Jökull - 01.11.1998, Qupperneq 77
fullan rétt á sér, en þar stendur:
Markmið félagsins er að stuðla að rannsóknum og
ferðalögum á jöklum landsins, gefa út tímaritið Jökul,
ásamt fréttabréfi og gangast fyrir frœðandi fyrir-
lestrum og myndasýningum.
I rannsóknaleiðöngrum Jöklarannsóknafélagsins
hefur félagið meir og meir gegnt því hlutverki að stuðla
að samstarfi aðila um rannsóknir og sameina þá um
jöklaferðir til þeirra verkefna. Slíku hlutverki þarf
félagið að gegna og stjóm þess mun stuðla að því að allar
starfsnefndir þess vinni saman að því á komandi árum
við sífellt breyttar aðstæður. Það mun gert með því að
skilgreina rannsóknaverkefni sem félagið vill styrkja,
stuðla að því að þau verði unnin með sameiginlegu
framlagi vísindamanna og annarra áhugamanna um
jöklarannsóknir. Þær jöklarannsóknir sem lengst hafa
verið stundaðar samfellt hér á landi eru nátengdar
Jöklarannsóknafélaginu og brýnt og eðlilegt er að
félagið stuðli að framhaldi þeirra um ókomin ár.
I þeirri greinargerð sem tekin var saman eru síðan
tilgreindar leiðir að markmiðum. Þar er fjallað um
fundi, fræðslustarf og skemmtanir, ferðir, útgáfu, rann-
sóknir og aðstöðu til rannsókna. Settar voru fram
ýmsar hugmyndir sem ræða þarf nánar og kryfja til
mergjar.
FYRIRHUGAÐAR RANNSÓKNIR
Það hefur verið venja í skýrslum stjómar á aðal-
fundi að í lokin sé litið fram á við og nefnt það helsta
sem framundan er á rannsóknasviðinu. Að þessu sinni
ríkir nokkur óvissa, aðallega vegna framhlaups
Tungnaárjöklus sem hefur gert það að verkum að ekki
er hægt að fara hefðbundnar leiðir í Grímsvötn. Vorferð
félagsins er einn af hornsteinum þess og mega ekki
og munu ekki falla niður. A næstu vikum mun verða
farið yfir þau verkefni sem vinna þarf í vorferð og
hvemig hagstæðast mun verða að haga ferðatilhögun.
I sumar eru ráðgerðar umfangsmiklar rannsóknir á
Vatnajökli á vegum Raunvísindastofnunar, Lands-
virkjunar og erlendra aðila. Þetta rannsóknaverkefni
er styrkt af Evrópubandalaginu. Munu a.m.k. þrír
rannsóknahópar innlendir og erlendir dvelja á jökl-
inum í lengri eða skemmri tíma við ýmsar mælingar
einkum veðurathuganir og afkomumælingar, en
markmiðið er að kanna tengsl afkomu og loftslags. A
þessu stigi er óljóst hver þáttur félagsins getur orðið í
þeim rannsóknum, en félagið er ávallt reiðubúið til að
leggja fram aðstoð sína til að stuðla að rannsóknum og
auknum skilningi manna á jöklum og hegðun þeirra.
LOKAORÐ
Góðir félagar. Á þessum aðalfundi verður breyting
á stjóm félagsins. Stefán Bjamason sem setið hefur í
stjóm og varastjóm félagsins frá 1960 gefur ekki kost
á sér til endurkjörs. Stefán var lengi vel ritari félagsins
og sá ásamt konu sinni Auði Olafsdóttir um félaga-
skrá, innheimtu félagsgjalda og dreifingu Jökuls.
Hann hefur jafnframt verið formaður skálanefndar og
staðið fyrir uppbyggingu á skálum félagsins.
Stefán var kosinn heiðursfélagi Jöklarannsókna-
félags íslands á aðalfundi 1993 og tók sæti Sigurjóns
Rist í valnefnd á síðasta aðalfundi og vona ég að hann
komi til með að sitja þar áfram. Fyrir hönd félags-
manna færi ég Stefáni þakkir fyrir ómetanlegt starf
fyrir Jöklarannsóknafélag Islands.
27. febrúar 1996
Einar Gunnlaugsson, varaformaður.
JÖKULL, No. 46, 1998
75