Jökull


Jökull - 01.12.1952, Síða 2

Jökull - 01.12.1952, Síða 2
JÖKLARANNSÓKNAFÉLAG ÍSLANDS STARFSÁRIÐ 1951 Aðalfundur félagsins var lialdinn í 1. kerinslustofu Háskólans 2. apríl 1952. Áður en fundarstörf hófust sýndi Árni Stefáns- son kvikmynd sína af Fransk—íslenzka Vatnajökulsleiðangrinum. I. Formaður flutti skýrslu urn starf félags- ins frá stofnun þess, og voru þessi at- riði helzt: 1. Félagsmenn eru 150 að tölu. Menntamálaráð veitti félaginu 4000.00 kr. styrk vorið 1951. 2. Skálar. Tveir járnskálar voru reistir í sjálfboöavinnu, annar á Breiða- merkursandi, hinn í Esjufjöllum. Mikið þarf að endurbæta skálana, til þess að þeir verði sæmilega hlýir og vistlegir. 3. Snjóbíll. Alþingi veitti félaginu 25000 kr. til kaupa á snjóbíl, og hafði Fjárhagsráð einnig veitt gjald- eyrisleyfi fyrir einum bíl af vísil- gerð frá Svíþjóð. 4. Rannsóknir. Sumarið 1951 dvöld- 7 ungir fræðimenn við rannsókn- ir á Breiðamerkurjökli og höfðu húsaskjól í skálum félagsins. 5. Jökull. Félagið hóf útgáfu árs- rits og fá skilvísir félagar það ókeypis. Vonir standa til að geta stækkað það, er tímar líða. Prent- smiðjan Oddi hafði sýnt félaginu það drengskaparbragð að gefa allan prentunar- og bókbandskostnað á fyrsta heftinu. 6. Fjársöfnun. Félagið leitaði eftir samskotafé til kaupa á snjóbíl. Vik- ust margir vel og drengilega við því máli. Söfnuðust alls um 20000 kr. á skömmum tíma. Gerði for- maður grein fyrir helztu hjálpar- hellum félagsins í þessu efni og færði þeim þakkir. II. Páll Sigurðsson verkfræðingur lagði fram endurskoðaða reikninga félags- ins, og voru þeir einróma samþykktir. III. Stjórnarkosning. í félagsstjórn voru endurkosnir þeir Árni Stefánsson, Guðmundur Kjartansson, Sigurjón Rist og Trausti Einarsson. í varastjórn: Einar Magnússon, Sigurður Þórarins- son og Þorbjörn Sigurgeirsson. End- urskoðendur: Páll Sigurðsson og Rögn- valdur Þorláksson. — Jón Eyþórsson er formaður félagsins til aðalfundar 1954. IV. Lagabreyting. Hákon Bjarnason skóg- ræktarstjóri kvaddi sér hljóðs og lagði til, að árstillög félagsmanna yrði hækk- uð upp í 50 kr. Var sú tillaga samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta. V. Þorbjörn Sigurgeirsson flutti erindi um ismyndun. Að lokum var sýnd stutt kvikmynd úr Grænlandsleiðangri P. E. Victors og rætt nokkuð um fyrir- hugaða páskaferð á Oræfajökul. N.B. Á titilblaði JÖKULS 1951 ætti að standa 1. ÁR í stað 1. HEFTI. On the titel page 1951 read 1. ÁR (= year) in stead of 1. HEFTI. r n JÖKLARANNSÓKNAFÉLAG ÍSLANDS Iceland Glaciological Society P. O. B. 884 — Reykjavík Nýir félagar greiða kr. 100 fyrsta árið en síðan kr. 50 árlega. Annual subscription £ 1—0—0 or $ 3. — Ritstjóri Jökuls: JÓN EYÞÓRSSON Bergþórugötu 61, Reykjavík k _______________________________________y

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.