Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.07.2015, Qupperneq 34
Tíska *Ofurstirnið Taylor Swift kannast flestir við en þeysireið hennarvirðast engin takmörk vera sett. Ekki er langt síðan hún komst ífréttir fyrir að hafa haft betur í baráttu við Apple um greiðslur tiltónlistarmanna en í vikunni var tilkynnt að loks væri von á fata-línu frá söngkonunni. Línan verður seld í einni stærstu netverslunKína, JD.com, og er unnin í samstarfi við fyrirtækið Heritage 66Company, sem sérhæfir sig í því að hjálpa bandarískum lista-
mönnum að koma sér á framfæri í Kína. Fatalínan fer í sölu í nóv-
ember á þessu ári.
Taylor Swift með nýja fatalínu í Kína
H
vernig myndir þú lýsa þínum fatastíl? Eins klisjulega og það
hljómar, þá held ég að fatastíllinn minn sé frekar hefðbundinn.
Reyni að halda hlutunum stílhreinum með skemmtilegum lita-
samsetningum og mynstrum sem gleðja augað. Ég geng í föt-
um frá öllum þessu alkunnu fataverslunum – H&M, Dressmann, Jack &
Jones, Zara, 17 og fleiri. Við fínni tilefni eru verslanir á borð við Herra-
garðinn og Kormák og Skjöld hentugar. Þó hefur færst
í aukana hjá mér að kaupa föt á netinu en ASOS hefur
reynst mjög vel – mæli með þeirri síðu.
Hvaða þekkta andlit finnst þér hafa flottan stíl?
David Beckham er með skotheldan stíl. Conor
McGregor er líka fágaður í fataburði.
Hvað hefur þú í huga þegar þú skoðar eða
kaupir ný föt? Númer eitt, tvö og þrjú er að
líða vel í þeim. Bæði að þau séu þægileg og
að maður sé raunverulega sáttur með það
hvernig þau fara manni. Þess vegna kaupi ég
aðeins föt sem ég veit að ég mun ganga í.
Ekki bara til þess að fylgja einhverri tísku-
bylgju og í kjölfarið nota flíkina í fáein skipti.
Tek mér líka góðan tíma til að forðast fljót-
færniskaup sem ég gæti séð eftir síðar. Ég nýti
mér samfélagsmiðla í miklum mæli til þess að
skoða hinar ýmsu fatasamsetningar til að fá inn-
blástur. Mæli með MenWithStreetstyle og Men-
WithClass á Instagram.
Hvert er uppáhaldstrendið þitt
þessa dagana? Síður hvítur
stuttermabolur, þröngar
svartar gallabuxur, Nike-
skór og bert í ökklana.
Geysivinsælt lúkk
enda er það bara
mjög stílhreint og
töff. Grænir bomber-jakkar eru
líka veikir með þessari samsetn-
ingu.
Áttu uppáhaldsflík? Mér finnst
frekar erfitt að gera upp á milli,
enda hef ég það að leiðarljósi að
sérhver flík sem ég kaupi geti verið
uppáhalds. Ég á þó einn blazer-
jakka sem er
mér mjög kær.
Sá jakki er al-
settur litríkum
skrúðblómum – hljómar djarft
en hann er eitraður!
Hvað stenstu ekki að kaupa þótt þú
eigir nóg af því? Skyrtur. Þyrfti að-
eins að hemja mig.
Hvað gerirðu við gömul föt sem þú ert hættur að
nota? Gef litla bróður mínum eða Rauða krossinum.
Reyni að henda sem minnstu af fatnaði.
Hefur stíllinn þinn breyst í gegnum árin? Já, algjörlega. Kunni álíka
mikið og krossfiskur í fatavali fyrir menntaskóla. Það batnaði þó með
menntaskólaárunum þegar áhuginn á tísku og klæðaburði jókst til muna
eins og gengur og gerist. Ég vinn auk þess í Dressmann en þá þarf mað-
ur að hafa hlutina á hreinu til að geta veitt viðunandi þjónustu.
Hverju myndir þú aldrei klæðast? Ég held að ég myndi ekki klæðast
smekkbuxum á almannafæri.
Hvað er á óskalistanum? Spánnýir Nike Roshe One, Ray-Ban Clubmas-
ter sólgleraugu og drapplitaður jakkafatafrakki.
VILL AÐ HVER FLÍK GETI VERIÐ UPPÁHALDSFLÍK
Jóhannes Gauti stenst
ekki fallegar skyrtur
þegar hann sér þær.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Innblástur
frá Instagram
JÓHANNES GAUTI ÓTTARSSON ER TVÍTUGUR ÁRBÆ-
INGUR OG ÚTSKRIFAÐUR MR-INGUR. HANN VINNUR
Í DRESSMANN, STEFNIR Á LÆKNISFRÆÐI, ER AÐ
SAFNA FYRIR HEIMSREISU OG SEMUR TÓNLIST UND-
IR NAFNINU GÖTE. SKYRTUR ERU HANS VEIKLEIKI.
Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir gith@mbl.is
Jóhannes langar í
Ray-Ban Clubmas-
ter sólgleraugu.
Jóhannes lætur
ekki sjá sig í
smekkbuxum.
Grænir bomber-
jakkar passa vel
með sumarlúkkinu.
Írski bardaga-
kappinn Conor
McGregor er
flottur í klæða-
burði.