Morgunblaðið - 10.07.2015, Side 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2015
Þegar maður á ellefu ára dóttur verður maður að halda upp á af-mælið á réttum degi, annað er ekki tekið í mál,“ segir Guð-mundur Gísli Geirdal léttur í bragði, en hann er fimmtugur í
dag. Í kvöld ætlar hann að bjóða sínum nánustu heim til sín til þess að
fagna með sér. Hann segist þó mögulega ætla að halda stærri veislu í
haust en það verði bara að koma í ljós.
Guðmundur er búsettur í Kópavogi og er mikilsvirkur í bæjarlífinu
þar, en árið 2014 tók hann sæti í bæjarstjórn Kópavogs. Hann segir
starfið þar gefandi og að mikið hafi lærst síðan hann hóf störf þar.
Spurður hvort hann stefni á að sækjast eftir endurkjöri þegar sá tími
kemur segir hann auðmjúklega að það verði kjósendur að fá að segja
til um, honum þyki þó gaman og telji sig vera að gera gagn. „Það er
sennilega fólkið sem maður sækir mest í og ef það væri ekki gott fólk
bæði í Kópavoginum og í bæjarstjórninni hefði maður ekki eins gam-
an af þessu,“ segir Guðmundur.
Á sumrin gerir Guðmundur út bát frá Suðureyri, þar sem hann
veiðir á handfæri. Aðspurður segir hann að ferðalögin séu lítið mál,
einn af kostunum sé sá að þegar geri norðanátt og brælu fyrir vestan
sé blíða í bænum. Hann sé því alltaf í góðu veðri.
Guðmundur er kvæntur Lindu Jörundsdóttur hárgreiðslumeistara
og á fimm börn: Helgu Kristínu 28 ára, Hjört Atla 28 ára, Axel Örn 19
ára, Bjarka Frey 15 ára og Söndru Dís 11 ára.
Ljósmynd/Guðmundur Gísli Geirdal
Hjónin Guðmundur Gísli ásamt konu sinni, Lindu Jörundsdóttur.
Verður að halda
upp á afmælið í dag
Guðmundur Gísli er fimmtugur í dag
H
ermann fæddist í
Keflavík 10.7. 1975:
„Æskuslóðirnar voru
í Keflavík, nánar til-
tekið á Hátúninu,
innan um mikinn og fjörugan
krakkaskara. Á barnaskólastigi var
ég í Myllubakkaskóla en þaðan lá
leiðin í Holtaskóla. Þaðan á ég
skemmtilegar minningar sem gam-
an er að rifja upp með gömlum
skólafélögum og vinum. Síðan var
ég í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.“
Í skóbransanum í rúm 20 ár
Hermann hóf sinn starfsferil í
bæjarvinnunni í Keflavík og vann
síðan í Saltveri við ýmis störf, s.s.
saltfiskvinnslu og rækjuvinnslu.
Hann hefur að mestu leyti unnið við
skóverslun frá 1996, fyrst hjá Xport
(X18) frá 1996 og síðan hjá Ecco á
árunum 1997-2002. Þá stofnaði hann
og starfrækti eigin skóverslun í
Keflavík í þrjú ár. Hann varð inn-
kaupa- og rekstrarstjóri hjá Stein-
ari Waage Ecco og Toppskónum ár-
ið 2005 en hefur verið framkvæmda-
stjóri og hluthafi S4S frá 2009. S4S
rekur nú níu skóverslanir og eina
íþróttavöruverslun á höfuð-
borgarsvæðinu.
Áhersla á fjölskylduíþróttir
Hermann sat í stjórn Heimis, fé-
lags ungra sjálfstæðismanna í
Reykjanesbæ, 1995-2001, var vara-
bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn í Reykjanesbæ 2002-2006
og sat m.a. í fjölskyldu- og félags-
málanefnd á vegum Reykjanes-
bæjar: „Ég hafði gaman af pólitík-
inni á þessum árum en verð að segja
eins og er að ég hef að verulegu
leyti vaxið upp úr pólitíkinni, hvort
sem það er nú þroskamerki eða
ekki.“
Hermann sat í stjórn Körfuknatt-
leiksdeildar Keflavíkur 2001-13, var
þar varaformaður um skeið og síðan
formaður 2004-2005 og aftur 2012-
2013. Hann hlaut bronsmerki Kefla-
víkur 2006 og silfurmerki Keflavík-
ur 2011 og 2013 hlaut hann starfs-
merki UMFÍ fyrir stjórnarstörf á
vegum íþrótta- og ungmennafélags
Keflavíkur.
Hermann Helgason, framkvæmdastjóri S4S – 40 ára
Keflavíkurfjölskyldan Hermann og Steinunn Ýr með börnunum sínum, Önnu Maríu, Thelmu Hrund og Helga.
Keflvíkingur – með al-
hliða áhuga á íþróttum
Reykjavík Birgitta Björk
Birgisdóttir fæddist 15.
júní 2014. Hún vó 3.102 g
og var 49 cm löng. For-
eldrar hennar eru Birgir
Arngrímsson og Svala
Björk Jónsdóttir.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
2.495KR
BRÖNS
Í hádeginu laugardaga,
sunnudaga og rauða daga
frá 11:30 – 15:00
g e y s i r b i s t r o . i s
Aðalstræti 2
517 4300