Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.07.2015, Blaðsíða 56
SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 2015
Fyrr í þessum mánuði hófst sýning í hönnunarsafninu
Vandalorum í Värnamo í Svíþjóð á húsgögnum eftir Sig-
urð Gústafsson og verkum Arkitektastofunnar OG. Sýn-
ingin stendur til 1. nóvember nk. Þar getur að líta fjöl-
breytt úrval af húsgögnum eftir Sigurð Gústafsson sem
spanna allan feril hans en Sigurður hefur hlotið tvenn af
helstu hönnunarverðlaunum Norðurlanda, Bruno Mahts-
son-verðlaunin og Torsten og Wanja Söderberg-
verðlaunin. Af verkum Arkitektastofunnar OG sem eru á
sýningunni má nefna Búðarhálsvirkjun sem tekin var í
notkun á síðasta ári og Klettaskóla sem er nú í byggingu,
Víkurskóla frá 2003, auk ýmissa samkeppnistillagna. Á
sýningunni eru einnig verk eftir Bruno Mahtsson, þekkt-
asta húsgagnahönnuð Svía, og Ditte Hammerström frá
Danmörku.
Vandalorum var opnað árið 2011 og hefur á skömmum
tíma orðið eitt af helstu hönnunarsöfnum í Svíþjóð. Húsið
hannaði ítalski arkitektinn Renzo Piano, en innréttingar í
það voru hannaðar af Arkitektastofunni OG.
Arkitektastofan OG hefur starfað óslitið frá árinu 1967.
Núverandi eigendur eru Garðar Guðnason og Sigurður
Gústafsson. Starfsmenn stofunnar sinna verkefnum af öllu
tagi, en meðal nýlegra verkefna eru orkumannvirki, skólar
og íbúðarhús, auk innréttinga og húsgagna.
Frá sýningunni í
Vandalorum.
SIGURÐUR GÚSTAFSSON OG ARKITEKTASTOFAN OG
Sýna í hönnunarsafninu
Vandalorum í Svíþjóð
Fyrir réttum áttatíu árum var
rætt við Kristján Jónasson, lög-
reglumann í Reykjavík, undir liðn-
um „Úr daglega lífinu“ í Morg-
unblaðinu. Í spjalli blaðamanns við
Kristján bar margt á góma en
Kristján hafði gegnt starfinu í
meira en 20 ár.
– Hvaða kröfur eru gerðar, þeg-
ar velja á nýjan lögregluþjón?
Það er sett að skilyrði, að mað-
urinn sje 180 cm á hæð, svari sjer
vel, hafi engin áberandi líkamslýti,
sje vel að manni og engin kveif.
– Hverjir eiginleikar eru svo
nauðsynlegastir góðum lög-
regluþjóni?
Að hann sje vakandi í starfi sínu
og altaf „með á bransanum“, eins
og það er kallað hjer, á slæmu
máli. – Hann verður að vera vel
lyntur, lipur, skjótráður, en þó
ekki of fljótfær. Honum er nauð-
synlegt að vera kunnugur stað-
háttum, þarf að vera fljótur til
svars og áreiðanlegur í svörum –
því hann er spurður um allt milli
himins og jarðar. Fólki finnst að
lögreglan hljóti allt að vita og
koma allt við.
– Gætið þið ekki að umferðinni,
þegar mannmargt er á götunum?
Jú, þegar þess þykir þörf – og
svo eru það blessuð börnin. Þau
eru okkur oft til mikils erfiðisauka,
og þau eru svo óþjál og óstýrilát,
að ekkert fæst við þau ráðið. For-
eldrar hugsa miklu minna um börn
sín nú en áður. Þessi grey eru látin
eiga sig og þvælast á götunni. […]
Nokkrir þessir aumingjar hlaupa
út í eld og vatn ef þau sjá lög-
regluþjón – að minnsta kosti ef
hann ætlar að gefa sig á tal við
þau. Þetta kemur til af því, að það
eru ekki allfáar mæður, sem nota
lögregluna fyrir grýlu á börnin sín.
GAMLA FRÉTTIN
Nota lögregluna fyrir grýlu
Kristján Jónasson lögregluþjónn.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Eva Longoria
leikkona
Rannveig Rist
forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi
Sofia Vergara
leikkona
Kíktu við og njó
ttu þess að
skoða úrvalið h
já okkur
Glæsileg lína frá
naver collection í Danmörku
Þar sem hefðir og handverk fara saman
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Við erum stolt af hverju smáatriði