Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2015, Side 33

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2015, Side 33
12.7. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33 Skipholt 50c • 105 Reykjavík • 582 6000 • www.computer.is Síðan 1986 • Tengist þráðlaust með Bluetooth • Virkar við iPhone og Android síma • Notið símann löglega í ferðalaginu Eigum einnig bílhleðslutæki, festingar og kapla fyrir snjallsíma og spjaldtölvur Sendum hvert á land sem er Tölvur og fylgihlutir Genius 120BT handfrjáls búnaður 4.990 kr. Við eyðum stórum tíma lífsins í vinnu og eina leiðin að skila af sér góðu starfi er að hafa ástríðu fyrir því og ánægju. Ef þú hefur ekki fundið ástríðuna, haltu áfram að leita. Steve Jobs Lego-kubba ættu flestir Íslendingar að þekkja eða í það minnsta þeir sem ólust ekki upp við tölvuleiki og internet. Lego hefur í áratugi gert börnum og jafnvel fullorðnum kleift að sleppa tauminum á hvers- dagsleikanum og láta ímyndunar- aflið ráða för í byggingu frum- skóga, tækja og borga úr marglita kubbum frá Lego. Kubbarnir eru þó ekki alveg hættulausir þó þeir eigi ekki að skaða börn. Þeir eru búnir til úr ABS plasti sem krefst notkunar töluverðrar olíu og er því ekki æskilegt umhverfinu eða plán- etunni að sögn Lego. Þess vegna hafa forsvarsmenn fyrirtækisins lagt 150 milljónir dollara í rann- sóknir og þróun á nýju efni án olíu til að framleiða kubbana vinsælu. Ferlið getur þó tekið einhvern tíma og áætlar Lego að skipta ABS efninu út alfarið fyrir árið 2030. Í ljósi þess að Lego framleiðir 60 milljón kubba á ári verður um verulegan sparnað að ræða í olíu- notkun. ÞRÓUN NÝRRA EFNA FYRIR FRAMLEIÐSLU LEGO Umhverfisvænt Lego Hver man ekki eftir því að hafa eytt löngum tíma með Lego kubba í höndunum? Rétt fyrir utan strönd Noli á Ítalíu hefur frumkvöðullinn Sergio Cam- berini komið sér upp neðansjáv- argarði. Hugmyndin er að finna leið til að rækta mat við kjöraðstæður. Umleikin vatni eru gróðurhús Cam- berini í einstakri aðstöðu til að stýra hita og tryggja umhverfi sem heldur öllum skordýrum og sjúkdómum frá gróðrinum. Gróðurhúsin eru rétt rúma sex metrum undir yfirborði sjávar og einu dýrin í nágrenni þeirra eru ein- staka fiskar, krabbar og já einn kol- krabbi, að sögn Camberini. Ekki er víst að neðansjávar-gróðurhús muni nokkurn tíma geta keppt við þau á þurru landi eða framleitt betri vöru. Tíminn einn verður að leiða það í ljós en Camberini lætur það ekki stöðva sig og sagði í viðtali við Washington Post að hann vildi gera eitthvað fyrir unga fólkið, sýna því fegurð sjáv- arins og vera innblástur fyrir unga frumkvöðla. „Ég er að reyna að gera eitthvað sem er öðruvísi og sýnir fólki hversu fagurt hafið er,“ segir Camberini. NÝ AÐFERÐ VIÐ RÆKTUN GRÓÐURS Neðansjávar- garður á Ítalíu Gróðurhús fyrir utan strönd Ítalíu nefnast Nemo’s Garden og minna á eitthvað úr vísindaskáldsögu. AFP Google-gleraugun náðu aldrei almennilegum vinsældum þó að hugmyndin hafi vissulega verið áhugaverð. Google ætlar þó ekki að láta áhugaleysi almennings stöðva sig og stefnir nú að Google Glass 2.0, kannski verða þau vinsælli. Ný Google-gleraugu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.