Jökull


Jökull - 01.12.1962, Síða 13

Jökull - 01.12.1962, Síða 13
uppistöðupyttum milli eyjanna. Skriðið þjapp- ast venjulegast inn í þessa pytti, og Jtá leggst yfir þá gráís, en á stöku stað lokast þeir af al- auðir og þekjast glærís. Loks, þegar grunnstingulseyjar, höfuðísar og grunnstingulsgarðar, sem vaxið hafa með botni á milli steina, girða þvert yfir farveginn eða þjappa og spyrna við krapaförinni í þröngum ál, svo að hún staðnar, er komið að lokastigi ísalagna. Skriðið, sem kernur stöðugt ofan ána, þjappast aðeins saman, staðnar, og áin verður alþiljuð á skömmum tíma. Ishellumyndunin fœrist þannig upp árnar. Enn er þó þörf margs að gæta. íshellumyndunin fer ekki jafn hratt alls staðar upp árnar. Á hallalitfum köílum ár- innar gengur liún hraðast, og þar verður minnst vatnsborðshækkun, sem fylgir ísalögnum. Þetta skal skýrt nánar. Reynslan hefur sýnt, að ef straumur vatnsins, sem kemur með aðvífandi skrið að ísröndinni, er yfir 0,5 metrar á sekúndu, þá megnar hann að dýfa skriðinu og stinga því undir ísbrúnina. Isröndin helzt þá á sarna stað, en færist ekki upp ána. Lyftikraftur vatnsins heldur skriðinu, sem fer undir ísþekjuna fast. upp að henni, en af því leiðir, að það eða að minnsta kosti nokkur hluti þess klessist neðan á ísþekjuna. Smájakar eru ætíð í skrið- inu, þeir gera rispur upp í krapagrautinn, en setjast síðan að. Af þessu leiðir, að í fyrsta lagi þrengist vatnsopið undir ísþekjunni, í öðru lagi spennist ísþekjan upp vegna aukins lyfti- krafts; það gengur í Jtá átt að auka vatnsopið, en vegur ekki upp á móti hindruninni, sem krapinn gerir. Afleiðingin verður hækkandi vatnsstaða í þversniði árinnar ofan við ísrönd- ina, {}. e. a. s. flatarmál þversniðsins þar vex, og þá má vera Ijóst, að straumhraðinn við ís- röndina minnkar, Jtví að straumhraðinn stend- ur f öfugu hlutfalli við flatarmál þversniðsins. Þegar hækkunin er orðin nægileg til að setja straumhraðann niður fyrir liið „krítiska“ mark, tekur fyrir hana, Jtví að þá megnar straumurinn ekki lengur að dýfa skriðinu undir ísþekjuna, heldur sezt. það að við ísröndina og íshellu- myndunin Jrokast þannig upp ána, koll af kolli. Þetta er ekkert sérstakt fyrir Þjórsá og Jtverár hennar, heldur hin algilda regla um það, hvernig straumharðar ár leggur. Venjulegast gengur þetta ekki svona rakleitt í okkar hviklyndu veðráttu. ísalagnir eru rofnar sundur af þíðviðrisdögum. Isinn tærist, rennsl- ið eykst, nokkur hluti grunnstingulsins losnar og ílýtur burt, hinn hlutinn tærist á staðnum. Grunnstingulseyjar og brot úr skörum hafna sem smájakar í víkum og vogum neðar meo ánum. Þótt tafir verði iðulega á ísmynduninni, læt- ur hún þó sjaldnast standa á sér til lengdar. Um eða fyrir miðjan nóvember eru árnar venju- legast komnar undir ís hið efra. Hér er rétt að staldra við og gera sér fulla grein fyrir, livað átt er við með „hið efra“. Þannig hagar ein- mitt til, að skörp skil ísalagna eru í megin- stofnám Þjórsár: I Tungnaá um Hófsvaðf í Köldukvísl undan Sauðafelli, í Þjórsá sjálfri neðan Eyvafens, en þau skil eru þó hvergi nærri eins glögg og í hinum ánum, því að ána leggur að mestu niður að Hvanngiljafossi. 5.2. Fall- og lindasvœðið að ármótum Þjórsár og Tungnaár. 5.21. Timgnaá frá Hófsvaði. Neðan Hófsvaðs steypist Tungnaá út af brún yngsta Tungnaár- hraunsins (nafngift G. Kj.). Þar eru einmitt liin skörpu skil ísalagna. Gjörbreyttur farvegur og lindavatn veldur þeim. Strax neðan hraunbrún- arinnar koma upp í farveginum nálægt 1300 1/sek. af 5° C heitu vatni. Setjum svo, að rennsl- ið í Tungnaá urn Hófsvað sé 50 kl/s og svifís- myndun í fullum gangi, grunnstingullinn eins og flosteppi um allan árbotninn á vaðinu og mikið skrið að liefjast, — venjulegt ástand þeg- ar ána er að leggja. Varmi lindavatnsins ætti að hita 0° C krapavatn Tungnaár upp í 0,12° C. Það er hreint ekki svo lítið, þegar J/iooo úr stigi skiptir máli. I raunveruleikanum verður blöndunin ekki algjör, en nægir þó til Jress að stöðva ísmyndunina í bili, svo að hvergi festir grunnstingul á steini. Ain er þakin skriði, Jtví að lindavatnið bræðir ekki krapaförina, svo að merkjanlegt verði. Ef skriðið ætti að hverfa sem dögg fyrir sólu, nægði ekki minna af 5° C heitu vatni en sem svarar til nær tvöfalds rennslis Tungnaár sjálfrar. Farvegur Tungnaár ofan hraunbrúnarinnar er breiður og grunnur. Botninn er sléttur og laus; sandeyrar og rif hér og hvar. Flatt er að ánni, og ná vindar auðveldlega að leika um vatnsborðið. Halli farvegarins er lítill og straum- ur hægur. Neðan hraunbrúnarinnar er farveg- urinn gjörólíkur. Breiddin er aðeins einn tíundi af farveginum ofan hraunbrúnarinnar, eigin- lega stórgrýtt gilskora í góðu skjóli milli hrauns og hliða. Mikill halli og straumur hraður. Á JÖKULL 11
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.