Jökull


Jökull - 01.12.1976, Síða 65

Jökull - 01.12.1976, Síða 65
norðurs, þar sem við tekur breið sandræma milli Mófells og Hrútafjalla að vestan og Grjótháls- ins að austan. Um miðja vegu milli Hrútafjalla og Mófells hefst á þessari ræmu jafn halli norð- ur til umgetins svæðis í Kelduhverfi. Hlaupfar- vegir þessa leið mundu því gefa eðlilega skýr- ingu á framburðinum á þessum kafla í Keldu- hverfi. Þetta er farið að líta nokkuð vel út. En sá galli er á, miðað við nútímalandslag, að rennslið norðvestur og svo norður úr vestur- enda Eilífsvatna hefði orðið að liggja upp brekk- ur frá 354 m upp í svona 370 m hæð, og þaðan norður með miklu minni halla upp í um 400 m liæð áður en rennsli undan halla gat hafist. Hér er því komið að þeirri ályktun, að ræma í framlraldi af Hágöngum til norðurs hafi lyfst um ca. 50 m frá tíma hlaupsins. En sönnun á þessari lyftingu á 2500 árum fæst ekki, nema að glöggur jarðfræðingur fari eftir hinum ályktaða farvegi og sannprófi tilveru hans. Óvíst er á þessu stigi, hvort Eilífsvötn hafa verið til sem slík. í hlaupinu hefðu þau gleypt aílan grófan framburð, farvegurinn væri úr fínu efni fyrst vestan og norðan vatnanna og nýr grófur framburður orðið að koma úr Grjótháls- grágrýtinu. Þetta atriði er því prófanlegt. Loks virðist til eðlileg hlaupleið frá Hrossa- borgarsvæðinu til suðurenda dalsins milli Vest- ari og Austari brekkna, þar sem hæðin er 375 m. A þessari leið eru augljósir misgengisstallar, sem taka verður tillit til. Fleira er ekki ástæða til að segja á þessu stigi könnunar. Þá kem ég að hinu atriðinu, sem ég vildi ræða um, en það er spurningin um upprunasvæði og orsakir hamfarahlaupsins. í því sambandi verð- ur mér starsýnt á tímasetningu hlaupsins, og virðist mér að þar sé svarsins að leita, þegar jafnframt er litið á það sem vel er kunnugt um veðurfarssögu eftirísaldartímans, bæði hér á landi og á hliðstæðum svæðum austan hafs og vestan. í lok Holtasóleyjarskeiðsins síðara, fyrir um 10 000 árum, telst isöld lokið og á næstu 1000 árum fóru veður hlýnandi og náðu svipuðu marki og nú ríkir. Þessi hlýja veðrátta stóð svo óslitið næstu 6000 árin og náði raunar hámarki undir lokin, fyrir 3000—4000 árum, er veðurfar er talið 2—3 °C hlýrra en verið liefur frá því eftir 1930. En fyrir um 2500 árum kom snöggt og mikið hitafall sem reiðarslag og fimbulvetur yfir mannfólkið, dýra- og gróðurríkið, með stormum, úrkomu, frosthörku og aukningu jökla, sem höfðu rýrnað mjög á hinu langa hlý- viðrisskeiði á undan, og loks tærst enn veru- legar við hámarkshlýindin skömmu á undan. Fyrstu greinina í 1. hefti tímaritsins Jökuls (1951) (nú mundi það hefti teljast 1. árgangur) skrifaði eðlilega stofnandinn og formaður Jökla- rannsóknafélags Islands til dauðadags, Jón Ey- þórsson, og heitir greinin Þykkt Vatnajökuls. I lienni er skýrt frá árangri af þykktarmælingum með hljóðendurkasts-aðferð, sem gerðar voru í fransk-íslenzkum leiðangri á 33 stöðum vítt og breitt um jökulinn í marz—apríl 1951. Þegar þykktin er dregin frá mældri hæð staðanna eftir niðurstöðum landmælinganna, fæst hæð lands- ins undir jöklinum og verður Jóni það ærið um- hugsunarefni, að undir mestum hluta Vatna- jökuls er landið á hæðarbilinu 500, 600, 700 og upp í 800 m. Hann segir undir lok greinarinn- ar (bls. 5): „Enginn efi er á því, að hlýviðris- skeið hafi komið hér eftir síðustu ísöld — eins og annars staðar á Norðurlöndum. — I Noregi er talið, að árshiti hafi orðið allt að 3 stigum meiri en nú er og snælína 350—400 m hærri. Af samanburði á hitabreytingum hér á landi og í Noregi, virðast þær nærri samstiga í báðum löndum. Mun því láta nærri, að árshiti hér á landi hafi verið 2—3 stigum hærri en nú gerist. Þá hvarf Vatnajökull að mestu, nema jökulhúf- ur sátu eftir á Öræfajökli, Bárðarbungu, Kverk- fjöllum og Esjufjöllum. Á Breiðubungu voru skaflar, en ekki samhangandi jökull. Breiða- merkurmúli varð vaxinn skógi, og þá mynduð- ust mómýrar miklar á Breiðármörk, þar sem nú er jökull.“ Eg hygg, að ályktun Jóns verði ekki véfengd með rökum, enda er það nú almennt kunn veð- urfarssaga, sem hann rekur. Kort af landinu undir Vatnajökli, eins og þessar mælingar sýndu það, birti Jón svo með greinargerð í 2. árg. Jökuls 1952 og styðst ég við það að nokkru leyti, af því að það nær bæði til vestur- og austurhluta jökulsins, en auk þess mun ég styðj- ast við nýrra og nákvæmara kort af vesturhlut- anum, sbr. Mynd 6 í grein Helga Biörnssonar í Jökli 1974. Þannig eru þá nokkrar jökulhettur á hæstu bungum „Vatnajökulslandsins" — eins og ég vildi mega kalla það til hægðarauka —, þegar „Fimbulveturinn* gengur í garð, eins og kulda- skeiðið fyrir 2500 árum er stundum kallað, þar eð ýmsum hefur dottið í hug, að þetta nafn og liugtak úr norrænni goðafræði kynni að byggj- JÖKULL 26. ÁR 63
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.