Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.07.2015, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.7. 2015
Matur og drykkir
H
rífunes stendur á milli Mýrdals- og Vatnajökuls og er útsýni
þar til beggja jökla. Þar í nágrenninu má finna fjölbreytta af-
þreyingu. Margir ferðamenn kjósa að skoða sig um á þessu
svæði og þá er gott að fá gistingu hjá Elínu í Glacierview Gu-
esthouse sem hún og maður hennar Borgar hafa rekið frá 2007. Það sem
kemur flestum á óvart er dásamlegi maturinn sem reiddur er þar fram.
Gestir sem rita í dagbókina nefna margir að þar hafi þeir fengið sína
bestu máltíð í allri Íslandsferðinni. „Við erum svo afskekkt að við verðum
að bjóða upp á mat og við höfum fengið frábæra dóma fyrir matinn og
unnum til dæmis Traveller’s Choice Award hjá Tripadvisor núna 2015 fyr-
ir mat og gestrisni,“ segir Elín.
Íslenskt hráefni og framandi krydd
Elín notar ferskt íslenskt hráefni í matargerðina en kryddar oft með
framandi kryddum. „Þar sem við hjónin höfum rekið ferðaskrifstofu í
Kenía um langt skeið höf-
um við kynnst ýmsum ex-
ótískum kryddum og finnst
okkur gaman að leika okk-
ur með þau,“ segir hún. El-
ín og Rakel Sverrisdóttir,
vinkona hennar, bjóða
ferðamönnum dagsins upp
á fiskisúpu í forrétt, lamba-
læri úr sveitinni ásamt
meðlæti í aðalrétt og blá-
berjaskyrtertu í eftirrétt.
Allt brauð er bakað á
staðnum og tínir Elín
gjarnan blóðberg og ber í sveitinni og nýtir í matargerðina. „Hér fara all-
ir saddir og sælir að sofa,“ segir hún.
Fiskisúpa með kjöti
Margt skemmtilegt hefur drifið á dagana í eldhúsinu á Hrífunesi. Eitt
sinn var Elín að elda risastóran pott af fiskisúpu ofan í 30 manna hóp
sem var á leiðinni. Hana vantaði svo tómatsósudós og fann eina stóra sem
hún hélt innihalda slíkt, en miðinn hafði dottið af. Þegar hún hellti úr
þessari risadós ofan í pottinn tók hún eftir að í dósinni var nautahakk í
bland við sósuna. Nú voru góð ráð dýr. Fiskisúpan var nú full af niður-
soðnu nautahakki og Elín fölnaði. Rútan rann í hlað með sársvanga ferða-
menn. Elín tók fararstjórann afsíðis og játaði mistökin og ræddu þær
hvað væri til ráða. Ekki var tími eða hráefni í nýja súpu. „Nú var bara
tvennt í boði, annaðhvort að ljúga að kúnnanum eða að segja ekki allan
sannleikann. Við ákváðum að taka þann pól í hæðina að kalla þetta bara
kántrísúpu með fiski. Og þá lugum við engu og súpan var borðuð upp til
agna,“ segir Elín og hlær.
Rakel Sverrisdóttir og Elín Þorgeirsdóttir krydda frjálslegu fiskisúpuna í eld-
húsinu á Hrífunesi og slá á létta strengi með piparkvörnina á lofti.
HRÍFANDI HRÍFUNES
Veisla í
skjóli jökla
MILLI TVEGGJA JÖKLA KÚRIR GAMLI BÆRINN HRÍFUNES
SEM NÚ HEFUR FENGIÐ NAFNIÐ GLACIERVIEW
GUESTHOUSE. ÞAR TÖFRAR ELÍN ÞORGEIRSDÓTTIR FRAM
MEISTARARÉTTI FYRIR SVANGA FERÐALANGA.
Myndir og texti: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
* Nú var bara tvenntí boði, annaðhvortað ljúga að kúnnanum
eða að segja ekki allan
sannleikann. Við ákváðum
að taka þann pól í hæð-
ina að kalla þetta bara
kántrísúpu með fiski.
1 stór rauðrófa eða 2 litlar
hvítlauksolía (hristið saman í krukku smá olíu og
1-2 hvítlauksrif)
2-3 msk. fetaostur í bitum
1-2 cm rifin engiferrót
salt
pipar
½ sítróna
sesamfræ
tamari-sósa
Afhýðið og skerið rauðrófur í ræmur og setjið hráar í skál.
Hellið yfir hvítlauksolíu, engifer og safa úr sítrónu. Setjið
fetaost út á. Saltið og piprið eftir smekk. Þurrristið
sesamfræ á pönnu þar til þau fara að poppa, takið af og
skvettið smávegis af tamari-sósu yfir og stráið yfir rófurnar.
Fyrir 4.
Mýrdalsrauðrófusalat
Afrískt rótargr
1 sæt kartafla
½ rófa
¼ sellerírót
2-3 gulrætur
má setja eina stóra kartöflu
1 tsk. fennelfræ
1 tsk. cummin-fræ
olía
½ til 1 peli rjómi
1 tsk. karrí
1 tsk. garam masala
1 lífrænn grænmetisteningur
smá vatn
Gró
St
cum
hen
met
H
þar
karr
met
kryd
sme
smá
man
4 stórar bökunar-
kartöflur skornar í báta
1 rauðlaukur saxaður í
búta
2-3 hvítlauksrif söxuð
3 msk. olía
½ tsk. salt
½ tsk. pipar
2 msk. sinnep
1 dl appelsínudjús
3 msk. sesamfræ
smá blóðberg
Setjið kartöflur, rauðlauk
og blóðberg í eldfast mót.
Hristið saman í krukku
sinnep, hvítlauk, olíu, salt,
pipar og appelsínudjús og
hellið yfir kartöflurnar.
Stráið sesamfræjum yfir og
bakið í ofni við 200° C í
klukkutíma eða þar til
mjúkt og gullinbrúnt.
Smakkið og kryddið meira
ef þarf. Fyrir 4-6 manns.
Lúxuskartöflubátar