febr. 1929, látinn, maki: Sigríður Guðbjörnsdóttir, látin. Sigmundur, f. 24. jan. 1957, maki: Inga Þórunn Sæmunds- dóttir, f. 17. nóv. 1946. Barns- móðir hans er Guðný Þorgils- dóttir og eiga þau Jóhönnu Mjöll, f. 17. okt. 1979, og El- ínrós, f. 16. ág. 1989. 2) Guðjón Friðbjörn, f. 16. júní 1958, maki: Margrét Vagnsdóttir, f. 26. júní 1962. Barn þeirra: Ágústa Halla, f. 4. jan. 2001. 3) Gunnar, f. 4. des. 1959, maki: Ragnheiður Sveins- dóttir, f. 29. apríl 1961. Börn þeirra: Guðjón Ingi, f. 17. maí 1992 og Sólrún Ásdís, f. 26. júlí 1995. 4) Sólrún, f. 17. júlí 1961, maki: Ingimundur Jóhannsson, f. 29. apríl 1962. Börn þeirra: Jón, f. 19. febr. 1986, Unnur, f. 27. apríl 1988 og Elín, f. 2. nóv. 1990. 5) Lýður, f. 29. jan. 1967. Giftist: Rósu Þorleifsdóttur, f. 30. mars. 1966, þau skildu. Barn þeirra: Magðalena, f. 3. ágúst 1995. 6) Jóhann Lárus, f. 28. ágúst 1969, maki: Kolbrún Þorsteinsdóttir, f. 29. janúar 1970. Börn þeirra: Sara, f. 22. júní 1996, Íris, f. 28. júlí 1999 og Lárus, f. 3. mars 2003. Útförin fer fram frá Hólma- víkurkirkju í dag, 10. júlí 2015, kl. 13. Jarðsett verður í Óspakseyrarkirkjugarði. Sigrún, f. 4. mars 1931, maki: Óskar Þorgils Stefánsson, látinn. Sigfús, f. 21. sept 1937, maki: Steingerður Einarsdóttir. Hall- dór, f. 26. júní 1943, maki: Ólöf Snorradóttir, látin. Seinni kona Mo- nika Björk Ein- arsdóttir. Hálf- bræður Elínar samfeðra: Halldór Dalkvist, f. 30. des. 1936, maki: Ásthildur Guðveig Vilhjálmsdóttir. Guðjón Dalk- vist, f. 5. júlí 1944 maki: Re- bekka Margrét Ágústsdóttir, þau skildu. Elín ólst upp í Gils- fjarðarmúla og bjó þar til tví- tugs. Hún giftist Jóni Sig- mundssyni árið 1953 og bjuggu þau á Einfætingsgili allt til árs- ins 2002 er þau létu af búskap og fluttu aðsetur sitt til Hólma- víkur. Jón lést árið 2004. Börn Jóns og Elínar eru: 1) Komið er að kveðjustund. Elskuleg mamma, tengda- mamma og amma kvaddi sitt jarðneska líf í faðmi náinna ást- vina, mánudagskvöldið 29. júní sl. Þó að vitað væri að hverju stefndi þá er alltaf erfitt að horfast í augu við þá staðreynd að ástvinur kveðji. Við andlát myndast sú tilfinning sem við köllum söknuð. Af hverju? Jú, þá köllum við fram minningar, sem ekki verða fleiri með þeim sem deyr og um leið rifjast upp svo margar minningar sem við eignuðumst með viðkomandi í lifanda lífi. Við söknum af því að okkur þótti vænt um þann sem dó og hann gæddi líf okkar gleði og ef til vill „ greiddi götu“ okkar í gegnum lífið. Ef við söknuðum ekki þá hefði lífið með viðkom- andi ekki verið gott. Þess vegna er eðlilegt að sakna vegna góðra minninga. Við söknum mömmu, Ellu á Gili, eins og hún var alltaf köll- uð. Hún hélt vel utan um fjöl- skyldu sína og var alltaf tilbúin til að rétta hjálparhönd á meðan heilsa hennar leyfði. Mamma var dugleg og vinnusöm, enda fyrir stóru heimili að sjá. Eins og tíðkaðist á fyrri árum voru börn og unglingar send í sveit og þannig var það á Gili. Þá var stundum gestkvæmt og því var alltaf mikið að gera hjá húsmóð- urinni. Aðdáunarvert var hversu mamma og pabbi voru samhent í búskap og heimilishaldi. Mamma var hæversk og barst ekki á en hún var síður en svo skaplaus. Hún bað aldrei um neitt og gerði ekki kröfur á aðra en sjálfa sig en var þakklát fyrir allt sem fyrir hana var gert. Hún var æðrulaus og mátti ekkert aumt sjá. Hún var alltaf með eitthvað á prjónunum og einhvern tíma sagði hún að skemmtilegast væri að prjóna lopapeysur enda eru til margar peysur sem eftir hana liggja. Hún kunni mikið af ljóðum og textum og hún elskaði að syngja. Skemmtilegast þótti henni þegar öll stórfjölskyldan hittist og tók lagið. Nú er komið að leiðarlokum. Við fjölskyldan kveðjum mömmu með þökk fyrir allt sem hún gaf okkur. Við sökn- um hennar en yljum okkur við ljúfar minningar. Veri hún ævinlega guði fal- in. Að loknum starfsdegi löngum hér ljúfust er næturværð. Í værum blundi nú birtist mér blessun af himni færð. Þú miðlaðir okkur mild og hlý af móðurkærleikans gnótt. Heiminn þú fæddir okkur í og annaðist dag og nótt. Sofðu nú róleg, mamma mín, við munum hafa hljótt. Þau breiða ońá þig börnin þín og bjóða þér góða nótt. (Kristján Árnason.) Guðjón, Margrét og Ágústa Halla. Það var árið 1990 sem Gunn- ar fór með mig heim til foreldra sinna að Einfætingsgili í Bitru- firði. Ég var náttúrulega dálítið kvíðin að hitta verðandi tengda- foreldra í fyrsta skipti. En Elín lét þann kvíða hverfa eins og dögg fyrir sól. Hún lét mér strax líða eins og ég ætti heima þarna. Við skröfuðum saman um alla heima og geima og ég man sérstaklega eftir því hvað henni var umhugað um að geta gert eitthvað nýtilegt úr gömlu. Ella gerði ekki miklar kröfur og hún var líka ótrúlega nægju- söm, enda mat hún ekki verð- mæti í hlutum, hennar gersem- ar voru börnin hennar. Það var ekki komist hjá því að ást hennar á þeim var algjörlega skilyrðislaus. Ella hafði líka miklar mætur á söng. Hún og tengdapabbi voru og öll börnin þeirra eru frábært söngfólk, það var því oft sungið á Gili. Einnig átti hún það til að skella í vísu og eitt sinn þegar við vorum með soninn okkar lít- inn á Gili og hún var að passa hann fyrir okkur meðan við skruppum í fjárhúsin, þá kvað hún þessa vísu „syngur alltaf sama braginn, svona tónlist lík- ar mér, Guðjón Ingi góðan dag- inn, gaman er að heyra í þér“. Ella og Jón voru ákaflega gestrisin og voru vön því að fá allt í einu fjölda gesta bæði óvænta og boðna. En þau tóku við öllum með bros á vör og buðu inn. Það var alltaf nægt pláss fyr- ir alla og nóg að borða þrátt fyrir að það væri ekki mat- vörubúð á næsta horni. Einhver sagði að þegar þú deyrð þá ferð þú á stað þar sem þú ert umvafin óendanlegri ást, ég kveð þig því, kæra tengdamóðir, og vona að þú sért á þessum stað. Ragnheiður Sveinsdóttir. Elsku besta amma mín. Það eru margar góðar minn- ingar sem koma upp í hugann þegar litið er til baka. Eins og til dæmis þegar maður kom í sveitina um helgar og vaknaði við þennan svaka góða kaffiilm í húsinu og á sunnudögum þegar maður vaknaði þá var enginn smá matarilmur þegar þú varst að elda sunnudagssteikina. Þegar ég var yngri kom ég alltaf til ykkar afa í sveitina þegar skólinn var búinn á vor- in, þú hafðir alltaf svo miklar áhyggjur af því að mér myndi leiðast, hringdir í Sólrúnu og fékkst Unni eða Elínu lánaða stundum báðar, en mér fannst svo gaman að hjálpa ykkur afa í fjárhúsunum, hænsnakofanum og öðrum bústörfum þó ég hafi nú kannski ekki gert mikið en mér fannst ég auðvitað vera að gera helling. Alltaf fannst mér jafn spenn- andi að taka göngutúr með þér niður að póstkassanum til að kanna hvort það væri nokkuð kominn einhver póstur. Öll ferðalögin sem við fórum saman á sumrin, sungum sam- an í bílnum og í tjaldinu, það er ógleymanlegt, þú hafðir alltaf svo miklar áhyggjur af því að mér væri kalt, tókst mig alltaf í fangið,vafðir utan um mig teppi og knúsaðir mig, það var mjög notalegt og mér varð sko alls ekki kalt. Man svo vel eftir ættar- mótinu sem haldið var í sveit- inni þegar við dönsuðum saman Fugladansinn, þér fannst það svo gaman hvað við barnabörn- in tókum vel undir og það ljóm- aði af þér gleðin. Ég gleymi því aldrei hvað okkur Elínu og Unni fannst gaman að hjálpa þér að baka kleinur, við hlustuðum á skemmtilega tónlist og auðvitað sungum við með. Það var dýrmætt að fá að fagna með þér 80 ára afmælinu þínu, elsku amma, þú varst svo glöð, söngst með þegar við fór- um að syngja og dansaðir. En nú ertu komin til afa og það hafa án efa verið miklir fagnaðarfundir. Þín verður sárt saknað, elsku amma mín. Ég elska þig. Þín sonardóttir Elínrós. Elsku amma. Alltaf man ég þegar ég átti að fara í sveitina hvað ég var spennt að fara. Ég kom til þín/ ykkar öll sumur og leið alltaf svo vel . Man þegar við vorum að hlusta á spóluna sem ég söng inn á í afmælinu hjá afa sem Snúlla tók upp, ég sat í kjölt- unni þinni og við hlustuðum og ég var svo montin. Ég gleymi aldrei þegar við vorum í ferðalagi og þú kenndir mér lagið Frost er úti, fuglinn minn, og svo sungum við lagið mörgum sinnum,ég held að allir hinir í bílnum hafi verið orðnir leiðir á að hlusta á það. Þegar við löbbuðum upp á Silungavatn og lögðum net í vatnið og fórum daginn eftir að athuga í netið. Alltaf var það gaman með þér, amma. Þegar ég og Magga frænka vorum með búið úti í garði og alltaf þegar okkur vantaði eitt- hvað í búið fannstu handa okk- ur allskonar búsáhöld. Þegar við sungum og döns- uðum Óli Skans saman. Ég á svo margar góðar minningar. Þú varst alltaf svo yndisleg amma. Elska þig. Þín, Jóhanna. Elín Gunnarsdóttir ur. Við gleymum því seint þegar við náðum að fá hann til að fara í rennibrautina í sundlauginni í Stykkishólmi. Hann varð þá aft- ur, í stutta stund, lítill strákur. Afi var alla tíð stoltur af sínum heimabæ, Stykkishólmi. Snemma á tíunda áratugnum keypti fjölskyldan hús við Höfðagötu og þar áttum við ófá- ar samverustundir með ömmu og afa. Göngutúrarnir með afa í Hólminum voru oft langir, sér- staklega þegar hann hitti ein- hvern sem hann þekkti. Langar samræður hjá fullorðna fólkinu gáfu okkur tíma til að leika í klettunum eða setjast við höfn- ina, telja marglyttur og reyna að veiða þær með stígvélunum. Við fórum í ófá skipti í siglingu út á Breiðafjörðinn með ein- hverjum trillukarlinum, sem afa tókst alltaf að fá til að taka okk- ur með, sérstaklega ef honum tókst að rekja ættir okkar sam- an. Minningarnar um afa munu alltaf vera sterkastar í Hólm- inum og þá sérstaklega í húsinu okkar sem var honum svo kært. Afi var alla tíð skipstjóri í sér og fastur fyrir en skipstjóraeðlið lét fljótt undan þegar litlu snúll- urnar beittu brögðum og náðu að beina honum í átt að næstu sjoppu. Sælgætið var aldrei langt undan, enda voru birgða- stöðvar afa dreifðar um heimilið: suðusúkkulaði í eldhússkúffunni, brjóstsykur í eldhússkápnum og gúmmí í bland við M&M í skál inni í skáp. Skipstjórinn birtist okkur einna helst þegar hann gerði „káetutékk“. Þá labbaði hann beina leið inn í herbergin hjá okkur barnabörnunum og skoð- aði, oftar en ekki fylgdu svo at- hugasemdir um sóðaskap. Á síð- ari árum fluttu þau í íbúð á Strandveginum og auðvitað þurfti kapteinninn að fá íbúð á efstu hæð, með útsýni yfir hafið og kíki á vísum stað við gluggann. Við sem stóðum honum næst fundum fyrir miklum áhuga afa á okkar lífi, áhugamálum og samferðafólki. Það brást ekki að ef einhver hringdi óvenjuseint að kvöldi til, þá var það hann afi. Tilgangur símtalsins var oft- ast sá að forvitnast og heyra hvað allir væru að gera. Kaffi- heimsóknir á Strandveginn fóru í það að rekja nákvæmlega hvað við höfðum fyrir stafni, hvað væri að frétta af okkar fólki, hvaðan við vorum að koma og hvert við værum að fara næst. Afakossana, gullglottið og þéttingsföstu faðmlögin tökum við með okkur út í lífið og vitum að hann mun alltaf fylgjast með okkur, í gegnum kíkinn. Þínar afastelpur, Auður og Ingibjörg Fríða. Afi og bátar. Þetta tvennt er óaðskiljanlegt í mínum huga. Þegar ég rifja upp okkar tíma saman er rauði þráðurinn sá að það sem upp úr stendur tengist á einhvern hátt bátum. Það er þó ein minning sem einhverra hluta vegna stendur alltaf upp úr. Þegar við vorum heima í Garðabæ fórum við oft upp að Vífilsstaðavatni með forláta seglbát, sem ég dró í bandi hringinn í kringum vatnið. Því- líka ævintýrið sem það var allt- af. Nema þegar hann fór á hlið- ina og seglið blotnaði. Við nánari umhugsun þá gerðist það eiginlega alltaf. Samt sem áður er þessi bátur sá flottasti sem gerður hefur verið, í minning- unni. Þegar ég var orðinn nógu gamall til að hjóla að Hafnar- fjarðarhöfn tóku við ófáir túr- arnir þangað frá Stekkjarflöt, í kvöldsólinni. Alltaf var jafn gaman að fara niður að höfn, sjá bátana og fuglana. Það sama átti við í Stykkishólmi. Þær voru ófáar bátsferðirnar sem við afi fórum saman í um Breiðafjörð. Skipstjórinn gamli sá til þess að borgarbörn eins og við barnabörnin vorum, fengjum nasaþef af því að fara út á sjó þó að stutt væri farið. Minningin sem upp úr stendur er þó ein ferð sem við fórum með Magga frænda í Stykkishólmi. Þá hafði afi heyrt af því að hann ætlaði að sækja fólk út í einhverja eyj- una á Breiðafirði og við fengum að fara með. Þvílíka ævintýrið. Við fórum út á trillu en fórum svo í land á minni bát með utan- borðsmótor. Með fólkinu var dökkur Labrador hundur, sem tók upp á því á miðri siglingu að stökkva úr minni bátnum í sjó- inn með þeim afleiðingum að hann fór í skrúfuna og skarst mjög illa. Sú minning situr afar fast í huga mínum og mun sennilega aldrei hverfa. Særðu dýrinu komum við niður í káetu á trillunni og settum á fullt stím í land. Afi gerði sitt til að hlúa að hundinum og hjálpa fólkinu. Á endanum komust allir í land. Ekki man ég hver afdrif grey hundsins urðu, en þessu kvöldi gleymi ég aldrei. Það er afa að þakka að ég upplifði margt sem jafnaldrar mínir og vinir fengu aldrei og þetta kvöld var bara eitt dæmi um slíkt. Þær eru æði margar minningarnar sem aldr- ei munu gleymast, margar frá- bærar stundir sem við áttum saman sem ég mun varðveita. Einhverra hluta vegna mun þessi þó alltaf standa upp úr. Hennar vegna mun ég aldrei gleyma hve frábæran afa ég átti, sem kenndi mér líklega meira en hann hefur nokkurn tíma grunað og mótað mig að miklu leyti. Forvitnina mína vill ég sérstaklega rekja til hans og eiginleikann að ræða við ókunnuga nánast upp úr þurru. Slíkt átti hann auðvelt með. Því miður lést afi minn í föð- urætt áður en ég fæddist og því kynntist ég honum aldrei. Afi Rögnvaldur var á við tvo, án þess að reyna það sérstaklega. Hann var gjafmildur og ávallt boðinn og búinn til að aðstoða þá sem stóðu honum nærri, sama hvað það var. Afi var ein- faldlega einn allra besti maður sem ég hef nokkurn tíma kynnst og ég verð honum ævinlega þakklátur fyrir svo margt. Minning hans mun alltaf lifa í hjarta mínu. Takk fyrir allt, elsku afi Rögnvaldur, og megi næsta sigling verða svo ljúf sem þú átt skilið. Rögnvaldur Már Helgason. Það eru forréttindi að eiga afa og það voru enn meiri for- réttindi að hafa átt afa Rögn- vald sem afa! Afi var einstak- lega hlýr og góður maður sem gaf af sér með sínu breiða brosi, brosi sem var einkennandi fyrir hann. Það var ekki aðeins brosið sem afi gaf af sér heldur mikill áhugi á öllum sem urðu á hans vegi. Sá áhugi kom best í ljós við hin ýmsu tilefni þegar afi gat setið og spjallað tímunum sam- an þangað til ömmu leiddist bið- in og þá heyrðist gjarnan „eig- um við ekki að fara að koma Rögnvaldur“. Þegar við frændurnir sitjum hér saman á Strandveginum og rifjum upp gamla tíma með afa koma upp í hugann margar skemmtilegar minningar sem vekja mikla gleði. Stundirnar heima hjá afa og ömmu á Stekkjarflöt voru frábær skemmtun þar sem ýmislegt var brallað. Kartöfluuppskerur á haustin, sundferðir úti í garði, harðfiskát í bílskúrnum, fótbolti á ganginum þar sem ýmislegt varð fyrir barðinu á boltanum og kannski ekki síst skipstjóra- leikur þar sem við klæddum okkur upp í gömul einkennisföt af afa. Okkur er öllum einnig minnisstæð leyndardómsfulla hvíta trékistan í bílskúrnum, með hengilásnum. Aðeins afi vissi hvað var í kistunni. Ófá matarboð voru haldin þar sem borið var fram lambakjöt með bernaise eða fiskibollur með brúnni. Þar sat afi ávallt við endann á borðinu og stýrði borðhaldinu eins og sannur skip- stjóri með bros á vör. Bátsferðir út á sjó voru marg- ar og þar nutum við þess að vera með afa, skipstjóranum, sem miðlaði til okkar strákanna af reynslu sinni. Hann kenndi okkur að míga í saltan sjó. Ósjaldan hringdi síminn seint á kvöldin og þar var elsku afi á hinum endanum sem vildi for- vitnast um allt og ekkert. Fjöl- margar spurningarnar dundu á okkur sem við svöruðum sam- viskusamlega. Þetta var eitt af einkennum hans og áhuga hans á fólkinu sínu. Afa þótti mjög vænt um okkur og okkur þótti mjög vænt um afa. Elsku afi. Takk fyrir allar minningarnar. Hvíldu í friði. Kristján, Andri Már og Hrannar Þór. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og við- eigandi liður, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.