Jökull - 01.12.1957, Blaðsíða 55
Dæmi um jarðskrið. Varðan frá 1. ágúst 1939
leit þannig út 29. ágúst 1957.
What the solifluction had done to the small
cairn of lst Aug. 1939 when revisited on 29th
Aug. 1957.
Photo S. Rist.
lijalli fyrir neðan. I þessum botni hefur legið
jökull til skamms tíma, og sums staðar var ís
þar undir aurskriðum. Nú var þar aðeins skafl
frá síðasta vetri.
Beygði ég nú til hægri, vestur eftir hjallan-
um, og kom þá að kvos nokkurri eða hliðar-
þrepi, sem takmarkast að austanverðu af hrygg,
sem gengur suður frá 1343-metra hnúknum
[Steinsfelli]. I kvosinni sunnan skarðsins var
dálítil jökulkaka, en þangað fór ég ekki. Nokkru
sunnar var hlíðin þakin samfelldum jökli, og
náði sléttur sporður niður í slakka austan
undir 1408-metra fjallsegginni.
Á jökulöldu framan við þennan jökulsporð
var hlaðin lítil varða um 120 m frá jökli, en
krapaelgur var í kvosinni við ísinn og ekki
hægt að sjá mörkin greinilega. Nokkuð af vetr-
arsnjó var enn óleyst. Hæð vörðunnar mældist
mér 920 m.
Sunnan við þennan jökul var hlíðin auð á
kafla, austan í öxl 1408-metra hnúksins, en þá
voru fannir og jökulflákar í skarðinu, sem ligg-
ur úr Glerárdal yfir í Nyrðri-Króksárdal og
Skjóldal. Mestur er jökullinn norðan í 1440-
metra öxlinni [Stórastalli], en í hlíðunum vest-
an Glerárdalshnúks og í Glerárdalsbotni eru
jökulflákar og fannir, en virðast þunnar viðast
hvar. Um miðjan dalslakkann er jökullinn flat-
ur eða íhvolfur og aurborinn ofan til, en grjót-
orpinn með öllu neðan til. Sást þar í 2—3 m
ísveggi á nokkrum stöðum, þar sem áin hafði
brotið sér farveg. Annars kemur Glerá úr jökul-
sporði undir urðinni. Virðist sem jökullinn
hafi „nýlega" gengið fram á yztu jökulgarða,
sem fyrir voru i dalnum, og sést rétt við útfall
Glerár gömul, hörð jökulalda, sem síðari fram-
burður hefur ekizt yfir. Þar liggur ísinn og
stórgrýtið um 10 m hærra en núverandi vatns-
borð. Upptök Glerár mældust mér 820 m.
Að svo búnu gekk ég sem leið liggur niður
Glerárdal til Akureyrar. Röskur 4 klst. gangur.
Löng leið og leiðinleg í þokubrælu og súld.
Bægisárjökull 26. ágúst
1957. Myndin tekin úr
tjaldstað. í baksýn er:
Tröllatindur til vinstri,
Steinsfell í miðju, en
Snorragnúpur og Jökul-
borg til hægri. Örin sýn-
ir vallgróna, yztu jökul-
öldu.
The aspect of Bœgisár-
jökull with surrounding
mountains 26 Aug. 1957.
Photo S. Rist.
53