Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.07.2015, Blaðsíða 6
* Eini maðurinn sem gerir aldrei nein mistök er sá semgerir aldrei neitt. Theodore Roosevelt, Bandaríkjaforseti 1901-1909.Alþjóðamál
KRISTJÁN JÓNSSON
kjon@mbl.is
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.7. 2015
HEIMURINN
BR
DONLO arack ObamaB r aðaríkjafoBand rseti
n rópundinu við Ehafa meiri trú en e a á samndaríkjamenBa
g þaððilar að EvrópusambandiBretar verðief
Bta kemur fram í viðtaldaryvel f rir Ban ísér
rn Davids Camerons í Bretlandi há föstudag. Stjóforsetann og birt var
m aðildina ekki síðar en 2017.uað efnt verði til þjóða
m í heiminum með aðild að EBretar muni best hald
RK
RA Tyr
tudag árásir á þrjárgerðu á fös
sRíkis íslam , IS, í Sýrlandi og sögðu
enn í Ankara að áður hefðu boristembættism
r um að IS ætlaði að gera árásirupplýsinga
. Þoturnar, sem beittu eldflaTyrklandi
kki hafa farið inn í lofthelgi Smunu e ands.
ru um 250 manns í 13nnig voEi teknir vegna
ryðjuverhgruns um tengsl við ður kom í fyrsta
amama i tysinn til beinna átak og IS og s
velli ír Bandadag heimiluðu Tyrk
mlandinu til árása á I
AÍLAT ND
NGKOK s 72aróknarSaks
gja, fyrirm. stjórnm
smyglað dess.áfrfaran
gnaki hafa verið gefna
rir að30 annarra mann
umguki, fyrir aðild að
ustTaílalen
Malasíumæ
M á
ætla
svæðinu en
frumskóga
ættbálka o
með boga
valdi því að ættbá
Bein samskipti við æ
eru bönnuð vegna ót
ráði ekki við ýmsa alg
því dáið út.
Er forsetaframboð Hillary Rod-ham Clinton að hrynja? Fyr-ir fáeinum mánuðum spáðu
flestir álitsgjafar og fjölmiðlar henni
sigri í forsetakjörinu á næsta ári en
nú virðast kjósendur vera að snúa
við henni bakinu. Eitt virðist geta
bjargað Clinton: að auðkýfingurinn
orðhvati, Donald Trump, verði for-
setaefni repúblikana eða fari í sér-
framboð.
Yrði sérframboð niðurstaðan má
gera ráð fyrir að Trump tæki mun
meira fylgi frá repúblikönum en
demókrötum.
Uppgangur Trump, sem í sumum
könnunum er nú efstur þeirra 16
repúblikana sem hafa gefið kost á
sér, hefur í bili dregið athyglina frá
dvínandi fylgi við Clinton. Í vikunni
voru birtar kannanir Quinnipiac-
háskóla í þrem sambandsríkjum,
Colorado, Iowa og Virginíu, allt
ríkjum sem hvorugur stóru flokk-
anna álítur traust vígi sín. Þess má
geta að Barack Obama forseti sigr-
aði í öllum þremur ríkjunum bæði
2008 og 2012 og Clinton hefur stað-
ið þar vel að vígi í könnunum síð-
ustu mánuði.
Í ljós kom núna að Clinton myndi
tapa með talsverðum mun fyrir Jeb
Bush, Marco Rubio og Scott Walker
í öllum þremur, hver þeirra sem
yrði í framboði fyrir repúblikana.
En um 60% aðspurðra í ríkjunum
þremur hafa mjög lítið álit á Trump
og Clinton myndi sigra hann, fá
50% gegn 37%.
Stjórnmálaskýrendur segja að
ljóst sé að mikill meirihluti demó-
krata sé enn hlynntur Clinton, það
komi fram í könnunum. Og nú vilja
margir demókratar að flokkurinn
standi fyrir tímamótum, og fyrsta
konan á forsetastóli verði demókrat-
inn Clinton. Hún er þaulreynd í
stjórnmálum, ólíkt Obama 2008. En
undanfarna mánuði hafa spurningar
vaknað í huga kjósenda um heiðar-
leika hennar. Í Virginíu segja 55%
aðspurðra í könnun að hún sé ekki
heiðarleg eða traustvekjandi, aðeins
39% eru á öðru máli. Þegar spurt er
um Jeb Bush snúast tölurnar nán-
ast við, 51% andspænis 33%.
Umdeild fjármál
Hillary sagði þau hjón hafa verið
„alveg staurblönk“ þegar Bill Clint-
on yfirgaf Hvíta húsið í janúar 2001.
En nú er hún orðin vellauðug.
Tekjur hennar og eiginmannsins af
fyrirlestrahaldi og bókum hafa gert
þau að margföldum milljónamæring-
um í dollurum. Vinskapur Hillary
við ýmsa áhrifamenn í Wall Street
kom skýrt fram í fjármálakreppunni
2008 þegar hún varði þá af kappi
bak við tjöldin. Góðgerðasjóður sem
hjónin stofnuðu og reka enn hefur
auk þess fengið mikil framlög frá
aðilum sem margir álíta vafasama.
Upplýsingar um fjármál hjónanna
hafa því ekki orðið Hillary til fram-
dráttar og eiga vafalaust þátt í
verulegu fylgi við Bernie Sanders,
73 ára gamlan, vinstrisinnaðan öld-
ungadeildarþingmann frá Vermont
sem vill verða forsetaefni demó-
krata. Wall Street Journal segir að
sl. 25 ár hafi Clinton-hjónin ávallt í
kosningabaráttu notið rausnarlegra
styrkja frá Wall Street. Einkum
hafi Goldman Sachs-risinn verið
þeim hliðhollur en framlög af þessu
tagi fara að jafnaði um sérstakar
nefndir stuðningsmanna, PAC-hópa,
sem eru þá formlegir styrktaraðilar.
Viðskilnaður Hillary í utanríkis-
ráðuneytinu var vandræðalegur.
Fram kom að hún lét eyða tugþús-
undum persónulegra tölvuskeyta,
þvert á reglur, áður en hún yfirgaf
ráðuneytið. Að vísu var bent á að
fleiri ráðamenn hefðu gert slíkt hið
sama þegar þeir hættu störfum en
þær afsakanir hafa lítið breytt stöð-
unni. Nú hefur óháður eftirlitsmað-
ur með utanríkisráðuneytinu og
leyniþjónustustofnunum beðið dóms-
málaráðuneytið að rannsaka hvort
viðkvæmum, opinberum gögnum
hafi verið stefnt í hættu vegna þess
að Clinton notaði oft persónulegan
tölvupóstsaðgang í starfi sínu í stað
þess að nota opinbera aðganginn.
Þekkt en umdeild
Aðeins örfáir bandarískir stjórn-
málamenn eru jafn vel þekktir meðal
almennings og Hillary Clinton. En
hún er ákaflega umdeild og óvíst hve
vel henni mun ganga að laða að sér
óflokksbundna kjósendur. Hún nýtur
virðingar en virðist ekki eiga auðvelt
með að ná til hvítra karla og þá ekki
síst verkamanna. Að einhverju leyti
eru þar vafalaust hefðbundnir kynja-
fordómar að verki.
En stuðningsmenn Clinton fá sum-
ir óblíðar móttökur í New Hamsp-
hire þar sem fyrstu raunverulegu
forkosningarnar verða. Í borginni
Manchester opnaði Karl Savage, sem
hefur kosið í forkosningum demó-
krata, dyrnar. En hann skellti í lás
eftir að hafa hlustað í örfáar sek-
úndur. Skömmu síðar kom eiginkona
hans, Pamela Savage í dyrnar.
„Við höfum ekki áhuga. Okkur
líkar ekki við hana,“ sagði hún.
Fylgi Clinton
stöðugt á
niðurleið
FYRIR NOKKRUM MÁNUÐUM VIRTIST MARGT BENDA TIL
ÞESS AÐ HILLARY RODHAM CLINTON MYNDI Á NÆSTA
ÁRI VERÐA FYRST KVENNA TIL AÐ NÁ KJÖRI SEM FORSETI
BANDARÍKJANNA. KANNANIR SÍÐUSTU MÁNUÐI GEFA TIL
KYNNA AÐ ÞAÐ HAFI VERIÐ OFMAT.
KYNFERÐI AÐ VOPNI
Hillary Clinton hefur svarað
fullum hálsi þeim sem segja að
hún noti kynferði sitt sem vopn
í baráttunni. Sumir fullyrða að
ef til vill muni konur úr röðum
repúblikana ekki standast
freistinguna og senda kynsystur
í Hvíta húsið.
Þegar Bill Clinton hóf for-
setabaráttu sína 1991 var póli-
tískur metnaður Hillary augljós,
sjálfur sagði Clinton „þið fáið
tvo [forseta] fyrir verðið á ein-
um“. Ummælin voru hart gagn-
rýnd. Hvergi í stjórnarskránni
væri talað um að maki forset-
ans deildi völdum með honum.
Hillary Clinton leyfir konu í New York að taka sjálfu með frambjóðandanum. Clinton, sem er öldungadeildarþingmaður
fyrir New York-ríki, heitir nú að bæta hag láglaunafólks í Bandaríkjunum nái hún kjöri.
AFP