Jökull - 01.12.1962, Blaðsíða 23
Með öðrum orðum, eftir standa aðeins þættir,
sem auka varma árvatnsins. Þeir eru að vísu
allir litlir, en safnast þegar saman kemur. Ætla
má, að þeir gefi hverju grammi vatns varma af
stærðargráðunni 0,4 kal. Sú varmaaukning
megnar að vísu ekki að bræða mikinn ís, en
er drjúg, því að hún er að mestu óháð gangi
dags og nætur. Hún hefur að auki ásamt iðu-
hreyfingum vatnsins hvetjandi verkun á um-
myndun ískristalla skriðsins. Svo þarf vatnið á
ný að verða fyrir kælingu, áður en svifísmynd-
un kemst í gang.
I sambandi við hrannir þessar er rétt að vekja
athygli á einni reglu. Segjum að hrönn konri
t. d. fyrri hluta vetrar og áin skeri sig niður,
þá er reglan: Hrannir, sem koma síðar á vetr-
inum, ná ekki frekari hœð.
5.34. Búðahrönn. Hrannirnar við Urriðafoss
og Búrfell eru árvissar. Oðru máli gegnir með
Búðahrönn. Ganga má þó út frá þvi sem vísu,
að á hverjum vetri hlaðist upp nokkur ísbunki
i kvíslinni vestan Arness, en að slétt verði yfir
Búða og farvegurinn austan eyjarinnar lokist
jafnframt, gerist vart oftar en 4. til 5. hvert ár.
Þegar hrönnin hefur loks náð þessu stigi, hækk-
ar hún hratt og skriður upp að Þjórsárholti á
skömmum tíma. Á þeirri leið er áin opin. I
Þjórsárholtsgljúfrum er ísspöng og lág vatns-
staða, samanber það sem sagt er að framan
um hina fyrstu ísspöng. Vatns- og krapafyllan
spennir ísspöngina upp og umturnar henni.
Hrönnin fyllir gljúfrið. Þegar hrönnin rís hæst.
nær hún 1—2 metra upp fyrir gilbarminn að
austan, og þá nær hún upp með Ölmóðsev.
Þar fyrir ofan er straumvök í ánni, austan Við-
eyjar og Hagaeyjar og alla leið að Gaukshöfða.
Aðeins í mestu aftökum lokast straumvökin hjá
Gaukshöfða.
5.35. Þjórsá austan Búrfells. Hrönnunum
þremur hefur hér verið lýst og samspili þeirrá
að nokkru, og er því ástæða til að taka upp
þráðinn þar, sem frá var horfið við ármót
Tungnaár og Þjórsár og rekja gang ísalagna
á svæðinu ofan þeirra, þ. e. a. s. frá ármótunum
að Búrfellshrönn.
Svifís myndast alla jafna í Þjórsá neðan ár-
mótanna, ef snögglega frystir á árnar auðar.
Grunnstingull hleður þvergarða yfir hinn breiða
farveg neðan Vaðfitar. Vatnsfyllur nrilli þeirra
eru grunnar en allvíðáttunriklar. Ain spennist
18. mynd. Búrfellshrönn ekur stórgrýti. Sjá urðarkanrbinn
á 1. nrynd.
Large boulclers transported by Búrfell ice jarn (cf. Fig. 1).
Photo: S. Rist.
19. nrynd. Búrfellslrrönn í lok júnímánaðar (1962). Isleifar
huldar sandi lifa af sumarið. Búrfell í baksýn til vinstri.
Búrfell ice jarn by the end of June (1962). Sand-covered
rernnants of ice may survive through the surnmer. Moiint
Búrfell in left background. Photo: s. Rist.
JÖKULL 21