Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.07.2015, Blaðsíða 51
26.7. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51
Crymogea sendi frá sér ljóm-
andi fína ljósmyndabók á
dögunum sem heitir: Ef ég
hefði verið… Reykjavík
1950-1970. Í bókinni segir
Nina Zurier ævisögu sína
eins og hún hefði getað ver-
ið, hefði Nina alist upp í
Reykjavík en ekki Bandaríkj-
unum og notar hún til þess
efni frá Ljósmyndasafni
Reykjavíkur.
Sigrún Alba Sigurðardóttir
ritar inngang að bókinni en
hún hefur um langt skeið
rannsakað ljósmyndina sem
miðil á mörkum listar og
heimildar.
Bókin er gefin út í
tengslum við sýningu í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur sem
haldin verður í haust.
Uppdiktuð ævi
Í dag (laugardaginn 25. júlí) verða fleiri en
hundrað gráskeggjaðir, þrekvaxnir karlmenn
í kakíbuxum og sjóarapeysum fyrir sárum
vonbrigðum þegar úrslitin í tvífarakeppni Er-
nests Hemingway verða tilkynnt í Key West,
Flórída. Í anda Hemingway getur aðeins einn
staðið uppi sem sigurvegari þótt áherslan sé
kannski á fjöldanum.
Keppnin hefur verið haldin í 35 ár á eyj-
unni þar sem höfundur bókarinnar um
Gamla manninn og hafið bjó á fjórða áratug
síðustu aldar.
Undankeppnin er haldin í vínstúku Sóða-
Jóa (e. Sloppy Joe’s Bar) þar sem nóbelshöf-
undurinn átti til að drekka þurran martíni,
eftir góða rispu við skriftir og fiskirí.
Skemmtileg stemning hefur myndast kring-
um keppnina sem 125 manns taka þátt í að
þessu sinni, og hafa margir þeirra vanið kom-
ur sínar í keppnina undanfarin 10-20 ár, án
þess að hafa nokkru sinni unnið, að sögn eins
mótshaldarans.
BESTI PAPA Í HEIMI
Árið 1911 svipti ungt ljóðskáld, Richard
Middleton að nafni, sig lífi og átti þannig
þátt í að einhver frægasti einkaspæjari bók-
menntasögunnar rataði á blað. Philip Mar-
low átti eftir að birtast í níu bókum, þar á
meðal The Big Sleep, Farewell My Lovely
og The Long Goodbye og var síðar gerður
ódauðlegur á hvíta tjaldinu af mönnum á
borð við Humphrey Bogart og Elliot
Gould.
Skáldið lífsleiða var félagi bandaríska rithöfundarins Raymond Chandler, sem átti 127 ára
fæðingarafmæli 23. júlí síðastliðinn. Chandler er einn af frumherjum harðsoðna krimmans
þar sem drykkfelldir og keðjureykjandi einkaspæjarar með Stetsonhatta í regnfrökkum
berja frá sér tálkvendi og túkallakrimma jöfnum höndum samtímis því sem þeir leysa vand-
meðfarin glæpamál.
Sjálfsvíg Middleton hafði mikil áhrif á Raymond sem gafst upp á ljóðaforminu og færði sig
yfir í skáldsöguskrif. „Mér fannst hann alltaf mun hæfileikaríkari en ég myndi nokkurn tíma
verða; og fyrst hann gat ekki látið þetta virka, taldi ég ekki líklegt að ég gæti það frekar.“
Sannast þar með máltækið, í anda Philip Marlow, að eins manns dauði er annars brauð.
HARÐSOÐIÐ
AFMÆLI
Ný bók er komin út þar sem
ljósmyndagúrúið Páll Stef-
ánsson sýnir myndir sem
hann hefur tekið í ægifagurri
og ankannalegri náttúru Ís-
lands.
Ákveðnir staðir á landinu
hafa kynngikröftuga merkingu
sem hafa varðað vissar
stundir í lífi Páls og hefur
hann brugðið á það ráð að
láta ævisögulegar fúnderingar
fylgja völdum ljósmyndum.
Þar er lesanda bókarinnar
gefið færi á að skyggnast inn
í hugarheim ljósmyndarans á
sama tíma og hann fær að
líta heiminn með augum Páls.
Titill bókarinnar er enskur:
Iceland Exposed, sem
myndi útleggjast á íslensku:
Ísland afhjúpað, eða eitthvað
í þá áttina.
Sökum enskunnar er bókin
vísast stíluð á erlendan
markað en það kemur ekki
að sök. Myndirnar eru ekki
verri á ensku.
Páll Stefáns-
son afhjúpar
Ísland
Meira
allskonar
FJÖLBREYTNI FAGNAÐ
MÆLANDI MÚMÍNÁLFAR OG MAGNAÐAR
MYNDIR AF NÁTTÚRU LANDSINS ERU BÁSUÐ
NIÐUR MEÐ FRAMÚRSKARANDI VINKONUM OG
HLIÐARSJÁLFI FORTÍÐARINNAR ÞESSA VIKUNA.
ÞAÐ ER NÁNAST ÓAFSAKANLEGT AÐ HENDAST
EKKI Í NÆSTU BÓKABÚÐ OG NÆLA SÉR Í INN-
BUNDINN GLAÐNING UM HELGINA.
Huldukonan Elena Ferrante mun
vera einhver vinsælasti höfundur
Ítalíu þessa daga. Napólí-sögur
hennar hafa slegið í gegn víða um
heim og nú segir hún söguna af vin-
konunum Elenu og Lilu sem alast
upp í alþýðlegu hverfi í Napóli á 6.
áratugnum. Brynja Cortes Andrés-
dóttir þýðir úr ítölsku og það er
Bjartur sem gefur út.
Framúrskarandi
vinkona
Viðkunnanlegar skepnur finnsk-sænska rit-
höfundarins Tove Jansson eru komnar út á
bók enn á ný og nú á að kenna annaðhvort
pelabörnum, eða þeim sem eru að feta sín
fyrstu spor á götum íslenskrar tungu, litina
og orðin. Um er að ræða tvær bækur sem
taka hvor sitt efnið fyrir. Þær eru í litlu
broti svo ungbörn detti ekki fram fyrir sig
þegar þau handleika þær og eins eru þær úr
slitþolnum harðpappa svo það er hvort
tveggja hægt að missa þær margsinnis í gólf-
ið og tyggja á þeim hornin án þess að þær
hljóti skaða af. Myndirnar eru stór-
skemmtilegar. Hins vegar er sögubyggingin
ekki upp á marga fiska. Forlagið gefur út.
Múmínálfar læra orð
og liti
BÓKSALA 15.-21. JÚLÍ
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Konan í lestinniPaula Hawkins
2 Secret GardenJohanna Basford
3 Sagas of the IcelandersÝmsir höfundar
4 Independent PeopleHalldór Laxness
5 Marotta’s Tropical WonderlandMillie Marotta
6 HamingjuvegurLiza Marklund
7 Njals sagaTranslated by Lee M. Hollander
8 NicelandKristján Ingi Einarsson
9 Iceland in a BagÝmsir höfundar
10 Iceland Small World- lítilSigurgeir Sigurjónsson
Kiljur
1 Konan í lestinniPaula Hawkins
2 HamingjuvegurLiza Marklund
3 DavíðsstjörnurKristina Ohlsson
4 Blóð í snjónumJo Nesbø
5 Auga fyrir augaRoslund & Hellström
6 RótlausDorothy Koomson
7 Einn plús einnJojo Moyes
8 Tapað fundiðÁrelía Eydís Guðmundsdóttir
9 Ljós af hafiM.L.Stedman
10 DNA kiljaYrsa Sigurdardottir