Jökull


Jökull - 01.12.1976, Side 84

Jökull - 01.12.1976, Side 84
Hinn 7. sept. var ekki um neitt að villast, greini- legur vöxtur var kominn í ána, en aðrar ár héldu áfram að minnka. Ragnar Stefánsson í Skaftafelli mældi vatnshæð og skriiaði daglega lýsingu af ánni. Hinn 11. sept. og aðfaranótt hins 12. óx áin verulega. Nú var áin að fara út yfir þau mörk, að hægt væri að átta sig á rennslinu nema með daglegum og samfelldum rennslismælingum. Ekkert hlaupvatn var i Gígju eða Súlu. RENNSLISMÆLIN GAR Hinn 14. sept. hófu Vatnamælingarnar rennsl- ismælingar. Sjá meðfylgjandi vatnsrit hycLro- graph. Aðstaða til mælinga var nú gjörbreytt frá fyrri hlaupum, brú komin til sögunnar. Ekki þurfti lengur að nota veltigrindur við að mæla dýpið. A brúnni var ákjósanleg aðstaða að mæla vatnsdýpið með þungum blýlóðum. Einnig reyndist handhægt að mæla dýpið með grönnum járnteinum. Teinarnir voru allt að 9 m langir. Teininum var skutlað inn undir brúna undan straumi þannig, að hann í skástöðu kenndi botns og flaumiðan látin reisa hann upp. Teinn- inn var hafður í bandi. Bandið — mælivír — var strekkt um leið og teinninn stóð lóðréttur og svo var viðmiðunarpunktur uppi á handrið- inu. Slíka mælingu var hægt að framkvæma án þess að trufla umferð eða vera truflaður af henni. Var hún því notuð töluvert. Þar sem straumofsinn var mestur varð að nota hin þyngstu lóð. Lóðunum var aðeins unnt að renna út af sérstökum þar til gerðum spilvagni eða út frá spili á sérstaklega útbúinni mælingabifreið. Aurburðartökumenn veittu drjúga liðveislu við að mæla dýpið, þegar hlaupið var í hámarki. Reynt var að rnæla dýpið með bergmálsdýptar- mæli. Það lánaðist ekki. Eigi er þó ólíklegt, að fyrir næsta Skeiðarárhlaup verði búið að þróa þá aðferð og gera þann útbúnað, sem með þarf, svo að hún verði nothæf. I mesta flaumnum, t. d. þegar drílaröst lá í aðalstrengnum undir brúnni, var ógjörlegt að koma við hinni hefðbundnu straumhraðamæl- ingu með straummæli — Woltmanns-skrúfu. Tækin rásuðu svo út til hliða. I slíkum ofsa eru krossviðarspjöld og þau í kross á tréstöng, hald- besta straummælitækið þegar allt kemur til alls. A annan enda stangarinnar er fest grjótsakka en á hinn er festur flotkútur, stöngin helst því 82 JÖKULL 26. ÁR lóðrétt í vatninu. Stönginni með krossviðar- plötunum, sem standa hornrétt hvor á aðra, er nú sleppt í flauminn. Mælt er, hve lengi hún er að rekja út fyrirfram mældan þráð, 50 eða 100 m. Þannig fæst vatnshraðinn mældur. Straumurinn mæðir mest á stönginni, þar sem spjöldin eru, því að þau eru aðalflöturinn. Stöngin fer því áfram með þeim hraða, sem vatnið hefur á því dýpi, sem spjöldin eru. Þannig er hægt að mæla vatnshraðann á mis- munandi dýpi. Það kemur sér vel, að mælitæk- ið er ódýrt, því að það verður ekki dregið á land aftur. Ofur auðvelt er að mæla yfirborðs- hraða árinnar á þennan hátt, þegar veður er stillt. Sá er munurinn, að flothylkið ristir ör- skammt niður í vatnið og verður lialað inn aftur. Enda var þetta óspart notað, því að stöð- ugt þurfti að endurtaka mælingar í aðalálunum, sem breytast í sífellu. NÁKVÆMNI MÆLINGARINNAR Eins og áður segir var mæliaðstaðan gjör- breytt til batnaðar með tilkomu brúarinnar. Skekkjumörkin í fyrri lilaupum, t. d. 1972 og 1954, voru nál. ± 20%. Gjalda varð varúð við að álykta, að skekkjumörkin yrðu nú til muna þrengri, hér varð að fara að öllu með gát. Til sögunnar kom hvimleiður skekkjuvaldur. Þar á ég við að þversniðið undir brúnni var ólíkt kvikara, en rásin upp með Skaftafellsbrekkum, þar sem ég hafði mælt rennslið áður. Botninn undir brúnni var stöðugt að breytast. Áin þurfti í flóði nokkra aðlögun við brúna. Hún var í fyrsta lagi að skera niður sand- og aurdyngjur eða að fylla í rásir, sem stöfuðu frá sjálfri brú- argerðinni, en svo var það ekki síður straum- stefnan, innstreymið að brúnni meðfram leiði- görðum, sem varð að taka breytingu. Keilurnar eru nú tvær, önnur frá útfalli og að brú, hin er með toppinn við brú og nær til sjávar. Skeið- ará fór yfir nær allan farveginn undir brúnni, heflaði hann og lagaði til að vild sinni, nema hún lauk ekki við mjóa ræmu á milli stöpla nr. 14 og 15. Best er að átta sig á þessum „hvim leiða skekkjuvaldi" með því að athuga og bera saman þversniðin, Myndir 2 til 7, og gera sam- anburð á þeim dag frá degi. Skekkjumörk hlaup- vatns nál. ± 15%. Nánar um nákvæmnina í sambandi við mælingar á Grímsvötnum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.