Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.07.2015, Side 20
E
ftir að flugfarþegi í flugi WOW Air
til Washington DC skildi eftir blað,
sem hann hafði teiknað á alla helstu
ferðamannastaði borgarinnar handa
flugfreyjunum Hildi Hilmarsdóttur og Stein-
unni Eyju Gauksdóttur, sem höfðu einn dag
til að njóta í veðurblíðunni, var ferðaáætlun
flugfreyjanna ákveðin.
„Við slógum til. Við ákváðum að blaðið
sem farþeginn skildi eftir handa okkur yrði
okkar helsti leiðarvísir í ferðinni,“ segir
Hildur.
Þær höfðu sagt farþeganum að þær vildu
leigja reiðhjól í borginni og skoða hana með
augum hjólreiðamannsins. Hann tók mið af
því en Steinunn segir að hann hafi verið
heimamaður og því kunnugur svæðinu.
Washington DC þarf vart að kynna.
Höfuðborg Bandaríkjanna, þekktust fyrir
Hvíta húsið og Lincoln-minnismerkið, en þar
er einnig að finna líflegt mannlíf, mikið úr-
val af verslunum og góða veitingastaði.
Hildur segir það lítið mál að leigja sér
hjól í borginni. „Það eina sem þú þarft er
kreditkort og hjólið verður þitt næstu 30
mínúturnar,“ segir Hildur. Hún mælir með
að fara inn á síðuna www.capitalbikeshare-
.com. Þar má finna hvar hægt er að taka
hjól á leigu en hjólaleiga kostar átta dali
dagurinn.
Ferðalagið hófst við lestarstöðina Union
Station þar sem þær leigðu hjólin. „Fyrsta
stoppið var United States Capitol eða þing-
húsið. Miklar framkvæmdir voru á annars
glæsilegu húsinu svo við stoppuðum ekki
lengi þar,“ segir Steinunn en þaðan héldu
þær í átt að Hvíta húsinu.
„Við hjóluðum Pennslyvania Avenue, sem
liggur þvert í gegnum borgina og að Hvíta
húsinu og Forsetagarðinum. Mikil spenna
greip um sig hjá okkur hjólreiðagörpunum
þegar sást glitta í fagurgrænt grasið í garð-
inum og staðnæmdumst við hinum megin við
götuna til að virða fyrir okkur dýrðina þegar
um það bil átta lögreglubílar og álíka margir
lögreglumerktir hjólakollegar okkar skröns-
uðu í veg fyrir okkur og stöðvuðu alla um-
ferð,“ segir Steinunn. Hún segir að dágóðum
tíu mínútum síðar hafi tignarleg halarófa
svartra jeppa keyrt fram hjá sem hleypt var
inn í garðinn. Þegar þeirri athöfn var lokið
hafi íslensku flugfreyjunum verið hleypt
áfram.
„Við erum handvissar um að þarna hafi
Obama sjálfur verið á ferð því þegar fyrir
utan húsið var komið mættum við engu öðru
en harðlæstum hliðum og lögreglumönnum
sem tilkynntu að garðurinn væri lokaður
tímabundið,“ segir Hildur. Því hafi ekkert
annað verið í stöðunni en að smella af einni
sjálfu ásamt öllum hinum túristunum.
Áfram geystust þær á fákunum og lá leið
þeirra að hinum víðfræga minnisvarða um
Washington (e. Washington Monument) sem
reistur var til heiðurs fyrsta ameríska for-
setanum, George Washington. „Minnisvarð-
inn stendur í þjóðgarðinum National Park
og þótti okkur svæðið þar í kring ein-
staklega fallegt og skemmtilegt að skoða.
Þar eru minnisvarðar um Víetnamstríðið,
Kóreustríðið og seinni heimsstyrjöldina,“
segir Steinunn en í enda garðsins er tign-
arlegt hús í grískum stíl sem hefur að
geyma minnisvarða um Abraham Lincoln (e.
Lincoln Memorial), 16. forseta Bandaríkj-
anna.
„Þá fór að líða á seinni hluta þessa frá-
bæra hjóladags og við renndum okkur yfir í
Georgetown með aðeins eitt markmið í huga:
að komast í hina vinsælu bollakökuverslun
Georgetown Cupcakes,“ segir Steinunn en
þær ætluðu að ná sér í Red Velvet-
bollaköku sem er vinsælasta kakan að henn-
ar sögn. „Við ætluðum að athuga hvort um
væri að ræða mýtu eða hvort þetta væri
heimsins besta bollakaka,“ segir Steinunn á
léttu nótunum en þær þurftu að bíða í langri
röð eftir kökunum.
„Að sögn heimamanna er röðin alltaf
svona löng en við komumst að lokum í bolla-
kökuhimnaríki,“ segir Hildur. Red Velvet-
kaka og súkkulaðikaka með saltri karamellu
urðu fyrir valinu hjá þeim sem þær sporð-
renndu með ylvolgum kaffibolla.
„74 prósent kaka og 26 prósent krem er
kombó sem getur ekki klikkað. Við gengum
út, sáttar og sælar, fullvissar um að hafa
smakkað bestu bollakökur í heimi,“ segir
Steinunn og hlær.
EINN DAGUR Í WASHINGTON
Ódýr hjólaferð
ÞAÐ KOSTAR EKKI NEMA ÁTTA DALI Á DAG AÐ LEIGJA HJÓL Í
WASHINGTON DC Í BANDARÍKJUNUM. FLUGFREYJURNAR HILDUR
HILMARSDÓTTIR OG STEINUNN EYJA GAUKSDÓTTIR LEIGÐU SÉR
HJÓL OG SMÖKKUÐU BESTU BOLLAKÖKU Í HEIMI.
Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is
* 74 prósent kaka og26 prósent krem erkombó sem getur ekki
klikkað. Við gengum út,
sáttar og sælar, fullvissar
um að hafa smakkað
bestu bollakökur í heimi.
Forsetinn var á
svæðinu, segja þær.
Georgetown Cupcakes er að mati margra með bestu bollakökur í heimi. Flugfreyjurnar segja
að það hafi sannarlega verið þess virði að bíða eftir hinum margrómuðu bollakökum.
Kjánaprikið, eða sjálfsmyndaprikið, er staðalbúnaður í ferðalögum margra, líka hjá flug-
freyjum en á myndinni má sjá Hildi stilla prikið til að geta náð sem bestri sjálfsmynd.
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.7. 2015
Ferðalög og flakk
836 notendur hafa gefið Georgetown Cupcakes
umsögn á Tripadvisor, þar sem staðurinn er fjórði
í röðinni yfir bestu bakaríin í Washington DC.
Umsagnirnar eru flestar mjög jákvæðar; „Bestu
bollakökur í bænum“, „Þess virði að bíða“, „Bolla-
kökur… WOW,“ þó svo að örfáir notendur segi
að kökurnar séu ofmetnar, bara vegna þess að
staðurinn hafi komið fram í sjónvarpsþætti.
Einn notandi segir að kökurnar séu góðar en
þær kosti sitt en samkvæmt verðskrá á heimasíðu
Georgetown Cupcakes kostar hver bollakaka
þrjá dali, ekkert rán miðað við það sem við eigum
að venjast hér á Íslandi.
Staðurinn er opinn frá morgni til kvölds. Hann
er opnaður klukkan 10 fyrir hádegi og honum er
lokað klukkan 21 um kvöld. Misjafnt er hversu
löng röðin er, en til öryggis er ráðlagt að gera ráð
fyrir að minnsta kosti klukkutíma bið í röðinni, þó
svo að hún verði að öllum líkindum töluvert
styttri, nær því að vera hálftími eða svo.
Ef þú trúir ekki orðum blaðamannsins um það,
kíktu þá á Tripadvisor og sjáðu hvað notendur
eru ánægðir.
Flugfreyjurnar tvær komust að því á ferða-
laginu að bestu bollakökur í heimi er að
finna hjá Georgetown Cupkakes.
Skylda að koma við í
Georgetown Cupcakes