Jökull - 01.12.1957, Síða 46
Um kvöldið stóðu sjö tjöld, fjórir víslar og
Gusi á Grímsfjalli auk eldhúss, sleða með bygg-
ingarefni og loks borghlaðið skýli, sem oftast
gengur undir nafninu „hvíta húsið“.
Liklega hefur aldrei áður verið svo fjöl-
mennt á Grímsfjalli sem þessa daga. Alls voru
leiðangursmenn 21, þar af sjö konur. Hér eru
nöfnin:
Guðmundur Jónasson fararstjóri
Jón Eyþórsson fararstjóri
Arni Ivjartansson bryti
Stefán Bjarnason yfirsmiður
Magnús Eyjólfsson pípulagningam.
Haukur Hafliðason afgreiðslum.
Hörður Hafliðason vélsmiður
Gunnar Guðmundsson framkvæmdastj.
Trevor Walker (alias brother Grímur)
Finnur Eyjólfsson verzlunarm.
Hanna Brynjólfsdóttir ljósmyndari
Jóhanna Sigurjónsdóttir ljósmyndari
Guðrún Arnadóttir hjúkrunarkona
Margrét Sigþórsdóttir húsfreyja
Hulda Filippusdóttir húsfreyja
Steinun Auðunsdóttir verzlunarst.
Halldór Olafsson rennismiður
Sigurður Waage framkvæmdastj.
Magnús Jóhannsson útvarpsvirki
Arni Edwins verzlunarmaður
Ingibjörg Sigurðardóttir ljósmyndari.
Mánud. 3. júní. Skafheiðríkt, logn og feg-
urð. Risið úr rekkju um 8-leytið, en mörgum
hafði orðið lítt svefnsamt fram eftir nóttu
vegna veðurofsa. Var lokið við að renna brenni-
steini niður með pípum og ganga frá milli-
bitum í grunni. Síðan var skálinn reistur, og
gekk það undrafljótt og vel.
Af Svíahnúk að sjá, virðist liafa hækkað í
Grímsvötnum. Ný hengja er að myndast á
Hamrinum, en „svarti bunkinn" að norðan er
hár og brattur með djúpum dalkvosum til
norðurs vestan hans, en til norðausturs austan
megin.
Þriðjud. 4. júní. Eftir hádegi gerði stillt
og fagurt veður. Var þá hafið að klæða skál-
ann utan með krossviðarplötum. Um miðnætti
var verkinu lokið. Voru allir á einu máli um
það, að hann væri hið snotrasta hús.
Miðvikud. 5. júní. Um nóttina voru snarp-
ar vindrokur, og héldust þær fram eftir degi,
en duttu niður undir kvöldið. Gerði þá hið
fegursta veður. Skálinn var klæddur með tex-
plötum að innan. Um kvöldið var farið á bíl-
um ofan á Grímsvötn. Björn Pálsson flaug
yfir og kastaði niður blöðum frá Ulfari Jacob-
sen.
Fimmtud. 6. júní. Veður dásamlega fagurt.
Höfðu ýmsir verið á ferli lengi nætur til þess
að njóta fegurðar og taka myndir.
Hamarinn sést greinilega ca. 3° yfir vestur-
barm Grímsvatna. Nokkru norðar er Hofsjök-
ull og sjást í honum tveir dökkir tindar eða
jökulsker, e. t. v. Arnarfell litla og Hásteinar,
en erfitt er að greina vegna snjóbirtu yfir öllu
Snemma morguns sást tindur sunnan Hamars,
og hugði Guðm. Jónasson það vera Kerlingu.
Mun það og rétt vera.
Ráðgert var að fara til Kverkfjalla um kvöld-
ið. Var lagt upp kl. 17 á Kraka og Hreini 13,
en skálasmiðir skyldu koma nokkru síðar á
Gusa.
I lágskarðinu austan Grímsvatna, skammt
suður af bækistöðinni 1955, var gerð snjógryfja,
660 cm djúp, til jtess að mæla ákomu vetrar-
ins. Skarðið er 180 m lægra en Grímsfjall (1719
m) eða tæpir 1540 m. Undir vetrarákomunni,
sem reyndist 652 cm þykk, var grófgert, hart
íslag með ryki — frá haustinu áður. Vatnsgildi
ákomunnar reyndist 3400 mm. Frá gryfjunni
var mælt snið yfir Grímsvötn í beina stefnu á
Depil (270° á áttavita) og því næst frá Depli
í beina stefnu á Gríðarhorn. Var ekið í Kraka
í beina stefnu og lesið á hæðarmæli við liverja
hálfa mílu (800 m). Reyndist sléttan í 1410 m
hæð, en vestast hallar henni niður í slakka
(1384 m) undir Depli og Hamrinum. Depill
er 1458 m eða 74 m yfir dældina. Árið 1955
var þessi hæðarmunur 114 m og í sept. 1957
var hann aðeins 62 m.
Er því sýnileg hækkun á yfirborði jökulsins
á Grímsvötnum.
Frá Depli var mælt á sama hátt í segul-
stefnu 224° að Gríðarhorni. Reyndist sléttan víð-
ast 5—10 m lægri á þeirri leið, hallar til suðurs.
Föstud. 7. júni. Um miðnætti var lagt upp
frá snjógryfjunni í Grímsvatnaskarði áleiðis til
Kverkfjalla. Tóku allir þátt í þeirri för nema
Hörður Hafliðason, sem varð eftir í skálanum
til þess að lakkbera gólf og leggja síðustu hönd
á innréttingar. Veður var fagurt, þegar lagt var
af stað, en á norðanverðum jökli var þoku-
slæðingur. I sólarupprás nálguðumst við Brúð-
arbungu. Var sólin eldrauð og geysistór að sjá
gegnum þokumóðuna og virtist hvíla á sjálfu
44