Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2015, Qupperneq 37
Schiaparelli Hönnuðurinn Bertrand Guyon hefur nýverið tekið
við sem yfirhönnuður tískuhúss Elsa Schiaparelli. Fyrsta lína hans
fyrir húsið bar heitið „Le Théâtre d’Elsa,“ og var það óður til Elsu
Schiaparelli sem vann súrrealíska hönnun sína á árunum 1930/40
og hefur haft gífurleg áhrif á tískuheiminn allar götur síðan. Línan
var vel heppnuð og náði hönnuðurinn að fanga adrúmsloft fyrrvera
síns, Elsu, á einstakan og áhrifaríkan hátt, bæði í sniðum og textíl.
Altier Versace Á hátískusýningu ítalska tískuhússins Versace fyrir
veturinn 2015/2016 sýndi yfirhönnuðurinn, Donnatella Versace, örlítið
mýkri hlið á merkinu. Silki- og siffonkjólar með hárri klauf og blóma-
kransar vöktu athygli. Línan var ekki eins djörf og aðrar línur tísku-
hússins en engu að síður mátti sjá margar fallegar flíkur á sýningunni.
Giambattista Valli
Hátískulína Giambattista Valli var að
vonum stórglæsileg. Í ár fagnaði
tískuhúsið 10 ára afmæli sínu. Lit-
rík blóm, víðir kjólar og und-
ursamleg snið fullkomnuðu
þessa fáguðu línu tískuhússins.
12.7. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
Styr var skráður hjá fyrirsætuskrifstofu í París
fyrr á þessu ári og síðan þá hefur hann fengið
tvö stór verkefni fyrir tískuvikuna.
ALLTAF MEIRI LÖNGUN Í LEIKLISTINA
É
g var nú bara heppinn. Ég var úti
fyrir sýningarnar og var síðan í sím-
tali beðinn um að kíkja til New York
og vinna að myndatöku fyrir Balen-
ciaga,“ segir Styr Júlíusson sem sat fyrir í
myndatöku fyrir nýjustu herralínu tískuhúss-
ins. Styr var skráður hjá fyrirsætuskrifstofu
í París fyrr á þessu ári og síðan þá hefur
hann fengið tvö stór verkefni fyrir tískuvik-
una en hann gekk einnig pallinn fyrir tísku-
húsið Sacai.
Spurður um tískubransann segist Styr
taka þessu öllu með ró og segist helst ekki
vilja detta alveg heill inn í þennan bransa og
kemur hann því fram við þetta meira eins og
hliðarverkefni.
„Ég hef nú bara fengið lítið bragð af
bransanum og er heppinn að vera með gott
fólk í kringum mig á skrifstofunni og hef
kynnst góðum vinum. Mín upplifun af tísku-
bransanum er mjög skemmtileg og mín
fyrstu skref í honum hafa verið ósköp róleg
og næs. En ég hef ekki fengið mikið bragð
af þessum svokallaða „bransa,“ svo ég geti
lýst honum.“
Styr er ekki ókunnugur því að vera fyrir
framan myndavélar en hann lék aðal-
hlutverkið í kvikmyndinni Falskur fugl. Að-
spurður hvort leiklistin og fyrirsætustörfin
séu svipuð störf segir Styr svo ekki vera.
„Þetta er tvennt ólíkt og því meira sem ég
er að vinna við fyrirsætustörf því meira
langar mig að fara að leika. Þótt ég hafi al-
veg gaman að því að vera módel, hitta
skemmtilega ljósmyndara og fleira fólk þá
hef ég alltaf meiri löngun í leiklistina.“
Geggjað að hitta Alexander Wang
Styr segist ekki hafa vitað mikið um tísku-
húsið áður en hann sat fyrir hjá þeim.
„Mér finnst Balenciaga mjög flott merki.
Ég reyndar hafði ekki mikla þekkingu á
tískuhúsinu til að byrja með en fljótt fékk ég
að vita margt um það eftir að ég var bókað-
ur í verkefnið. Ég hitti yfirhönnuðinn, Alex-
ander Wang, sem er með sitt eigið merki
líka, Alexander Wang, hann var á staðnum.
Það var frekar geggjað.“
Aðspurður hvert sé eftirlætistískuhús
Styrs segist hann ekki alveg nógu vel að sér
í tískubransanum til þess að geta nefnt sér-
stök merki. „Ég skal alveg viðurkenna það
að ég er ekki með hausinn inni í tískunni og
hef ekki mikið vit á þessu, þrátt fyrir að ég
ætti að vera það út af móður minni (Lindu
Björgu Árnadóttur) en ég er ekki enn kom-
inn með uppáhaldshönnuð eða merki,“ út-
skýrir Styr en bætir við að sér þyki margt
flott og skemmtilegt til að mynda Commes
des garcon.
Styr Júlíusson var
myndaður í New
York fyrir herralínu
Balenciaga.
STYR JÚLÍUSSON FÉKK ÞAÐ VERKEFNI
Á DÖGUNUM AÐ SITJA FYRIR FYRIR EITT
VIRTASTA TÍSKUMERKI HEIMS, BALENCIAGA.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Skemmtilegt
hliðarverkefni