Skagfirðingabók - 01.01.1999, Blaðsíða 181
Á FJÖLUNUM AUSTAN FJARÐAR
lagða, en Hoffmanns- og kamfórudropasala vill verða mikil t.d.
í sláturtíðinni.“ 1922: „Lítið byggt vegna dýrtíðar og efnaleys-
is... Salerni eru mjög óvíða, jafnvel erfitt að koma þeim á í
kauptúninu. Þar er og vatnsskortur, og hefur gengið illa að
grafa brunna. ... Fæstir líða neyð. Fáir lifa í alsnægtum. Skyr-
bjúgur ekki komið fyrir þetta ár, en oft áður. A einu heimili,
þar sem 2 börn dóu af barnaveiki, var ekkert til, enginn skál,
enginn bolli, en móðirin svo sturluð, að hún gerði tvisvar til-
raun til að kveikja í fötum sínum."
Magnús var talinn farsæll læknir: „Hafði hann einkum frá-
bært lag á því að lækna taugaveiklaða sjúklinga og telja kjark
í þá“, segir í samtíma heimild. Svo var hann skyggn á andlegu
meinin, að honum lét flestum betur að sefa sjúkan hug.
Læknirinn er ómyrkur í máli í kunningjabréfum. Arið 1918:
„Verslunarfólk hefur helst peningaráð enda er þeirri stétt eða að
minnsta kosti kaupmönnum og verzlunarstjórum auðgerðast
að skapa sér dýrtíðaruppbót með hækkuðu vöruverði eða svo
virðist okkur hér.“
Arið 1917 var U.M.F. Höfðstrendingur stofnað fyrir áeggjan
Magnúsar læknis. Félagið gaf út sveitarblaðið Höfðstrending.
Mælt er, að Magnús hafi skrifað það að mestu einn. Þar kynnti
hann margvísleg áhugamál sín. Blað þetta mun ekki lengur til.
Talið er, að það ásamt fleirum rituðum gögnum, hafi orðið eldi
að bráð, er gamla þinghúsið í Hofsósi brann um 1950.
Arið 1916 stofnaði Páll Erlendsson, góðkunningi Magnúsar,
karlakór í Hofshreppi, sem fyrr getur, og hét Þrestir, og var oft
nefnt Söngfélagið Þrestir, jafnvel Þröstur. Páll var mikill tón-
listarmaður og þótti góður stjórnandi. Hann vann tónlistarlífi
austan fjarðar öðrum fremur ómælt gagn.
Þegar kemur fram um 1918, má af ýmsu marka, að Magnús
læknir er mæddur maður. Honum blöskrar fátæktin og deyfð-
in í kringum sig og telur sig litlu fá áorkað til bóta. Hann hafði
löngum kennt illri verzlun um mikla skuldasöfnun og annan
fjárhagsvanda alþýðu.
179