Jökull - 01.12.1957, Síða 56
Langsnið og þversnið (A—V) á Bægisárjökli, mælt 27.—30. ágúst 1957.
The longitudinal and transversal sections as surveyed 27—30th Aug. 1957.
RANNSÓKNIR Á BÆGISÁRJÖKLI 1957.
Sunnudag 25. ágúst flaug ég til Akureyrar
til móts við Sigurjón Rist vatnafræðing, en
hann var væntanlegur sunnan úr Þjórsárverum
þann dag.
Mánudag 26. ágúst kom Sigurjón til Akur-
eyrar um hádegi, og héldum við að Syðri-
Bægisá kl. 15,30, bjuggum þar dót á hesta og
vorum komnir í tjaldstað nálægt efstu grösum
í Bægisárdal kl. 21,40. Flutti Steinn bóndi
Snorrason okkur. Veður bjart og fagurt. Tjald-
stæði á mosaflesju, um 650 m y. s.
Við höfðum ekki nægan tíma til þess að gera
nákvæmt kort af jöklinum og mældum í þess
stað langsnið og þversnið á milli fastra mæli-
staða. Eru bæði sniðin sýnd á teikningu. Lang-
sniðið er frá J2, sem er koparnagli í jarðföstum
steini hjá vörðunni B2-1939, til koparnagla í
Depli, svörtum klettadrang í efri brún jökuls-
ins, undir (norðan í) Steinsfelli (1343 m).
Einnig var mælt frá J2 í Bi-1939 og þaðan að
yzta, gróna jökulgarðinum. Við ST 14 er líka
stórgrýttur, en fremur ógreinilegur garður í
dalbotninum. Þess ber að gæta, að hæð yfir
sjávarmál er ekki nákvæm, og er merkið í
Depli sett 1250 m og aðrar hæðir miðaðar við
jrað. Samkvæmt þessu má lesa eftirfarandi fjar-
lægðir og hæðir á lengdarsniðinu:
54