Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.07.2015, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.7. 2015
Talið er að erlendir ferðamenn færi núorð-ið hátt í fjögur hundruð milljarða inn íþjóðarbúið á ári hverju. Munar um
minna. Með tilkomu þeirra verða til mynd-
arlegir tekjustofnar fyrir ríki og sveitarsjóði
og þar með fjármunir til að skapa aðkomu-
mönnum þá aðstöðu sem við viljum vera þekkt
fyrir að bjóða uppá eftir öll auglýstu heimboðin
til Íslands í fjölmiðlum og á skjáskiltum víðs
vegar um heiminn. Það má ekki gleymast að
við höfum kallað þetta yfir okkur! Á sumum
ferðamannastöðum er aðstaða til mikils sóma.
Annars staðar gæti hún verið betri og sums
staðar er hún afleit. Brotalamirnar þarf að
laga með markvissum aðgerðum. Það er vel
leysanlegt verkefni. Sums staðar hefur það
þegar verið gert og án allra upphrópana; sal-
erni reist, upplýsingaskiltum komið fyrir og
haganlegir stígar gerðir. Síðan hafa ágætir
veitingastaðir komið til sögunnar og verslanir
með áhugaverðan varning.
Hvort við þurfum að ná í viðbótarskatttekjur
fyrir fleiri klósett, skilti og leiðsögn skal ósagt
látið. Sjálfur hef ég ekki sannfæringu fyrir því.
En ef svo er, þá eru sterkar vísbendingar um
að komugjald á farþega til landsins og þá ekki
síður hækkun gistináttagjalds væru kostir sem
mjög breið samstaða yrði um. Fjármunir sem
þannig öfluðust myndu vissulega koma að góð-
um notum við ferðamannastaði og í þjóðgörð-
um landsins þar sem brýn nauðsyn er að halda
áfram mjög mikilvægu uppbyggingarstarfi.
Hugmyndir um að selja aðgang að náttúru-
perlum hafa verið harðlega gagnrýndar en
gagnrýninni hafa ýmsir hagsmunaaðilar reynt
að grafa undan með hræðsluáróðri og dóms-
dagsspám. Neyðarástand er sagt ríkja í land-
inu, sérfræðingar innlendir og erlendir lýsa því
yfir í vandlætingu sinni að aðstaða sé fyrir
neðan allar hellur þótt flestum okkar þyki oft á
tíðum illskiljanlegt hvert þeir eru að fara.
Þessir sömu aðilar beina sjónum sínum ofan í
grassvörðinn í leit að þvagi og mannasaur til
að skerpa á dramatíkinni. Allt þetta á að þjóna
þeim tilgangi að telja okkur trú um að við
séum á heljarþröm og að ef við borgum ekki
ofan í vasa gjaldheimtumanna, þá sé voðinn
vís.
En þar með yrði Ísland gert að einu alls-
herjar gjaldtökulandi og þannig eyðilögð sú
mynd sem við og gestir okkar höfum haft af
okkar góða landi, að það sé opið og frjálst.
Í þeirri hryggðarmynd sem dregin hefur
verið upp af ferðamennskunni vill stundum
gleymast það sem vel hefur verið gert. Á und-
anförnum árum hefur nefnilega á ýmsum svið-
um þróast sitt hvað sem við hljótum að telja til
hágæða. Fyrst nefni ég þjóðgarðana og upplýs-
ingamiðstöðvar þeirra. Þá horfi ég til safna
sem batnað hafa mikið, góðra veitingastaða og
síðast en ekki síst sífellt strangari krafna sem
leiðsögumenn gera til sjálfra sín og sinnar
stéttar. Þegar allt kemur til alls hefur margt
verið vel gert í ferðaþjónustu á Íslandi og því
margt til að gleðjast yfir.
Það sem vel er gert
* En þar með yrði Íslandgert að einu allsherjargjaldtökulandi og þannig
eyðilögð sú mynd sem við og
gestir okkar höfum haft af
okkar góða landi, að það sé
opið og frjálst.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Ögmundur Jónasson
ogmundur@althingi.is
Björk Eiðsdóttir, ritstjóri tíma-
ritsins Man, tjáir sig um skort á
vinnufriði og ritar þetta á Face-
book: „Ekki nóg með að ég sitji
sveitt inni í sjóð-
heitri skrifstofu í
sólinni að reyna
að mjatla tímariti í
prent. Þá er verið
að bora (mjög
mjög hátt) á efri hæðinni svo sker í
þetta skapandi höfuð! Hvar hafa
dagar lífs míns lit sínum glatað og
hvar er hvítvínið kalda? Hvaa-
aaar!?!? Hvar?“
Börkur Gunnarsson rithöf-
undur átti í vandræðum með
Google í vikunni
og tjáði sig á Face-
book: „Þegar ég
ætlaði að slá upp
Veru Lynn á net-
inu og lesa aftur
um hana af pervertískum og ein-
hverfum áhuga á henni og öllum
hennar lögum að þá gaf gúggle mér
líklegast tólf möguleika á Veru,
meðal annars Veru Illugadóttur,
einsog hún væri frægari en Vera
Lynn? En ekki var gefinn möguleiki
á Veru Lynn. Það er einsog hún
hafi gleymst þarna hjá Rússunum
hjá Gúggl. Ég held að Vera Lynn
ætti að hætta að vera.“
Sigríður Ingibjörg Ingadótt-
ir alþingismaður vill segja af sér
sem húsmóðir og mátti lesa um
það á Facebook í síðustu viku: „Ég
auglýsi hér með laust starf hús-
móður til umsóknar. Hver er ann-
ars uppsagnarfresturinn í þessu
djobbi?“
Jóhanna Vigdís Arnardóttir
leikkona fagnaði 10 ára brúðkaups-
afmæli um daginn og gerði sér
dagamun með sínum heittelskaða.
Facebook vinir fengu að fylgjast
með: „Við Veiðimaðurinn eigum
tíu ára brúðkaupsafmæli í dag og
ég ætla að drepa ykkur á róm-
antískum "selfies" það sem eftir lif-
ir kvölds!“
AF NETINU
Vettvangur
Málmgoðin í Slayer senda frá sér sína fyrstu breiðskífu í
sex ár 11. september næstkomandi. Þetta er í annað sinn
sem þeir félagar velja 11. september sem útgáfudag en
síðast gerðist það árið 2001. Útgáfa þeirrar skífu, God
Hates Us All, féll raunar í skuggann á öðru, hryðjuverka-
árásunum á Bandaríkin. Ekki liggur fyrir hvort sér-
stakur viðbúnaður verður af hálfu yfirvalda vestra að
þessu sinni.
Nýja platan hefur hlotið nafnið Repentless og verður
sú fyrsta sem Slayer sendir frá sér eftir að stofnandi
sveitarinnar og annar helsti lagahöfundur, gítarleik-
arinn Jeff Hanneman, sálaðist árið 2013. Sæti hans í
sveitinni tók Gary Holt, gítarleikari annars þrassbands,
Exodus. Platan hefur verið lengi í smíðum og mun Hann-
eman heitinn eiga eitt lag á henni, Piano Wire. Hin lögin
á plötunni eru eftir hinn gítarleikara Slayer, Kerry King.
Þrjú þeirra hafa þegar heyrst opinberlega, titillagið,
When the Stillness Comes og Implode.
Slayer hefur eðli málsins samkvæmt áform um að túra
nýju plötuna grimmt á komandi mánuðum og spurning
hvort ekki sé tími til kominn að goðunum skoli upp á Ís-
landsstrendur. Eistnaflug, Rokkjötnar, einhver?
Gefa öðru sinni út
breiðskífu 11. september
Kerry King og Gary Holt í grenj-
andi sveiflu á Slayer- tónleikum.
AFP
The NAVSUP Fleet Logistics Center
Norfolk intends to negotiate a Firm Fixed
Price contract for Information Technology
Support Services at the Naval Radio Transmit
Facility in Grindavik, Iceland.
This work includes operations and maintenance
of the site. In order to be eligible for award,
the offeror shall be a qualified Icelandic
enterprise.
For solicitation information, including full details
on the contract scope, contact Caitlin King via
email at caitlin.king@navy.mil.