Skagfirðingabók - 01.01.1999, Blaðsíða 214
SKAGFIRÐINGABÓK
sumar, því að tvær þeirra áttu tvö börn hvor utan hjónabands
og ein eitt.
Nú verður reynt að geta örlítið nokkurra afkomenda biskups-
hjónanna. Þar sem ekkert allsherjarmanntal var tekið allar göt-
ur frá 1703 til 1801, verður þetta erfíðara en ella, og nokkuð er
tilviljanakennt hvað finnst af heimildum, t.d. um fæðingar- og
dánarár. Af 13 börnum Halldórs og Þóru komust að minnsta
kosti tíu upp, hér talin í stafrófsröð:
1) Björn Thorlacius. Hann „bar ættarnafn móður sinnar, hafði
verið skírður því, og kvað það vera eitt fyrsta dæmi slíkra
nafngjafa hérlendis“, segir Hannes Pétursson. Björn gerðist kaup-
maður á Húsavík og formaður brennisteinsnáms, fær ítrekað
ágæta vitnisburði í kirkjubókum: skynsamur, aðgætinn, stjórn-
samur og siðsamur, svo nokkuð sé eftir haft. Hann var stór-
auðugur um hríð. Hann giftist danskri konu, Kristjönu að nafni,
og voru börn þeirra Skúli Magnús sem átti Marsibil Semings-
dóttur Hjálmarsmóður; Anna Karen sem giftist Nikulási Buch,
norskum manni, „góðum og ráðvöndum", brennisteinsforstjóra
og skíðakennara; og Þóra sem átti sr. Björn Halldórsson. Björn
var faðir sr. Halldórs sem átti Þóru Gunnarsdóttur er Jónas orti
um, og afi sr. Björns Halldórssonar skálds í Laufási. Björn
Thorlacius Halldórsson dó snemma árs 1794, vetri betur en
fimmtugur.
2) Brynjólfur, „smiður mikill og skáld“. Hann bjó á Sauðá í
Skagafjarðarsýslu og víðar þar um slóðir. Hann kvæntist Ingi-
björgu Eggertsdóttur prests á Undirfelli. Meðal barna þeirra
voru Halldór Klá(u)s smiður, einn með fyrstu tvínefndum mönn-
um í Skagafirði, og Þóra, seinni kona Péturs prófasts Péturs-
sonar á Víðivöllum, og eru frá þeim miklar ættir og margir
menn nafnkenndir. Synir þeirra Víðivallahjóna voru Brynjólfur
Fjölnismaður, Jón háyfirdómari og Pétur biskup, en dóttir Elín-
borg, gáfuð og skáldmælt, maddama á Mælifelli. Brynjólfur
Halldórsson andaðist vel roskinn 1792.
3) Blín (Elin). Hún giftist ekki, en átti barn með undarlegum
212