Jökull


Jökull - 01.12.1962, Page 49

Jökull - 01.12.1962, Page 49
Vatnajökull hlaupinn Frásögn Þorvarðar læknis Kjerúlfs 1890 Veturinn eða vorið 1890 hljóp Brúarjökull fram yfir örœfin á öllu svœðinu milli Jök- ulsánna í Fljótsdal og Jökuldal (vestustu kvísl). Þorvarður læknir Kjerúlf fór með fleirum til að athuga hlaupið. Sögðu svo kunnugir menn, að eftir hlaupið mundi jökullinn vera á mjög likum mörkum og 80 áirum fyrr (1810). Er það glöggt vitni. þess, hvað jöklarnir hafa verið misjafnlega umfangsmiklir á ýmsum tírnum og legið misþungt á grunni sinum. Jökullinn hljóþ langt fram yfir Fitjakofa á Vesturörafum og nær út að Sauðárkofa. (Hefur tekið af nær dagsgöngu fyrir gangna- menn.) Halldór Stefánsson. I vetur, er leið, þóttust menn vita, að ein- hver óvanaleg umbrot mundu vera í Vatna- jökli inn af Jökuldals- og Fljótsdalsöræfum, einkum á því sviði jökulsins, er Jökulsá í Fljóts- dal, Jökulsá á Dal og Kreppa hafa aðdrög sín; Jíví að undir eins snemma vetrarins, þegar annars htill sem enginn jökullitur er á ám þessum, fór að bera á miklum jökulleir í þeim, sem fór svo vaxandi, að um hátíðir var leir- burðurinn orðinn svo mikill, að er sökkt var upp í skjólu og látið setjast, var nærfellt helm- ingur jiikulleðja. Auk [ress sá sauðamaður á Króksstöðum í Hjaltastaðaþinghá um nýársleytið úr fjallinu upp frá bænum eitt kvöld eld mik- inn hlaupa upp í jöklinum inn til Snæfells að sjá, og um sama leyti eða litlu síðar urðu menn varir við nokkra jarðkippi; dunur og dynkir heyrðust líka, er á leið veturinn og vorið, og um helgi í 14. viku sumars gjörði jakaferð mikla og vatnsvöxt í Jökulsá á Dal, er hélzt nokkra daga. Skömmu síðar fóru tveir menn, Elías bóndi á Vaðbrekku og Jón Þorsteinsson á Aðalbóli í Hrafnkelsdal, í hreindýraslag inn á svonefnd Vesturöræfi, — það er á milli Jökulsár á Dal og Snæfells, — og var þá jökullinn lilaupinn út að Sauðá á Vesturöræfum, og er það á að geta li/9 míla vegar frá fastajöklinum, sem áður var. Sauðá þessi fellur úr Snæfelli til suðvest- urs í Jökulsá á Dal, en eigi úr Vatnajökli, eins og haft er í „Geologische Karte der Insel Island, Berlin“. Vestan megin Jökulsár á Dal var skriðjökull- inn genginn út á svonefnda Hraungarða á Kringilsárrana; það eru gamlar jökulýtur og jökull undir, en var nú allt vaxið töðugresi og talið bezta haglendið á Brúaröræfum; hafði jökulsbrúnin farið undir garðana og flett þeim upp, svo [reir lágu nú ofan á jökulröndinni, sem var á að geta 30 faðma há. Þessar jökul- ýtur voru um 80 ára gamlar, og mundi Einar heitinn, er lengi bjó á Brú og fæddist um alda- mót, er jökullinn hljóp. A þessu árabili hefur þá jökullinn þiðnað og haglendi myndazt ofan á malar- og grjót- laginu, sem eftir liefur orðið ofan á jöklinum, er undir liggur. Þegar ég frétti þetta, fór ég inn á svonefnd Hvannstóðsfjöll á Brúaröræfum, því að þaðan var mér sagt bezt útsýni yfir jökulinn og öræfin. Innsti hnjúkurinn i fjöllum þessum er á lín- unni milli Snæfells og Herðubreiðar, vestan við innstu drög Laugarvalladals. Hnjúkur þessi er á að geta (eftir loftmæli) 2700 feta hár frá sjó að telja. Utsýni er þaðan ágætt yfir öll öræfin fyrir innan, milli Kverkfjalla og Snæfells. Eg var líka svo lieppinn, að veður var þann dag (24. ágúst) bjart og skírt og livergi þoka á íjöllum. Heljarlegri og þó fegurri sjón hef ég aldrei séð; jökullinn brotinn og bramlaður niður í gegn á 6 mílna sviði frá Kverkfjöllum að vest- an og austur á móts við mið Vesturöræfi og svo langt inrt í fastajökulinn, sem ég sá, og er það líklega eigi skemmra en 3 til 4 mílur; verð- ur þannig skriðjökull þessi að yfirmáli frá 25 til 30 mílur. Jökullinn er líkastur yfir að líta og liamra- fjöll, sem hausthrím, hálftekið upp, liggur yfir, svo víða sér í svart bergið og gljúfrin — eða öllu heldur eins og menn gætu ímyndað sér frosið haf í brimróti. Ofan á hverjum jaka ligg- ur grjót og möl, en á milli glittir í bláar og JÖKULL 47

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.