Jökull - 01.11.1998, Blaðsíða 76
Þjórsárdal í fegursta veðri. Fararstjóri var Alexander
Ingimarsson.
Athugaður var áhugi félagsmanna á hópferð að
Drangajökli í Kaldalóni síðastliðið haust vegna ham-
fara jökulsins þar. Ekki reyndist nógu margir vilja
fara enda afleit veðurspá. Féll þessi ferð því niður.
ALÞJÓÐLEG JÖKLARÁÐSTEFNA
Alþjóðlega jöklarannsóknafélagið hélt ráðstefnu um
rof og efnisflutning jökla í Reykjavík 20. - 25. ágúst
1995. Auk ofangreinds félags stóðu að henni Háskóli
Islands, Jöklarannsóknafélag Islands, Landsvirkjun,
Orkustofnun, Veðurstofna og Vegagerð ríkisins.
Ráðstefnan var sérstaklega tengd nafni Jóns Ey-
þórssonar fyrsta formanni Jöklarannsóknafélagsins, en
á árinu 1995 voru 100 ár liðin frá fæðingu hans.
Ráðstefnuna sóttu liðlega 100 sérfræðingar frá
öllum heimsálfum. Gestir fóru upp á Kaldadal í hálfs
dags ferð og þriggja daga ferð austur á Breiðamerkur-
sand um Landmannalaugar og í Jökulheima.
ÁRSHÁTÍÐ
Arshátíð félagsins var haldin 11. nóvember í
Flugfreyjusalnum í Síðumúla 11. Bílanefnd félagsins
sá urn þessa hátíð.
SKÁLAMÁL
Skálar félagsins eu almennt í góðu standi. Á
Grímsfjalli var dyttað að ýmsu í vorferðinni. Mjög gott
ástand er á gufubaðinu, nægilegt vatn í sturtu og hiti
þægilegur. Allt annað er að sjá umhverfi skálanna eftir
að salemin vom tekin í notkun.
Fjölmenn vinnuferð var farin í Jökulheima helgina
20.-22. ágúst. I þessari ferð var lokið endurbótum á
gamla skála og er hann nú einn af glæsilegustu fjalla-
skálum landsins. I þessari ferð var kamarinn færður
nær skálunum og honum komið fyrir á olíutanki um
það bil 20 metra frá nýja skála. Em nú salemismál á
þessum tveimur aðalstöðvum félagsins komin í við-
unandi horf.
Húsnæðismál félagsins í Reykjavík em í svipuðu
formi og fyrr í húsnæði Ferðafélags Islands. Höfum við
fengið nýja geymslu til afnota sem er lítið eitt stærri en
sú er við höfðum. Alexander Ingimarsson er fulltrúi
félagsins í húsnefnd.
BÍLAMÁL OG FARARTÆKI
Nú á félagið tvo snjóbfla. Bombann sem kominn er
til ára sinna og Jaka sem keyptur var árið 1994. Nú er
verið að ganga frá viðgerð á þeim bíl þannig að hann
verði nothæfur fyrir félagið. Rætt hefur verið um að
félagið losi sig við Bombann.
Bfla- og flutningsmál félagsins hafa nokkuð verið
til umræðu að undanfömu. Ymsar hugmyndir hafa
skotið upp kollinum, en lítið hefur verið tiltækt af hald-
bæmm upplýsingum til að byggja á við ákvarðanatöku.
Þess vegna setti stjórnin á fót vinnuhóp til að taka
saman öll tiltæk gögn um málið. Þessum vinnuhóp er
meðal annars ætlað að skilgreina flutningsþörf félagsins
og taka saman upplýsingar, kosti og galla hinna ýmsu
möguleika sem til greina koma.
GJAFIR
Ferðaklúbburinn 4x4 og Landsamband íslenskra
Vélsleðamanna lögðu fram fjárframlög til styrktar fél-
aginu við skála á Grímsfjalli.
Valur Jóhannesson afhenti félaginu 16 mm kvik-
myndaspólu af bomn á Bárðabungu 1972 sem hann og
Ámi Kjartansson tóku.
STAÐA OG STEFNA
Á stjómarfundi í desember var lögð fram greinar-
gerð um stöðu og stefnu félagsins í ýmsum málaflokk-
um. Svona vangaveltur em ekki nýjar af nálinni enda
ávallt nauðsynlegt að líta til baka og sjá hvað áunnist
hefur og síðan fram á við og móta stefnu þar sem tekið
er tillit til fortíðar og þróunar á ýmsum sviðum.
Það er skoðun okkar að þrátt fyrir ýmsar breytingar
sem orðið hafa bæði í rannsóknum og ferðamáta þá á
markmið félagsins eins og það stendur í lögum þess
74
JOKULL, No. 46, 1998