Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2015, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2015, Blaðsíða 35
12.7. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35 LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383 Hjarta úr hvítagulli 25 punkta demantur 99.000,- Gullhálsmen Handsmíðað 14K, 2 iscon 26.000,- Demantssnúra 30 punkta demantur, 14K 157.000,- Demantssnúra 9 punkta demantur, 14K 57.000,- Gullhringur Handsmíðaður 14K, 2 iscon 45.700,- Morgungjafir í miklu úrvali Umferðarmiðstöðin BSÍ • 101 Reykjavík • 580 5400 • main@re.is • www.re.is VIÐ SKUTLUM ÞÉR! Alltaf laus sæti Frí þráðlaus internet- tenging í öllum bílum Hagkvæmur kostur Alltaf ferðir Ferðatími u.þ.b. 45 mínútur Umhverfisvænt Kauptu miða núna á www.flugrutan.is Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í tengslum við allar komur og brottfarir flugvéla um Keflavíkurflugvöll. OR *Miðast við að keyptur sé miði fram og til baka frá BSÍ eða Keflavíkurflugvelli á 3.500 kr. 1.750 kr.* FYRIR AÐEINS K atrín, hertogaynja af Cambridge, lét okkur hinar tveggja barna spariguggu-mæðurnar fá nett hland fyrir hjartað þegar mynd- irnar úr skírn Karlottu birtust í fjölmiðlum. Sú stutta var skírð formlega síðasta sunnudag og móðirin var eins og kvikmynda- stjarna eða kannski bara drottning. Þarna var hún glæsilegri en nokkru sinni fyrr í beinhvítum kápukjól, vel útsofin með hatt. Við kápukjólinn var hún með nett demantshálsmen og í beinhvítum flugfreyjuskóm með rúnnaðri tá. Ekki nóg með það heldur var ekki annað að sjá en að hún væri alveg búin að ná sér eftir meðgöngu, fæðingu og sængurlegu og meira að segja með smá lit í kinnunum. Tók innan við tvo mánuði („vel gert“ myndu karlarnir með stóra bjórinn og stóru hjólhýsin segja). Það er ekki mjög langt síðan yngri sonur minn, sem ber þess óþægi- lega oft merki að vera barn númer tvö, spurði mig ítarlega út í sína eigin skírn. Þessi fríðleikspiltur verður sex ára á mánudaginn og vill hafa góða yfirsýn yfir líf sitt. Hann tekur sitt pláss í tilverunni og myndi aldr- ei sætta sig við að vera „second class“. Því miður virðist vera sem sá aumi raunveruleiki sé að renna upp fyrir honum að metnaðurinn sem frumbyrjan móðir hans bjó yfir þegar eldri bróðir hans kom í heiminn hafi dalað ískyggilega með árunum. Af einhverjum óútskýrðum ástæð- um „gleymdist“ hitt og þetta þegar þessi 6 ára var að alast upp sem var algerlega upp á tíu hjá þeim eldri. Þegar hann krafðist svara um sína eigin skírnarveislu versnaði í því. Hann vildi fá að vita hverjir hefðu mætt í skírnarveisluna, hvaða gjafir hann hefði fengið og hvaða veitingar hefðu verið í boði. Það hvarflaði að móðurinni eitt augnablik að hagræða aðeins sannleikanum og þykjast hafa haldið stórkostlegustu veislu allra tíma honum til heiðurs og fór að velta fyrir sér hvernig hún ætti að lýsa draum- kenndum skreyt- ingum í smáat- riðum. Það er nefnilega hálf- aumt að þurfa að útskýra fyrir næstum því 6 ára „first class“ barni að veislan hafi verið engin og hann hafi ver- ið skírður á hálf- gerðum hlaupum í kapellu þegar presturinn hafði laust korter. Þetta þurfti að drífa af því við foreldrarnir þurftum að skjótast í viðskiptaferð og gátum ekki skilið hann eftir óskírðan í pössun í tvær vikur. Svona eftir á að hyggja hefði án efa verið hægt að leggja meiri metnað í þetta verkefni og halda smá skírn heima með þeim allra nánustu. Vandamálið er bara að lífið er ekki eins og í glanstímariti og stundum er bara ekki hægt að standa undir væntingum samfélagsins vegna of- þreytu og leiðinda. Stundum eru verkefni hversdagsins bara svo yfir- gripsmikil og þung í vöfum að það verður eitthvað undan að láta. Við venjulegu spariguggu-mömmurnar erum nefnilega ekki með her í kringum okkur sem þjónustar okkur; passar fyrir okkur börnin svo við fáum nægan nætursvefn, velur á okkur fötin, greiðir okkur og gætir þess að við séum óaðfinnanlegar líkt og hertogaynjan af Cambride. Enda væri lífið hálftilgangslaust ef maður þyrfti ekki að berjast af öllu afli til að halda öllu á floti. Svo hefur frasinn „fake it till you make it“ fleytt mörgum langt og svo má alltaf feika hamingjuna og gleðina á In- stagram ef allt þrýtur. martamaria@mbl.is Breska konungsfjölskyldan var í sínu fínasta pússi í skírn Karlottu. Þarna fór hún með okkur! Katrín hertogaynja af Cambridge með Karlottu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.