Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2015, Síða 11

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2015, Síða 11
12.7. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11 hvern þátt í því að Selfoss varð sá skógarbær, sem sjá má.“ Jörðin Snæfoksstaðir er um 750 hektarar og þar af er ræktað skóglendi um 400 hektarar. Hæstu trén eru sitkagreni, gróðursett um 1960, í svonefndri Skógarhlíð sem liggur mót norðaustri niður að Hvítá. „Þennan reit skulum við skoða,“ sagði Óskar þegar hann fylgdi og sýndi blaðamanni stað- inn. „Fólk sem kemur hingað og sér trén, sem nú eru um og yfir 20 metra há, segir að því finnist það komið til útlanda. Það finnst mér góð ummæli, sem staðfestir að skilyrði til skógræktar hér eru síst verri en í nálægum löndum.“ Það er varla ofmælt að segja um Snæfoksstaði að Óskar sé fað- ir skógarins, svo mikið hefur hann lagt þar af mörkum og öllu sinnt af brennandi áhuga. Hann fór með ungmennahópa til starfa að Snæ- foksstöðum fram til 1970 en þá tóku aðrir við verkstjórninni og áorkuðu miklu næstu árin. Í dag er hins vegar minna gróðursett á Snæfoksstöðum en ýmsum öðrum verkefnum sinnt. Skólastarf og skógrækt náskyld viðfangsefni „Þetta er einstakur sælureitur og ég sæki hingað mikið,“ segir Ósk- ar sem með sínu fólki á sumarhús á Snæfoksstöðum á lóð sem geng- ur niður að Hvítá. Þar heita Nautavakir. „Flest þessi háu tré hér gróð- ursettum við fjölskyldan en svo sérðu þarna líka furu og fleira – tré sem eru sjálfsprottin af fræj- um sem falla í frjóa moldina. Hér grær eiginlega allt og á bestu sumardögunum er hér evrópskt veður. Og skógurinn skýlir. Suðvestanáttin sem í dag stendur hér inn vakirnar nær ekki hingað inn. Sumarhúsið er í skjóli fyrir öllum áttum,“ segir Óskar sem tel- ur kennslu og skógrækt í eðli sínu og á marga vísu vera náskyld við- fangsefni. „Það þarf að koma sprotunum í jarðveg, hlúa að hverjum og ein- um og finna út hvað best hæfir svo árangur náist sem oftast tekst,“ segir Óskar sem er ánægð- ur með starfið og árangurinn. Skógargöngin á Snæfoksstöðum eru löng, en hæstu trén á svæðinu sem að veginum liggur eru tæplega 20 metra há, gróðursett fyrir rúmri hálfri öld. Lambabergsfossar í Hvítá, þar sem horft er úr Snæfoksstaðalandi suður í Flóa. Fyrstu plöntur á Snæfoksstöðum gróðursettar síðsumars árið 1958. Ljósmynd/Óskar Þór Sigurðsson Í Skagafirði er byrjað að setja upp skilti við nokkur af þekktustu fjöll- um héraðsins sem vinsæl eru til gönguferða. Þetta eru Mælifells- hnjúkur, Tindastóll, Hólabyrða og Ennishnjúkur. Öll þessi fjöll, sem sjást víða frá, eru auðkleif. Ættu merkingar þessar að koma sér vel, því yfir sumarið eru göngur upp um fjöll og firnindi margra gaman. „Margt sér í miðjum firði / Mælifells- hnjúkur hár,“ orti skáldið forðum. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skilti við fjöllin háu „Nytjar af skóginum hér á Snæfoks- stöðum verða æ meiri. Við fellum talsvert af trjám á ári hverju og vinnum. Þetta eru orðnar eftirsóttar afurðir,“ segir Böðvar Guðmunds- son, framkvæmdastjóri Skógrækt- arfélags Árnesinga. Félagið heldur úti starfsemi að Snæfoksstöðum og í mörg horn er að líta við umhirðu. Þéttan skóginn verður að grisja mjög reglulega og timbrið, sem til fellur, er flett og sniðið í stórri sög. „Timbur héðan nýtist vel sem klæðning á byggingar og er eft- irsótt, til dæmis á sumarhús, en er þó nýtt á margan annan hátt. Að stærstum hluta eru þetta grenitré, fura og ösp, sem eru héðan úr Snæ- foksstaðaskógi. Auk þess tökum við í vinnslu hér tré sem felld eru í einka- görðum til dæmis á Selfossi og kom- ið með hingað í vinnslu. Margir eru að leita eftir slíkri þjónsutu,“ segir Böðvar. Minna er gróðursett á Snæfoks- stöðum en fyrr á árum, enda hafa flest þau svæði í landi jarðarinnar sem henta til skógræktar verið num- in. Þó er alltaf gróðursett nokkuð af greni sem svo er fellt og selt sem jólatré áratug síðar. Í landareigninni er einnig undir 100 hektara svæði þar sem unnið er í samvinnu og sam- kvæmt áætlun Suðurlandsskóga. Útgangspunkturinn í því öllu er að skógurinn skili afurðum og tekjum í fyllingu tímans. Það er líka að gerast víða og í vaxandi mæli, enda sinna hundruð bænda um allt land nú skógrækt undir þeim formerkjum. Gildir stofnar grenitrjáa í Grímsnesinu sem bíða þess að verða flett í sundur og unnir til dæmis í planka, en þetta er allt mjög eftirsóttur smíðaviður. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Timbur héðan nýtist vel, segir Böðv- ar Guðmundsson skógræktarmaður. Greni, fura og ösp eftirsóttar afurðir Stór blokk á Suðureyri stendur auð og tólf íbúðir í henni fást hvorki leigðar né seldar. Málið er stopp í kerfinu, segir Ísafjarðarbær, sem óskar breytinga á stefnu Íbúðalánasjóðs og aðgerða svo húsið nýtist. Suðureyri Afskekktasta byggð á Íslandi er komin á vefinn og vefsetr- ið arneshreppur.is er komið í loftið. Þar má finna allar upplýsingar um þjónustu í sveitinni, samgöngur og sveitar- félagið sjálft þar sem búa um 50 manns. Árneshreppur Cuxhavengata 1 • Hafnarfirði • Sími 560 0000 • www.safir.is • safir@safir.is SKIPASALA • KVÓTASALA Nánari upplýsingar á skrifstofu Þorskur 268.091 kg | Ýsa 7.545 kg Ufsi 19.412 kg | Karfi 8.306 kg Langa 2.125 kg | Blálanga 750 kg Keila 34 kg | Steinbítur 11.617 kg Skötuselur 376 kg | Grálúða 29 kg Skarkoli 7.990 kg | Þykkvalúra 248 kg Langlúra 148 kg | Breiðafjarðarskel 4,285% Í einkasölu hjá Safir skipasölu, Einkahlutafélagið Hjálmar EHF Sem á eftirfarandi dragnóta- og netabát með öllum aflaheimildum Til sö lu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.