Jökull - 01.12.1962, Blaðsíða 19
13. mynd. Vetrarmynd a£ sama stað og 12. mynd. Athugið, mennirnir standa á sama kletta-
hausnum á báðurn myndunum. Hrönnin að hækka, bæjarlækur á Urriðafossi stendur uppi (neðst
til hægri á myndinni).
Same place as in Fig. 12, by winter t.ime. Persons standing on right bank are in same position
on both figures. Ice jam is rising. Pool in lower foreground is caused by the jam damming a
brook from the right side of the river. Photo: s. Ríst.
á grynningum og við skarir á sandeyrum.
Samfelld ísþekja myndast, allt skrið stöðv-
ast. ísþekjumyndun gengur mjög hratt upp
að Egilsstöðum, en svo hægar. Upp vex
Urriðafosshrönn.
2. Ain lokast í hlykkjótta og hallalitla farveg-
inum milli Kolviðarflata og Núpsskóga-
tanga fyrir ofan byggð. Skriðið stöðvast,
og upp vex Búrfellshrönn.
3. Áin lokast á hylnum undan Þrándarholti,
sökum þess að þar verður ísbreiðsustigið
skjótt 1. Allt skrið stöðvast og ísþekja
leggst yfir grynnslin í breiða farveginum
jxir ofan við, og upp vex Búðahrönn. Þá
lokast áin á hraunbrotum í bugðunum hjá
Króki. Lænurnar lokast hver af annarri
upp Skeið. Kvislin austan Árness lokast, og
upp vex efri hluti Búðahrannar, þ. e. a. s.
upp frá fossinum.
5.32. Urriðafosshrönn. Á glæðunum framan
(sunnan) Skúmseyrar er straumur mjög hægur
og jaínvel straumlaust með öllu, eftir [rví
hvernig stendur á sjávarföllum. Skriðið stöðvast
og frýs saman þvert yfir farveginn. Skrið berst
stöðugt að ísröndinni, og það er háð straunr-
hraðanum, eins og áður er sagt, hvort hann
megnar að færa það í kaf og stinga undir ís-
brúnina, eða það nemur staðar og þekjumynd-
unin þokast á þann hátt lengra upp ána. Is-
myndunin gengur hratt á flatlendinu, oft á
tæpum sólarhring upp að Egilsstöðum, en þá
tekur að hægja á henni. Hafnar eru liinar svip-
mestu ísalagnir hér á landi, aðeins Búrfells-
hrönn og Búðalirönn komast í nokkurn sam-
jöfnuð. Sé skrið án afláts dag eftir dag, miðar
ánni vel að stækka ísbunkann, og hann teygir
sig lengra og lengra upp ána jafnóðum og
straumhraðinn minnkar í jrversniðinu ofan
hans. „Hrönnin hækkar," segja jreir sem næstir
Irúa.
Elrönnin á Þjórsá undan Egilsstöðum í Flóa
verður á flestum vetrum 8 metra há, mæld
frá meðalvatnsstöðu, stöku sinnum 12 rnetrar.
Slétt verður yfir Urriðafoss, og ekkert mótar
fyrir fossinum, þegar hrannarmyndunin skríð-
ur upp gljúfrið og nálgast brúna á þjóðvegin-
um. Hjá Urriðafossi (neðan við fossinn) verð-
JÖKULL 17