Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.07.2015, Blaðsíða 43
26.7. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43
leyfilegt, nei nei nei,“ segir hann og bætir
við að kynin hafi verið aðskilin. „Rétt fyr-
ir unglingsárin var þetta sorterað eða tals-
vert fyrr. Ég ólst upp við þetta. Þá var
ég svo upptekinn í gulldellunum mínum
sem ég svo kalla og ég var mjög upptek-
inn og var ekkert að spá í reglurnar,“
segir hann. Síðar fór hann þó að hafa
áhuga á hinu kyninu eins og aðrir ungir
menn.
Reynir Pétur er í sambúð með Hanný
Maríu en þau hafa þekkst frá bernsku.
Reynir Pétur segir að reglunum varðandi
samskipti kynjanna á Sólheimum hafi verið
breytt um 1980 og máttu þau þá hittast.
En Reynir Pétur þurfti að bíða í fjögur
ár eftir æskuástinni sinni því hún átti
fyrst annan kærasta. „Þá var annar búinn
að grípa kærustuna mína og varði það í
fjögur ár en svo þegar hún var á lausu
1984 þá greip ég hana, þá greip ég bolt-
ann! Og ég hef verið með henni síðan,“
segir hann en þau eru trúlofuð.
Að upplifa það sama og aðrir
Hann segir að þessi mál hafi verið erfið á
þessum tíma vegna reglnanna. „Ég vildi fá
að eiga sömu reynslu og þú. Hvernig það
er að búa með kvenmanni. Allt sem gerist
á bak við tjöldin fékk ég að upplifa, sama
og þú, sama og Pétur og Páll,“ segir
hann. Hann segir sambúðina ganga nokkuð
vel. „Þetta gengur. Auðvitað komum við
stundum að hrjúfum jarðvegi en samt er
ég mjög ánægður að fá að upplifa það
sama og þú og aðrir. Mér fannst ég ekki
sannur karlmaður fyrr en ég hafði upp-
lifað þetta, þetta er bara gaman,“ segir
hann „Aðalatriðið er að hafa upplifað það
hvernig er að sofa hjá kvenmanni. Það er
mikið frelsi, en áður fyrr var þetta bann.
Minnir mig á þegar beljum er hleypt út á
vorin,“ segir hann og skellihlær.
Borðar líka arfann
Reynir Pétur vinnur fulla vinnu í Gróðrar-
stöðinni Sunnu og líkar það vel. Þar vinn-
ur hann ýmis störf eins og að tína tóm-
ata, reyta arfa og vökva svo eitthvað sé
nefnt. Þar eru ræktaðir tómatar, gúrkur,
paprika og ýmsar salattegundir. Hann seg-
ist borða þetta allt saman. „Já, hvað held-
ur þú! Heldur þú að maður verði ekki að
borða það sem maður ræktar? Ég hefði
nú haldið það,“ segir hann og bætir við:
„Ég smakka líka stundum arfann, mér
finnst hann bara ágætur, hann er ekki
sem verstur. Ef ég sé grænan arfa í
brúsk, þá finnst mér svo gott að borða
hann.“
„Ertu brjáluð?“
Reynir Pétur segist ekki ætla að leggjast
í kör þegar hann nær 67 ára aldri en
hann er í fantaformi. Hann notar frítím-
ann í hjólreiðar og göngutúra, ásamt að
grúska í dellunum. „Heldurðu að ég ætli
að hætta að hjóla þegar ég er 67? Ertu
brjáluð? Þakka þér fyrir. Ég bara læt
boltann rúlla og spila þetta eftir hendinni.
Auðvitað getur komið fyrir að maður geti
orðið slappur tímabundið,“ segir hann, en
hann hjólar eða labbar daglega. „Ég elska
að hjóla. Þá fer ég í sumarbústaði að
selja diskinn með myndinni minni og svo
er ég að selja fyrir aðra. Og ef ég sel
fyrir aðra fæ ég bita af kökunni. Ég tek
mína sneið,“ segir hann og skellir upp úr.
Reynir Pétur úr pappa
Við höldum úr gróðurhúsinu í smábíltúr
um Sólheima og Reynir Pétur sýnir mér
skilti þar sem hann er í fullri stærð úr
pappa við aðkeyrsluna að Sólheimum. Nú
stendur yfir sýning í tilefni af þrjátíu ára
gönguafmæli Reynis Péturs. Við stöldrum
við á kantinum til að taka myndir af þeim
saman, alvöru og pappa Reyni Pétri. Við
klöngrumst yfir lúpínur til að komast að
pappa Reyni Pésa. „Ertu með bílinn í
gangi, ertu alveg galin?“ spyr hann og
blaðamaður skammast sín niður í tær.
Reynir Pétur stillti sér upp í myndatöku
og svo héldum við að næsta pappa Reyni
Pétri og nú passaði ég mig á að drepa á
vélinni. Hann býður mér næst heim til sín
í afar huggulegt timburhús og sýnir mér
heimilið og við spjöllum um dellurnar, fán-
ana og fleira.
Gengum hringinn á mínútu
Næst lá leiðin á sýninguna. Stórar ljós-
myndir fylla veggina. Myndir sem sýna
Reyni Pétur 36 ára ungan göngugarp.
Manninn sem varð að þjóðhetju á svip-
stundu. Maður sem með sínum sérstöku
persónutöfrum heillaði alla, jafnt börn sem
fullorðna og sýndi okkur að fötlun eða
þroskaskerðing þarf ekki að standa í vegi
fyrir að sigrast á erfiðleikum og sigra
sjálfan sig.
Þar á gólf er búið að leggja risastórt
Íslandskort þar sem gönguleiðin er merkt
með grænu punktastriki. Reynir Pétur
gengur sem leið liggur hringinn. Hann
býður mér að ganga hringinn sem ég geri
og leiðbeinir hann mér rétta leið. „Hugsa
sér að ég hafi labbað þetta. Nú tók þetta
bara mínútu en þá tók þetta 32 daga.
Stundum trúi ég ekki að þetta hafi gerst.
Þetta er lyginni líkast.“
Reynir Pétur unir sér vel
við vinnuna í gróðrarstöð-
inni. Þennan júlídag er þar
hitabeltisloftslag innandyra
og nægir þá að vera á
stuttbuxum einum fata.
* Þá var annar búinn að grípakærustuna mína og
varði það í fjögur ár en
svo þegar hún var á
lausu 1984 þá greip ég
hana, þá greip ég
boltann! Og ég hef
verið með henni síðan.
Árni Alexandersson er vinur Reynis
Péturs en hann flutti til Sólheima árið
1949, þá tæplega átta ára gamall.
Hvað ertu búinn að þekkja
Reyni Pétur lengi?
Síðan 1949.
Hvernig var hann sem barn?
Góður vinur minn og við höfðum
sömu áhugamál.
Var hann stilltur?
Hann var góður og alltaf brosandi.
Uppátækjasamur?
Já, þegar sveitasíminn var hér og
þurfti að snúa, tengdum við heyrnartól
við loftlínuna þar sem hún kom niður
svona um meter. Ein snúran fór í lín-
una og hin í jörðina og við gátum
hlustað á Huldu Hermanns og Jón á
Svínavatni rífast, við hlógum mikið þá.
Hvaða mannkosti telur þú hann
hafa?
Jákvæður og segir ekki nei. Duglegur
að vinna, að ganga og hjóla og klár!
Hann veit allt.
Hvernig er hann í vinnu? Í fé-
lagsskap annarra?
Duglegur og gott að vinna með hon-
um og það er skemmtilegt í kaffitím-
anum.
Hvað finnst þér gangan hafi gert
fyrir hann persónulega?
Hann varð frægur og með meira
sjálfstraust.
Kanntu einhverja góða sögu af
honum?
Ég, Kristján Már og Reynir Pétur
klifruðum yfir hurðina á búrinu og
stálumst í kökuboxið og sælgæti sem
þar var og fylltum vasana okkar og
Sesselja sá súkkulaði leka niður vasana
hjá einum okkar og þá komst það upp.
Sesselja skammaði okkur samt ekki
mikið!
Hvernig tengist þú honum?
Vinur.
Hver er þín staða á Sólheimum?
Ég er Legómeistari Íslands og starfa í
Kertagerð Sólheima, hlusta á tónlist og
hef áhuga á tölvum og tækni.
VINUR SEGIR FRÁ
„Hann var
góður og
alltaf
brosandi“